Einn helsti mannréttindafrömuður Rússlands dæmdur í fangelsi Oleg Orlov, einn fremsti mannréttindafrömuður Rússlands, hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi af dómstóli í Moskvu. Hinn sjötugi Orlov var dæmdur fyrir að „vanvirða“ rússneska hersins ítrekað með því að lýsa yfir andstöðu við innrásina í Úkraínu. 27.2.2024 18:06
Rannsaka aftöku á minnst sjö stríðsföngum Yfirvöld í Úkraínu hafa til rannsóknar myndband sem virðist sýna rússneska hermenn taka minnst sjö úkraínska hermenn sem hafa gefist upp af lífi. Atvikið var fangað á myndband með dróna sem var yfir svæðinu. 26.2.2024 22:46
Eldur logar í Elliðaárdalnum Eldur kviknaði nú í kvöld í gömlu húsi við Stekkjarbakka í Elliðaárdalnum. Slökkviliðsmenn reyna nú að ráða niðurlögum eldsins. 26.2.2024 21:33
Ferðamanni bjargað af flæðiskeri Björgunarsveitarmenn frá Lífsbjörg í Snæfellsbæ björguðu undir kvöld ferðamanni af flæðiskeri á sunnaverðu Snæfellsnesi. Maðurinn var fastur á skeri undan ströndum Ytri Tungu og var honum bjargað á síðustu stundu. 26.2.2024 20:33
Skjálfti við Kleifarvatn Tiltölulega stór jarðskjálfti mældist við Kleifarvatn um klukkan hálf sjö í kvöld. Skjálftinn, sem var 3,4 stig og mældist um tvo kílómetra austur af vatninu, fannst í byggð og fylgdu honum nokkrir eftirskjálftar. 26.2.2024 20:05
GameTíví: Dreifa lýðræði og kíkja í hrylling Strákarnir í GameTíví ætla að dreifa stýrðu lýðræði um Vetrarbrautinga í leiknum Helldivers 2 í kvöld. Þeir munu einnig dýfa tánum í smá hrylling. 26.2.2024 19:31
Fyrsta Abrams skriðdrekanum grandað nærri Avdívka Úkraínskir hermenn hafa hörfað frá þorpi í austurhluta Úkraínu, skammt vestur af borginni Avdívka, sem féll nýverið í hendur Rússa eftir gífurlega harða bardaga frá því í október. Þaðan hörfuðu hermenn til þorpsins Lastochkyne og hafa þeir nú hörfað lengra til vesturs. 26.2.2024 18:42
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Auknar líkur eru taldar á gosi og kvikumagnið undir Svarstengi mun líklega á morgun ná neðri mörkum þess sem hefur safnast þar saman fyrir síðustu eldgos. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við Kristínu Jónsdóttur á Veðurstofunni um stöðuna og við verðum í beinni frá fundi almannavarna í Laugardalshöll. 26.2.2024 18:00
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Úkraínumenn í slæmri stöðu eftir tveggja ára átök Eftir tveggja ára stríðsrekstur hefur Rússum vaxið ásmegin í átökunum í Úkraínu. Þeir hafa sótt fram í austurhluta landsins og eru byrjaðir á umfangsmiklum árásum í suðri. Ólíklegt er þó að þeir hafi burði til að leggja umfangsmikil landsvæði undir sig, að svo stöddu. 24.2.2024 08:01
Krefst einnig friðhelgi í skjalamálinu Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur farið fram á að dómsmál vegna opinberra gagna og leynilegra skjala sem hann tók með sér þegar hann flutti úr Hvíta húsinu og til Flórída, verði fellt niður. Lögmenn hans segja hann hafa svipt skjölin leynd sem forseti og þau hafi verið hans einkaeign, því hafi í raun aldrei átt að ákæra hann á grundvelli friðhelgi forseta. 23.2.2024 12:06