Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Samúel Karl Ólason skrifar 2. október 2026 22:45 Hútar á götum Sanaa í Jemen. EPA/YAHYA ARHAB Ráðamenn í Sádi-Arabíu eru sagðir skipuleggja stórsókn gegn Hútum í Jemen. Meðal annars kemur til greina að reka Húta frá stöndum Bab el-Mandebsunds, en vera þeirra þar gerir Hútum kleift að loka öðrum enda Rauðahafs. Sóknin yrði leidd af sveitum ríkisstjórnar Jemen, og nyti stuðnings Sáda úr lofti og ráðgjafar og upplýsinga frá Bandaríkjamönnum.
Þar að auki myndu nokkur Evrópuríki aðstoða Sáda við að verjast árásum í Sádi-Arabíu en Bretar og Frakkar gera það nú þegar. Samkvæmt heimildum Reuters á sóknin að hefjast á næstu vikum. Að henni eiga að koma allt að hundrað þúsund menn úr sveitum ríkisstjórnarinnar í Jemen en hermenn Sádi-Arabíu eiga ekki að koma að sókninni með beinum hætti á jörðu niðri. Sjá einnig: Hútar skutu niður herþotu Sáda Sádar eru sagðir hafa komist að þeirri niðurstöðu að þeir geti ekki hafið friðarviðræður við Húta á meðan þeir stjórna sundinu og hafi þar af leiðandi töluverð íhöld þegar kemur að olíumörkuðum. Langvarandi átök Hútar stjórna stórum hluta Jemen, þar á meðal höfuðborginni Sana, en þeir eru studdir af klerkastjórninni í Íran. Sádar hafa stutt alþjóðlega viðurkennd stjórnvöld í Jemen gegn Hútum um árabil. Sádar hófu að aðstoða ríkisstjórn Jemen árið 2015. Þá leiddu Sádar bandalag arabaríkja sem kom ríkisstjórninni til aðstoðar eftir að Hútar ráku sveitir ríkisstjórnarinnar frá Sanaa. Skæð borgarastyrjöld stóð yfir um langt skeið í Jemen en fjögurra ára vopnahlé liðaðist í sundur í sumar og hafa átökin aukist töluvert síðan þá. Hútar hófu í sumar árásir á olíuvinnsluinnviði og olíuflutningaskip Sádi-Arabíu, með því markmiði að koma í veg fyrir flutninga Sáda á olíu um Rauðahaf. Þá gerðu Hútar umfangsmikla sókn í vesturhluta Jemen fyrr í þessum mánuði og lögðu undir sig stóran hluta strandlengju landsins við Rauðahaf. Þeir landvinningar hafa gert þeim mun auðveldara að takmarka siglingar um Rauðahaf, sem var orðin helsta útflutningsleið Sáda fyrir olíuafurðir vegna takmarkana á siglingum um Hormússund. Vildu helst sigra Húta Eitt af helstu markmiðum sóknarinnar væntanlegu yrði, samkvæmt Reuters, að snúa landvinningum Húta í suðurhluta Jemen. Verið er að skoða tvær leiðir til að ná þessu markmiði. Önnur þeirra snýst um að gera umfangsmikla sókn gegn Hútum á breiðri víglínu í Jemen en hin um að gera beittari sókn og takmarkaðri að munni Rauðahafs. Helst eru ráðamenn í Sádi-Arabíu sagðir vilja sigra Húta alfarið en það gæti reynst erfitt. Hútar eru nú meðal helstu bandamanna klerkastjórnarinnar í Íran eftir átök Ísraela við Hezbollah í Líbanon og Hamas á Gasa en síðan þá hefur dregið verulega úr getu beggja samtaka. Sádar gætu einnig notið stuðnings frá Pakistan og Tyrklandi en ráðamenn ríkjanna skrifuðu nýlega undir varnarsamkomulag. Sá stuðningur yrði þó líklega ekki í formi beinnar aðkomu að átökunum en Sádar hafa verið að fá hergögn frá báðum ríkjum á undanförnum vikum. Pakistanar hafa einnig sent hergögn til sveita ríkisstjórnarinnar í Jemen og eru ráðgjafar frá Pakistan með ráðgjöfum frá Sádi-Arabíu í landinu.
Jemen Sádi-Arabía Hernaður Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Pakistan Tyrkland Bandaríkin Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira