Klappað fyrir Þórólfi í Laugardalshöllinni Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, var bólusettur í dag. Bólusetningin fór fram í Laugardalshöll og fékk Þórólfur fyrsta skammt sinn af bóluefni AstraZeneca. 28.4.2021 10:15
Annað ímyndað hneyksli gerir íhaldsmenn reiða Blaðamaður götublaðsins New York Post hefur hætt starfi sínu og segir að sér hafi verið skipað að skrifa kolranga frétt. Sú frétt var um að ríkisstjórn Joes Biden væri að útbýta barnabókum Kamölu Harris, varaforseta, og til ólöglegra innflytjenda á barnsaldri. 28.4.2021 09:29
Handsprengjan reyndist hjálpartæki ástarlífsins Þegar ung kona á skokki í skógi nærri borginni Passau í Þýskalandi kíkti í grunsamlegan poka brá henni heldur í brún. Þar sá hún handsprengju sem hún taldi úr seinni heimsstyrjöldinni og dreif hún sig til að hringja í lögregluna. 27.4.2021 15:53
Þorlákshöfn líklega áfram í hæga gírnum út vikuna Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, segir útlit fyrir að Þorlákshöfn verði í „hægum gír“ út vikuna. Að starfsemi sveitarfélagsins verði líklegast ekki eðlileg fyrr en í næstu viku. 27.4.2021 15:19
Rússi fékk loks lausn úr kínverskum sjónvarpsþætti Rússneskur maður er loksins laus úr kínverskum raunveruleikasjónvarpsþætti eftir að hafa beðið um að fá að hætta í þrjá mánuði. Hinn 27 ára gamli Vladislav Ívanóv vann sem túlkur við þættina Produce Camp 2021 og var boðið að taka þátt í leitinni að mönnum í nýja strákahljómsveit. 27.4.2021 14:30
Lögreglukonan sem fór íbúðarvillt vill losna úr fangelsi fyrir að skjóta nágranna sinn Lögmaður lögreglukonunnar fyrrverandi Amber Guyger munu í dag færa rök fyrir því að snúa eigi við sakfellingu hennar fyrir morð. Hún skaut nágranna sinn í Dallas í Texas til bana árið 2018 eftir að hún fór fyrir mistök inn í íbúð hans en ekki sína. 27.4.2021 14:26
Fólkið færist til suðurs og vesturs og þingsætin fylgja Nýjasta manntal Bandaríkjanna sýnir að Bandaríkjamönnum fjölgaði um einungis 7,4 prósent milli 2010 og 2020 og teljast þeir nú 331 milljón. Það sýnir einnig að sú þróun að íbúar færist til suðurs og vesturs heldur áfram. 27.4.2021 12:30
Sextán greindust smitaðir og þrír utan sóttkvíar Sextán greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Þrír þeirra voru ekki í sóttkví.Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni Covid.is. 27.4.2021 10:53
Bretar gera sig breiða og sigla flota um höf Asíu Bretar munu í næsta mánuði senda herflota á siglingu um Asíu og Kyrrahaf. Um stærsta flota Bretlands í áraraðir er að ræða og verður nýja flugmóðurskipið HMS Queen Elizabeth í flotanum. Það er annað flugmóðurskip Bretlands og stærsta herskip sem ríkið hefur sett á flot. 27.4.2021 10:18
Lífseigu samstarfi í geimnum að ljúka og keppt til tunglsins Í rúma tvo áratugi hafa geimvísindamenn og geimfarar Rússlands og Bandaríkjanna unnið náið saman, samhliða því að samskipti ríkjanna tveggja hafa beðið verulega hnekki. Þó viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum hafi verið beitt á báða bóga hefur geimurinn verið sér á báti. Sá tími er nú liðinn. 27.4.2021 09:15