Læti í miðbænum og í veðrinu Níu gistu í fangageymslu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir nóttina en alls voru 75 mál skráð í kerfi lögreglunnar frá fimm í gærdag til fimm í morgun. Flest þeirra virðast hafa tengst skemmtanalífinu og veðrinu. 2.8.2025 08:06
Stóra tjaldið fellt og hætt við brennuna vegna óveðurs Hætt var við að kveikja í brennunni á Fjósakletti á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í nótt vegna veðurs. Þá var stóra danstjaldið fellt til að forða því frá foki og veitinga- og tónlistartjöldin í fremri hluta Herjólfsdal rýmd til að tryggja öryggi. 2.8.2025 07:36
Búast við þrumuveðri og vatnavöxtum Kröftug samskil munu ganga norðaustur yfir landið í kvöld og í nótt en þeim mun fylgja suðvestan slagveðursrigning. Veðurfræðingar Veðurstofu Íslands segja að vindur verði 13-20 metrar á sekúndu og hvassast með suðvesturströndinni. 1.8.2025 16:29
Gary Busey játar kynferðisbrot Leikarinn Gary Busey hefur játað að framið kynferðisbrot. Upprunalega neitaði hann alfarið ásökunum um að hafa káfað á konum á hryllingsmyndaráðstefnu fyrir þremur árum en játaði fyrir dómara í gær að hafa brotið af sér. 1.8.2025 15:52
„Clinton áætlunin“ líklega tilbúningur rússneskra njósnara Sérstakur rannsakandi sem skipaður var af dómsmálaráðherra Donalds Trump, með það verkefni að kafa í Rússarannsóknina svokölluðu, fann vísbendingar sem grafa undan þeirri kenningu margra stuðningsmanna Trumps að Hillary Clinton og starfsfólk hennar hafi reynt að koma sök á Trump og ljúga því að framboð hans hafi átt í samstarfi við Rússa í kosningabaráttunni 2016. 1.8.2025 15:03
„Ekki taka. Endurheimta. Þetta er okkar“ Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sagðist í dag vonast eftir því að hægt væri að hefja friðarviðræður við Úkraínu. Hann gaf þó til kynna að vindurinn væri í seglum Rússa um þessar mundir og að hann væri alls ekki tilbúinn til að láta af umfangsmiklum kröfum Rússa. 1.8.2025 14:27
Hraunbreiðan þykknar og líkur á framhlaupum aukast Eldgosið á Reykjanesi heldur áfram af stöðugum krafti og bendir greining til þess að hraunið muni leita í átt að Innri Sandhól, þar sem ferðamenn hafa safnast saman. Þá mælist enn kvikusöfnun undir Svartsengi. 1.8.2025 13:19
Bukele ryður leiðina að einræði í El Salvador Stjórnmálaflokkur Nayibs Bukele, forseta El Salvador, hefur samþykkt breytingar stjórnarskrá ríkisins sem fella úr gildi takmarkanir á fjölda kjörtímabila sem forsetar mega sitja. Þar að auki hefur kjörtímabil forseta verið lengt úr fimm árum í sex. 1.8.2025 10:00
Leynilega geimfarið sent á sporbraut í áttunda sinn Starfsmenn Boeing og SpaceX munu í næsta mánuði skjóta leynilegu geimfari herafla Bandaríkjanna á braut um jörðu í áttunda sinn. Geimfarið, sem kallast X-37B hefur þegar varið rúmlega 4.200 dögum á sporbraut frá árinu 2010. 31.7.2025 16:51
Samþykkja ný lög um spillingarrannsóknir eftir mótmæli Vólódímir Selenskí, forseti Úkraínu, skrifaði í dag undir lög sem snúa við mjög svo umdeildum lögum gegn sjálfstæði embætta sem rannsaka opinbera spillingu. Með því hafa stofnanirnar tvær, sem kallast NABU og SAPO, öðlast sjálfstæði frá framkvæmdavaldinu á nýjan leik en er það í kjölfar umfangsmikilla mótmæla í Úkraínu gegn fyrri lögunum og vegna mótmæla frá bakhjörlum Úkraínumanna í Evrópu. 31.7.2025 16:10