Vatnsleki í Garðheimum Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi fyrr í kvöld áhöfn eins dælubíls til Garðheima í Álfabakka. Þar hafði komið vatnsleki frá þaki hússins. 2.12.2024 23:22
Fordæmalaus náðun Bidens Náðun Joes Biden, fráfarandi forseta Bandaríkjanna, á syni hans Hunter Biden, þykir einstaklega umfangsmikil og virðist hafa fallið í grýttan jarðveg víðast hvar. Náðunin þykir fordæmalaus, bæði sökum tengsla feðganna og vegna umfangs hennar, og þar að auki eru Demókratar ósáttir við fordæmið sem Biden hefur sett. 2.12.2024 23:00
Feluleikur hjá GameTíví Strákarnir í GameTíví fara í feluleik í kvöld. Þá munu þeir spila Prop Hunt í fjölspilunarhluta Call of Duty: Black Ops 6. 2.12.2024 20:59
Gekk betur en óttast var Umferðin á höfuðborgarsvæðinu undir kvöld virðist hafa gengið betur en óttast var, þó hún hafi farið hægar en gengu og gerist. Segja má að íbúar höfuðborgarsvæðisins hafi upplifað sinn fyrsta vetrardag í dag. 2.12.2024 19:33
Mörg hundruð vígamenn frá Írak til aðstoðar Assad-liðum Hundruð meðlima írakskra vopnahópa hafa streymt yfir landamærin til Sýrlands í dag. Þar ætla þeir að aðstoða sveitir Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, gegn uppreisnar- og vígamönnum sem tóku stjórn á borginni Aleppo og stórum nærliggjandi svæðum í vikunni. 2.12.2024 18:38
„Nú þarf maður bara að treysta þjóðinni“ Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segist jákvæð fyrir deginum og að stemningin innan Samfylkingarinnar sé gríðarleg. 30.11.2024 15:32
Gríðarlegur kraftur í sjálfstæðisvélinni Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir kosningabaráttuna hafa verið snarpa, fjörlega og skemmtilega. Það hafi verið gott að kjósa í dag, í loka hnykknum í baráttunni. 30.11.2024 15:07
„En ég heyri alveg gríðarlegan stuðning víða“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir það skemmtilega hátíðartilfinningu að mæta á kjörstað. Hann segist vongóður með daginn. 30.11.2024 14:18
Hröð barátta og skortur á dýpt Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata, segir alltaf frábært að setja x við P. Það gerði hún í morgun. Hún sagðist þá ætla að verja deginum í kosningamiðstöð þar sem hún stefnir á að hringja í nokkra óákveðna kjósendur. 30.11.2024 13:33
Samtöl við kjósendur standa upp úr Jóhannes Loftsson, stofnandi Ábyrgrar framtíðar segir það sérstakt að kjósa en geta ekki veitt sjálfum sér atkvæði, þar sem hann býr í Reykjavík suður en flokkurinn býður fram í Reykjavík norður. 30.11.2024 12:58