Lífið

Patrick Stewart látinn

Eiður Þór Árnason skrifar
Patrick Stewart árið 2024. Hann háði skammvinna baráttu við heilahrörnunarsjúkdóma.
Patrick Stewart árið 2024. Hann háði skammvinna baráttu við heilahrörnunarsjúkdóma. Getty/Michael Tullberg

Enski leikarinn Patrick Stewart er látinn, 86 ára að aldri. Hann átti glæstan feril á sviði og í kvikmyndum en er hvað þekktastur fyrir hlutverk sín sem skipsherrann Jean-Luc Picard í Star Trek: The Next Generation og prófessor Charles Xavier í X-Men-myndunum. Hann lést á heimili sínu í Los Angeles í Bandaríkjunum í gær.

Variety greinir frá en samkvæmt yfirlýsingu á Instagram-reikningi hans háði Stewart skamma baráttu við Alzheimers og Lewy-sjúkdóm áður en hann lést. Í báðum tilvikum er um að ræða heilahrörnunarsjúkdóma. 

„Hans hljómmikla rödd og einstöku hæfileikar verða alla tíð samofin ógleymanlegum túlkunum hans á ólíkum sviðum,“ segir í yfirlýsingu frá aðstandendum.

„Afrek hans í starfi héldust í hendur við góðgerðarstarf hans og baráttu fyrir mannréttindum, þolendum heimilisofbeldis, alþjóðlegum hælisleitendum, geðheilbrigðisþjónustu fyrir uppgjafahermenn og velferð dýra,“ segir þar einnig.

Hann hafi verið riddari, akstursíþróttaáhugamaður og ævilangur stuðningsmaður Huddersfield-knattspyrnuliðsins.

„Hans verður minnst fyrir þá reisn, samkennd og mannúð sem hann sýndi í öllum sínum hlutverkum – í list sinni jafnt sem lífi.“

Þá hvetja aðstandendur fólk til að styðja Alzheimers-rannsóknarmiðstöð Johns Hopkins-háskóla og Alzheimers-stofnun Bandaríkjanna í hans nafni.

Fréttin hefur verið uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.