„Talan á vigtinni hefur sagt mér alltof mikið í gegnum tíðina“ „Talan á vigtinni hefur sagt mér alltof mikið í gegnum tíðina,“ skrifar Eva Laufey Kjaran í einlægri færslu á Facebook. Hún er sterkari en nokkru sinni áður og æfir sig í að sleppa tökum á tölunni á vigtinni þar sem kröfur samfélagsins séu óraunhæfar. 29.3.2026 09:47
Breytingar á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar auglýstar Umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt að senda deiliskipulag Suðurlandsbrautar vegna Borgarlínunnar til auglýsingar í samráðsgátt. Minnihluti borgarstjórnar gagnrýnir fyrirhugaðar breytingar og sér í lagi að ekki sé búið að útfæra breytingar á bílastæðum við götuna. 29.3.2026 08:59
Slydduél og snjókoma í kortunum Veðurstofa Íslands spáir breytilegri átt, víða átta til fimmtán metrar á sekúndu, en vestan þrettán til átján á Austfjörðum. Slydduél, en sjókoma norðan til og á Austurlandi. 29.3.2026 07:24
„Brjálaður aðili“ reyndist eftirlýstur af lögreglu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um „brjálaðan aðila“ í miðbæ Reykjavíkur. Sá reyndist vera eftirlýstur. 29.3.2026 07:16
Gular veðurviðvaranir og vegir á óvissustigi Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir víða um land síðdegis í dag. Fjöldi vega er á óvissustigi og geta því lokað með skömmum fyrirvara, þar á meðal Reykjanesbrautin og Holtavörðuheiðin. 28.3.2026 14:12
Leiðinlegt þegar ráðist er á „litla manninn á horninu“ Brotist var inn á pítsastaðinn Pizza 107 snemma í morgun og vínflöskum stolið. Eigandi staðarins, sem hefur séð upptöku af innbrotinu, telur innbrotið hafa verið planað í þaula. Það sé leiðinlegt þegar ráðist er á „litla manninn á horninu“ og hefði hann frekar lánað viðkomandi nokkrar vínflöskur. 28.3.2026 13:39
Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð Boðaðar viðbótarskatttekjur fjármála- og efnahagsráðherra á fyrirtæki í fjármálageiranum eiga að skila sex milljörðum til ríkisins. Ráðherrann lét það ekki fylgja með í fjármálaáætluninni hversu hárrar upphæðar skatturinn ætti að afla en það gerði framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar. 28.3.2026 11:22
Hútar skjóta eldflaugum að Ísrael Hútar frá Jemen sendu flugskeyti í átt að Ísrael í morgun en þetta er fyrsta árás þeirra eftir að átök milli Bandaríkjanna, Ísraela og Írana hófst. 28.3.2026 10:02
Vinstrið á blússandi siglingu Fylgi Vinstrisins, nýs framboðs í Reykjavík undir forystu Sönnu Magdalenu Mörtudóttur, eykst um rúm þrjú prósentustig milli kannanna. Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn keppast enn um efsta sætið. 28.3.2026 09:41
Back to the Future-leikari látinn James Tolkan er látinn, 94 ára að aldri. Hann er best þekktur fyrir leik sinn sem skólastjórinn í þríleiknum Back to the Future. 28.3.2026 08:37