Sigvaldi frábær en Kiel best Landsliðsmaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson átti frábæran leik fyrir Kolstad þegar norska liðið kvaddi Meistaradeild Evrópu þetta árið með öruggum sigri á Pelister, 34-27. 6.3.2024 19:20
Orri úr frystinum í fremstu víglínu gegn Man. City Orri Steinn Óskarsson er í byrjunarliði FC Kaupmannahafnar í seinni leik liðsins við meistara Manchester City í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld. 6.3.2024 19:04
Neyddust til að fresta vegna brunans Búið er að fresta mikilvægum leik í baráttunni um sæti í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, sem fara átti fram í kvöld, vegna mikils bruna nærri St Mary‘s, heimavelli Southampton. 6.3.2024 18:32
Southgate og Frank í sigti Man. Utd Bandaríski íþróttamiðillinn ESPN hefur heimildir fyrir því að nýir forráðamenn Manchester United séu með þrjá stjóra til skoðunar sem mögulega arftaka Hollendingsins Eriks ten Hag. 6.3.2024 18:01
Fast skot og olnboginn enn að angra Viktor Gísla Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson varð að hætta við þátttöku í vináttulandsleikjunum við Grikkland síðar í þessum mánuði, vegna meiðsla í olnboga. 5.3.2024 17:30
Dagur kom á óvart og sleppti stórstjörnu Dagur Sigurðsson hefur nú valið sinn fyrsta landsliðshóp sem þjálfari króatíska landsliðsins í handbolta. Mesta athygli vekur að hann skyldi ekki velja eina stærstu stjörnuna, Luka Cindric, í 21 manns hóp sem á að tryggja Króatíu sæti á Ólympíuleikunum. 5.3.2024 15:31
Þórir og Mörk sammála um skort á heiðarleika Ein af helstu stjörnum norska kvennalandsliðsins í handbolta, Nora Mörk, leyndi því fyrir þjálfaranum Þóri Hergeirssyni hve alvarleg meiðsli hennar væru, á HM í desember. Þau eru sammála um skort á heiðarleika af hennar hálfu. 5.3.2024 14:02
Oddur frá Þýskalandi heim í Þór: „Sýnir ótrúlega tryggð“ Hornamaðurinn og fyrrverandi landsliðsmaðurinn Oddur Gretarsson snýr aftur heim til Þórs á Akureyri næsta sumar og mun spila með liðinu á næstu leiktíð. 5.3.2024 12:03
Nýliðar Vestra lönduðu reyndum markverði Nú þegar rúmur mánuður er í að Vestri spili sína fyrstu leiki í Bestu deild karla í fótbolta hafa nýliðarnir tryggt sér nýjan markvörð, frá Svíþjóð. 4.3.2024 17:00
Tímamótatitill Sólar og fullkomin helgi Inga Óhætt er að segja að spennan hafi verið mikil í úrslitaleikjunum á Íslandsmótinu í borðtennis um helgina. Hin 18 ára gamla Sól Kristínardóttir Mixa varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn og sú fyrsta úr BH, Badmintonfélagi Hafnarfjarðar, til að landa titlinum. 4.3.2024 16:31