Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Sindri Sverrisson skrifar 4. október 2026 21:56 Heimir Hallgrímsson var stoltur af sínum mönnum að hafa ekki látið plata sig út í einhverja vitleysu. Samsett/Getty Minnstu mátti muna að upp úr syði í hálfleik leiks Írlands og Ísraels í Serbíu í kvöld, í Þjóðadeildinni í fótbolta. Eftir leik biðlaði Heimir Hallgrímsson til UEFA um að koma í veg fyrir að þjóðirnar mættust aftur í framtíðinni.
Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en þegar liðin gengu til búningsklefa í hálfleik, þegar Írar voru 1-0 yfir, var allt á suðupunkti samkvæmt írskum miðlum. Blaðamenn Irish Times og Irish Independent segja að Damien Doyle, einn aðstoðarmanna Heimis, hafi sakað leikmann Ísraels um að hrækja á hann. Þessu hafi serbneskir öryggisverðir orðið vitni að. Ireland fitness coach Damien Doyle was allegedly spat on by an Israeli player at half-time, according to reports in the stadium in Serbia. The Irish media are reporting that the incident took place as the players and staff made their way down the tunnel. @SkySportsNews has contacted the FAI and UEFA. https://t.co/qcFJM0I1FM— Anthony Joseph (@AnthonyRJoseph) October 4, 2026 Spænski dómarinn Juan Martínez Munuera mun svo hafa skorist í leikinn og hvatt báða hópana til að sýna stillingu og hafa vit á að koma sér inn í búningsklefa. Heimir var bersýnilega feginn í viðtali eftir leik yfir því að nú væru leikirnir við Ísrael loksins að baki. „Það hafa komið upp mörg atvik sem hefðu getað stigmagnast. Við vorum bara nógu snjallir til að stöðva þau áður en þau gengu of langt. Ég fann að það var ætlunin – að reyna að espa okkur og fá okkur til að gera eitthvað heimskulegt. Ég hrósa leikmönnunum mikið, þeir höfðu stjórn á tilfinningum sínum,“ sagði Heimir við RTE. Ekki mörg lönd sem styðja Palestínu jafn mikið Aðspurður hvort honum fyndist að Írland og Ísrael ættu að geta mæst í komandi keppnum svaraði Eyjamaðurinn með skýrum hætti: „Nei, það ættu þau ekki að gera. Það er ekki okkar að ákveða það, það er UEFA sem ákveður það. Það er augljóslega mikill stuðningur við Palestínu á Írlandi. Það eru ekki mörg lönd sem styðja Palestínu jafn mikið og Írland gerir. Ég myndi ekki óska neinu landsliði að ganga í gegnum það sem við höfum gengið í gegnum þessar tvær vikur. Kannski þarf UEFA að grípa inn í og gera eitthvað,“ sagði Heimir. Úrslit kvöldsins þýða að Austurríki er efst í riðlinum með átta stig, Írland og Kósovó eru með fimm stig hvort en Ísrael neðst með tvö stig. Eini sigur Íra til þessa var 3-0 sigurinn gegn Ísrael í Ungverjalandi fyrir viku. Heimir kvaðst eftir leik sáttur með stigasöfnunina og feginn að þurfa ekki lengur að hugsa um leikina við Ísrael. Í nóvember bíða aðeins leikir við Austurríki og Kósovó. „Mér finnst við vera betri en Ísrael, en við sýndum það ekki í seinni hálfleik, ég veit ekki af hverju,“ sagði Heimir í viðtali strax eftir leik. „Mér fannst seinni hálfleikurinn bara ekki vera góður fótboltaleikur af hálfu beggja liða. Sennilega þreyta, bæði andleg og líkamleg, eins og ég hef sagt áður. Þetta var erfið landsliðsferð, jafnvel án allra umræðna og fíaskósins. Við erum núna búnir að spila í fjórum löndum, fjögur millilandaflug, allir leikirnir og allt sem hefur gerst. Ég held að við getum verið ánægðir með stigin sem við höfum. Ég er aðallega ánægður með að þessu sé lokið og að við getum einbeitt okkur að næsta mánuði þegar við spilum tvo leiki og getum enn unnið riðilinn. Ég hefði þegið það fyrir þessa landsliðstörn,“ sagði Heimir.
Þjóðadeild karla í fótbolta Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Mest lesið Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira