Arnar Númi í Árbæinn Knattspyrnumaðurinn Arnar Númi Gíslason, sem á að baki 22 leiki fyrir yngri landslið Íslands, er genginn í raðir Fylkis frá Breiðabliki. 1.3.2024 16:31
Liverpool þarf að bíða eftir Salah Mohamed Salah á við meiðsli að stríða og verður ekki með Liverpool þegar liðið mætir Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á morgun. 1.3.2024 16:00
Lýsir ráðningu Dags sem dauðadómi Ekki eru allir jafnhrifnir af komu Dags Sigurðssonar inn í króatískan handbolta en hann er fyrsti erlendi þjálfarinn til að taka við stjórn króatíska landsliðsins, sem um árabil var eitt það allra besta í heimi. 1.3.2024 13:01
Hætti Dagur sem sá launahæsti í heimi? „Króatíski samningurinn ekki í námunda við hinn“ Handboltaþjálfarinn Dagur Sigurðsson viðurkennir að með því að hætta að þjálfa Japan en taka þess í stað við Króatíu muni hann lækka mikið í launum. Starfið sé hins vegar mjög ólíkt. 1.3.2024 11:00
„Vildi að við hefðum sömu samkeppni í öðrum stöðum“ Miðjumaðurinn ungi Kristian Nökkvi Hlynsson hefur heillað með framgöngu sinni hjá hollenska stórliðinu Ajax í vetur. En dugar það til þess að hann verði á miðjunni gegn Ísrael eftir þrjár vikur, með möguleika á EM-sæti og 1,4 milljarða króna í húfi? 1.3.2024 10:31
„Ég er að fara í ljónagryfjuna“ Ljóst er að pressan verður mikil á Degi Sigurðssyni sem fyrsta erlenda þjálfara landsliðs Króatíu í handbolta. Dagur er maðurinn sem Króatar treysta á að færi þeim Ólympíuleika í sumar og velgengni á heimavelli á HM í janúar. 1.3.2024 08:01
Dagur fær íslenskan reynslubolta til að hjálpa sér Dagur Sigurðsson þarf að hafa snör handtök sem nýr landsliðsþjálfari Króatíu í handbolta því eftir hálfan mánuð ætla Króatar að tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum í París í sumar. Hann fær íslenskan reynslubolta og gamlan lærisvein til að hjálpa sér. 29.2.2024 22:57
„Allir á Íslandi verða að trúa“ Landsliðsþjálfarinn Åge Hareide vill ekki heyra neitt bölsýnistal í aðdraganda leikjanna sem gætu skilað Íslandi á sjálft Evrópumótið í Þýskalandi í sumar. Staðan á leikmönnum liðsins mætti þó vera mun betri. 29.2.2024 13:31
Aron og Gylfi að falla á tíma: „Miklum vandkvæðum háð að velja þá“ Åge Hareide, landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, segist ekki koma til með að velja Gylfa Þór Sigurðsson eða Aron Einar Gunnarsson í EM-umspilið, eftir þrjár vikur, nema að þeir verði farnir að spila fyrir félagslið. 29.2.2024 11:00
Gæti valið Albert að nýju: „Verð að treysta leikmanninum“ Albert Guðmundsson getur að óbreyttu á ný spilað fyrir Íslands hönd þegar liðið mætir Ísrael eftir þrjár vikur, í umspili um sæti á EM í fótbolta. Åge Hareide landsliðsþjálfari segir Albert hafa fullan hug á því að snúa aftur í liðið, eftir hálfs árs fjarveru, í kjölfar þess að kynferðisbrotamál gegn honum var látið niður falla. 29.2.2024 08:00