Snorri Steinn gæti spilað í kvöld: „Ég er í fínu formi“ Tímabilið er undir hjá Íslandsmeisturum Vals í kvöld þegar þeir mæta Haukum öðru sinni í 8-liða úrslitum Olís-deildar karla í handbolta. Þjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson verður mögulega með í leiknum vegna meiðsla í herbúðum Vals. 19.4.2023 12:00
Besta spáin 2023: Skagfirsk sveifla upp og niður Tindastólskonur sáu til þess í fyrra að fyrsta tímabil liðsins í efstu deild, sumarið 2021, yrði ekki eitthvað einstakt tilvik. Þær eru mættar aftur í deild þeirra bestu en líkt og síðast má búast við þungum róðri í Skagafirði við að halda liðinu uppi. 19.4.2023 11:01
Dagur og Snorri voru til í að stýra landsliðinu saman Það hefur gengið hægt hjá forkólfum Handknattleikssambands Íslands að finna arftaka Guðmundar Guðmundssonar í starf landsliðsþjálfara karla. Stjórn sambandsins virðist hafa gefið sér góðan tíma í verkefnið en seinagangurinn hefur þegar orðið til þess að góðir kostir hafa verið útilokaðir. 19.4.2023 08:00
Bronsliði Blika spáð titlinum en Keflavík spáð falli Breiðablik verður Íslandsmeistari og nýliðar FH halda sæti sínu í Bestu deild kvenna í fótbolta, samkvæmt spá þjálfara, fyrirliða og formanna félaganna tíu í deildinni. 18.4.2023 15:39
Geðþóttaákvörðun IHF gæti skilað Íslandi á HM Íslenska kvennalandsliðið í handbolta á enn möguleika á að komast á HM í desember, þrátt fyrir tapið gegn Ungverjalandi í umspili um sæti á mótinu. 18.4.2023 15:24
Fundurinn með HSÍ vísir að leikriti: „Ekki að fara að vinna með þessum mönnum“ Það virðist orðið útilokað að Dagur Sigurðsson verði næsti landsliðsþjálfari karla í handbolta. Hann var fyrsti maðurinn sem að forkólfar HSÍ ræddu við eftir brotthvarf Guðmundar Guðmundssonar en segir fund með þeim hafa minnt á leikþátt og hefur ekki áhuga á að vinna með þeim. 18.4.2023 11:44
Everton vongott um háar bætur vegna Gylfa Everton sér fram á að fá 10 milljónir punda í bætur vegna stöðunnar sem skapaðist þegar Gylfi Þór Sigurðsson var handtekinn af lögreglu í Manchester í júlí 2021, nú þegar ljóst er að Gylfi er laus allra mála. 17.4.2023 16:07
Patrik varar við því að nú gæti olnbogaskotum fjölgað Patrik Johannesen, sóknarmaður Breiðabliks, segir að það verði mikið um olnbogaskot í Bestu deildinni í fótbolta í sumar fari dómarar sömu leið og gert var í leik Breiðabliks og Vals í gær. 17.4.2023 15:29
Allt undir í Ólafssal í kvöld: „Vil frekar að menn prjóni yfir sig“ Það ræðst í kvöld hvort lið Hauka eða Þórs úr Þorlákshöfn fer í sumarfrí og um leið verður ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum Subway-deildar karla í körfubolta. Máté Dalmay, þjálfari Hauka, vill frekar að sínir menn „prjóni aðeins yfir sig“ en að þeir mæti til leiks eins og í Þorlákshöfn á laugardaginn. 17.4.2023 15:00
„Hann fær þessi ár ekki aftur“ „Hann fær aldrei aftur möguleika á að spila þessi tvö ár sem nú eru liðin. Maður veit því aldrei hvað hefði getað orðið,“ segir Arnar Sveinn Geirsson, formaður Leikmannasamtaka Íslands, um Gylfa Þór Sigurðsson sem eftir tæplega tveggja ára bið er nú laus allra mála í Bretlandi. 14.4.2023 12:50