Niðursveiflan heldur áfram hjá Aroni og félögum Al Arabi, lið Arons Einars Gunnarssonar, hefur tapað fjórum af síðustu fimm leikjum sínum í katörsku úrvalsdeildinni í fótbolta. 17.1.2022 15:33
„Líður eins og íþróttamanni aftur“ Eftir þriggja ára þrautagöngu vegna meiðsla er hlaupakonan Aníta Hinriksdóttir, einn nýjasti liðsmaður FH, vongóð um bjartari tíma. Þessi fyrrverandi heims- og Evrópumeistari ungmenna í 800 metrahlaupi þarf þó að sneiða framhjá ýmsum æfingum vegna meiðslanna. 17.1.2022 12:00
Umfjöllun: Ísland - Holland 29-28 | Sluppu með skrekkinn gegn strákunum hans Erlings Ísland vann Holland, 29-28, í öðrum leik sínum í B-riðli Evrópumóts karla í handbolta í kvöld. Íslendingar eru því með fjögur stig, fullt hús stiga, á meðan Hollendingarnir hans Erlings Richardssonar eru með tvö stig. 16.1.2022 22:10
„Er ekki hvort sem er hundleiðinlegt að vera á Íslandi núna?“ „Þetta var drullusætt,“ sagði Eyjamaðurinn Elliði Snær Viðarsson sem naut þess í botn að spila fyrir framan háværa áhorfendur í Búdapest í kvöld, á EM í handbolta. 16.1.2022 21:40
„Stemningin var þeirra megin og við áttum mjög erfitt með að komast í þennan gír í lokin“ „Það er ógeðslega gaman að vinna og sérstaklega fyrir íslenska landsliðið,“ sagði Sigvaldi Björn Guðjónsson sem valinn var maður leiksins annan leikinn í röð, í sigri Íslands gegn Hollandi á EM í kvöld. 16.1.2022 21:29
„Vorum aldrei að fara að tapa þessu“ „Þetta var rock solid frammistaða hjá okkur. Í vörn og sókn. Við hikstuðum kannski smá þegar þeir fóru í 5-1 vörn. Ég er mjög sáttur með þetta,“ sagði fyrirliðinn Aron Pálmarsson eftir sigurinn gegn Portúgal á EM í kvöld. 14.1.2022 21:35
Umfjöllun: Portúgal - Ísland 24-28 | Hófu EM af fítonskrafti Íslenska karlalandsliðið í handbolta byrjaði Evrópumótið með besta mögulega hætti í Búdapest í kvöld þegar liðið vann sannfærandi sigur á Portúgal, 28-24. 14.1.2022 21:28
Enn á ný fær Jóhann ekki að spila vegna veirusmita Leik Burnley og Leicester sem fara átti fram um helgina hefur verið frestað vegna kórónuveirusmita í herbúðum Burnley. 14.1.2022 11:23
FH fær liðsstyrk úr Breiðholti Knattspyrnumaðurinn Máni Austmann Hilmarsson er genginn í raðir FH frá Leikni R. og hefur skrifað undir samning við Hafnarfjarðarfélagið sem gildir til næstu tveggja ára. 13.1.2022 17:01
Aldís Kara skráði nýjan kafla í listskautasöguna og fimmtán ára Rússi setti heimsmet Aldís Kara Bergsdóttir varð í dag fyrst Íslendinga frá upphafi til að keppa á Evrópumeistaramóti fullorðinna í listskautum, á EM í Tallinn í Eistlandi. 13.1.2022 16:30