Stórsigur Newcastle en O'Neil gæti fengið sparkið Newcastle kom sér aftur á sigurbraut í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta með 4-0 stórsigri gegn Leicester, sem þar með tapaði í fyrsta sinn undir stjórn Ruud van Nistelrooy. Wolves tapaði 2-1 á heimavelli gegn Ipswich svo dagar Gary O‘Neil gætu verið taldir. 14.12.2024 17:06
Arsenal fann enga leið gegn Everton Arsenal varð að sætta sig við markalaust jafntefli á heimavelli gegn Everton í dag, í bragðdaufum leik í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. 14.12.2024 16:45
Mikil spenna í Eyjum ÍBV og Íslandsmeistarar FH gerðu jafntefli, 26-26, í miklum spennuleik í Olís-deild karla í handbolta í Vestmannaeyjum í dag. 14.12.2024 15:08
Sveindísi enn á ný skellt á bekkinn þrátt fyrir fernuna Sveindís Jane Jónsdóttir hefur aðeins byrjað tvo deildarleiki fyrir Wolfsburg í Þýskalandi í vetur og það breyttist ekki í dag, þrátt fyrir fernuna sem hún skoraði gegn Roma á metttíma í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í vikunni. 14.12.2024 14:59
Ljóst hvar stórmótin í kringum HM á Íslandi verða Handknattleikssamband Evrópu, EHF, greindi frá því í dag hvar EM karla 2030 og 2032 verða haldin, og hvar EM kvenna 2032 verður haldið. Engar þjóðir sóttu um að halda EM kvenna 2030 og því óvíst hvar það fer fram. 14.12.2024 13:32
Settu Íslandsmet í nýrri grein á HM Boðsundssveit Íslands endurtók leikinn frá því í gær og setti nýtt Íslandsmet í dag, á næstsíðasta degi heimsmeistaramótsins í sundi í 25 metra laug, sem fram fer í Búdapest. Það var þó í raun óhjákvæmilegt að setja met í dag. 14.12.2024 13:12
Jólagleði Liverpool hætt vegna fíkniefna Jólagleði starfsfólks enska knattspyrnufélagsins Liverpool var stöðvuð, fyrr en ella, eftir að áhöld til fíkniefnaneyslu fundust inni á snyrtingu. 14.12.2024 12:31
Mbappé gæti mætt í Dalinn í október en óvíst hvar Ísland endar Leikjadagskrá Íslands í undankeppni HM 2026 liggur nú fyrir og ljóst er að von er á fótboltastjörnum í Laugardalinn í október á næsta ári. 14.12.2024 11:47
„Nenni ekki að hlusta á þetta væl“ Óhætt er að segja að Jón Halldór Eðvaldsson taki ekki undir þá gagnrýni sem sett hefur verið fram á mikinn fjölda erlendra leikmanna í efstu deildum Íslands í körfubolta. Hann kveðst hundleiður á umræðu um þessi mál. 14.12.2024 10:30
„Eflaust fullur eftirsjár þegar þessu lýkur“ „Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá hef ég ekki tölu á hve margir úrslitaleikirnir eru orðnir,“ sagði Þórir Hergeirsson við NRK í gærkvöld, eftir að hafa stýrt Noregi til öruggs sigurs á Ungverjum í undanúrslitum EM kvenna í handbolta. 14.12.2024 10:02