fréttastjóri

Sunna Sæmundsdóttir

Sunna er fréttastjóri á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Græn­lendingar gætu verið í lykil­stöðu

Danir ganga að kjörborðinu í þingkosningum í dag og mjótt er á munum milli rauðu og bláu blokkarinnar samkvæmt könnunum. Grænlendingar kjósa einnig tvo fulltrúa inn á danska þingið og fyrrverandi formaður jafnaðarmannaflokksins þar í landi segir stuðning þeirra geta reynst mikilvægan.

Fylgi Sam­fylkingar ekki verið minna í eitt ár

Fylgi Samfylkingarinnar dregst saman í nýrri könnun Maskínu og mælist um tuttugu og fimm prósent. Fylgið hefur ekki verið minna í eitt ár og hefur minnkað um sex prósentustig frá því að flokkurinn flaug hæst í september í fyrra. Samfylkingin er þó enn langstærst og á eftir henni er Miðflokkur sem mælist með um átján prósent.

Glæ­ný könnun, ó­veðrið og sjálfkeyrandi bílar

Í kvöldfréttum sjáum við glænýja könnun Maskínu á fylgi flokkanna. Fylgið hefur verið á hreyfingu og við sjáum hvernig það stendur í dag. Þá förum við út í óveðrið og heyrum í fulltrúa björgunarsveitanna sem hafa staðið í ströngu við að aðstoða ökumenn í dag. Vegir eru víða lokaðir og flugferðir innanlands voru felldar niður.

Faðir um brunann á Stuðlum, upp­gjör í undir­heimum og for­sendu­brestur

Faðir drengs sem lést í eldsvoða á Stuðlum segir að kerfið sem átti að bjarga barninu sínu hafi drepið það. Við ræðum við föðurinn í kvöldfréttum og förum yfir rannsókn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem var birt í dag. Þar kemur fram að koma hefði mátt í veg fyrir mannslát ef brunavarnir hefðu verið virkar.

Um­deild mál­sókn, sviptingar í fjöl­miðlum og verð­hækkanir

Íslendingar skipa sér í hóp með öfgaríkjum með þátttöku í málsókn Suður-Afríku gegn Ísrael að mati formanns Miðflokksins. Ákvörðunin muni óhjákvæmilega hafa afleiðingar í samskiptum við bandamenn Íslendinga. Utanríkisráðherra segir Ísland standa með alþjóðalögum. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum.

Sjá meira