Blendnar tilfinningar á Degi íslenskrar náttúru Haldið er upp á Dag íslenskrar náttúru í dag, sem framkvæmdastjóri Landverndar segir að sé jafnan fagnaðarefni. Í ár séu tilfinningar hins vegar blendnar vegna svikinna loforða stjórnmálamanna í leyfisveitingum fiskeldisfyrirtækja, uppbyggingu vindorkuvera og umdeildra orða umhverfisráðherra, sem sagðist í ræðu í gær telja það „trömpískt“ að sjá ekki fegurð í vindmyllunum. 16.9.2026 14:38
Telur ekki tímabært að leggja fram miðlunartillögu Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari telur ekki tímabært að leggja fram miðlunartillögu í kjaradeildu Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair að svo stöddu, enda séu engir formlegir samningafundir fyrirsjáanlegir að svo komnu máli. 16.9.2026 07:51
Áfall að sjá dæmdan kynferðisbrotamann fyrir utan heimilið Fjölbreyttur hádegisfréttatími er framundan á Bylgjunni. Þar ber hæst að móðir sem lagði fram kæru gegn starfsmanni leikskóla í Múlaborgarmálinu segir það hafa verið enn eitt áfallið að sjá brotamanninn fyrir utan heimili sitt tæpum fimm mánuðum eftir að maðurinn var fundinn sekur um kynferðisbrot gegn barni. Rætt er við móðurina í fréttatímanum. 15.9.2026 11:52
Rússneskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu Tveimur blysum var skotið frá rússnesku skipi á danska herþyrlu sem var við reglulegt eftirlit í gær. Danska utanríkisráðuneytið hefur kallað rússneska sendiherrann á sinn fund vegna uppákomunnar. 15.9.2026 08:32
Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir útlitið ekki gott með tilliti til yfirvofandi verkfalls flugvirkja. Icelandair hafi lagt til að gerðardómsleið verði farin í deilunni en ekkert hafi verið ákveðið. Verkfall myndi hafa áhrif á þúsundir ferðamanna. 15.9.2026 08:09
Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Fjölbreytttur hádegisfréttatími er framundan á Bylgjunni, en fyrst verður fjallað um hvalveiðar. Stjórnvöld Vestanhafs hafa hótað því að leggja tolla á íslenskan innflutning vegna veiðanna, samkvæmt heimildum fréttastofu. Þá hafa hótanir einnig borist frá Evrópusambandsríkjum. Atvinnuvegaráðherra hyggst leggja til að hvalveiðar verði bannaðar í frumvarpi sem verður lagt fram eftir áramót og segir bæði viðskiptahagsmuni þjóðarinnar og dýravelferð undir í málinu. 14.9.2026 11:45
Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Skordýraleifar hafa fundist í einni framleiðslulotu af River-hrísgrjónum og varar Matvælastofnun neytendur við neyslu þeirra. 11.9.2026 18:57
„Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og fyrrverandi fjármálaráðherra, segir boðuð fjárlög ekki senda góð skilaboð inn í kjaraviðræður. Þungt hljóð sé í atvinnurekendum vegna efnahagsástandsins og boðaðar skattahækkanir hjálpi ekki til. 7.9.2026 21:28
Klórar sér í kollinum Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambands Íslands segist klóra sér í kollinum yfir fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár. Hann segir að við fyrstu sýn virðist frumvarpið gera lítið fyrir kjomandi kjaraviðræður, áhrif á persónuafslátt og barnabætur séu sérlega vond. 7.9.2026 15:35
Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs Hádegisfréttir á Bylgjunni eru sagðar á slaginu klukkan tólf, en þar ber hæst að tuttugu prósent þeirra sem eru á kjörskrá hafa þegar greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhald viðræðna við Evrópusambandið. 28.8.2026 11:30