Íhaldsflokkurinn í sterkri stöðu fyrir kosningarnar Íhaldsflokkurinn er með gott forskot nú þegar það styttist í þingkosningar á Bretlandi. Leiðtogar mættust í kappræðum í gærkvöldi. 20.11.2019 19:00
Stjórnandi hjá NPR segir bandarískt fjölmiðlaumhverfi erfitt Loren Mayor, einn æðsti yfirmaður bandaríska almenningsútvarpsins NPR, segir vandvirkni nú afar mikilvæga fyrir blaðamenn. 19.11.2019 18:45
Eldsprengjur og táragas við tækniháskólann Lögregla kínverska sjálfsstjórnarsvæðisins Hong Kong gerði í dag áhlaup á mótmælendur sem reyndu að draga athygli lögregluþjóna frá háskóla í borginni. Þar hafa mótmælendur hreiðrað um sig og setið fastir undanfarna daga. 18.11.2019 20:15
Eins og að horfa á mann sökkva í kviksyndi Lögmaður fimm þolenda barnaníðingsins og auðjöfursins Jeffreys Epstein segir að viðtal BBC við Andrés Bretaprins, vin Epsteins, um ásakanir gegn prinsinum hafi verið hamfarakennt. 18.11.2019 18:45
Sílemenn kjósa um nýja stjórnarskrá Stærstu stjórnmálaflokkar Síle sammældust í dag um að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá. 15.11.2019 22:00
Namibíumenn mótmæla spillingu Ráðherrar dómsmála og sjávarútvegsmála hafa nú þegar sagt af sér vegna meintrar mútuþægni. 15.11.2019 20:30
Norðmenn fjalla um þátt DNB í Samherjamálinu Samherjamálið hefur vakið mikla athygli í Noregi. Fjölmiðlar í landinu hafa undanfarna daga fjallað um ásakanir um að Samherji hafi greitt mútur í gegnum norska ríkisbankann DNB. 15.11.2019 18:30
Morales biðlar til Sameinuðu þjóðanna Evo Morales kallar eftir því að Sameinuðu þjóðirnar og kaþólska kirkjan miðli málum í Bólivíu eftir að her landsins knúði hann til þess að segja af sér sem forseti um síðustu helgi. 15.11.2019 18:15
Pokabjörn leit dagsins ljós Mikil gleði var í dýragarði áströlsku borgarinnar Melbourne þegar ungur pokabjörn gægðist í fyrsta sinn út úr poka móður sinnar. 14.11.2019 19:00
Ráðgjafagreiðslur og aflandsfélög: Samherjamálið útskýrt Eitt umsvifamesta sjávarútvegsfyrirtæki Íslands, Samherji, er sakað um að hafa borið fé á namibíska embættismenn til að komast yfir kvóta þar í landi. Fyrrverandi starfsmaður Samherja í Afríku kom skjölum til Wikileaks og sagði frá aðferðum sínum og Samherja í Kveiki á Ríkisútvarpinu í gærkvöldi. 13.11.2019 21:00