Óverðtryggð íbúðalán greidd upp í fyrsta sinn í sex ár Uppgreiðslur óverðtryggðra íbúðalána í desember voru meiri en veiting nýrra lána af sama tagi en þetta var í fyrsta sinn í sex ár sem hrein ný óverðtryggð íbúðalán í bankakerfinu voru neikvæð í einum mánuði. 25.1.2023 16:02
„Skynsamlegt“ að ÍL-sjóður fái að fjárfesta í hlutabréfum og innviðum Það kann að vera skynsamlegt að veita ÍL-sjóði, sem á í dag meira en 500 milljarðar króna í formi innlána og krafna á hendur hinu opinbera, heimild til að fjárfesta allt að 40 prósentum af eignasafni sínu í hlutabréfum og innviðauppbyggingu, að sögn greinanda. Þannig verður eignasafnið vel dreift, áhættufælið og ætti að gefa hærri ávöxtun en það gerir í dag. 25.1.2023 08:25
ÍL-sjóður gæti fengið auknar fjárfestingaheimildir ef viðræður renna út í sandinn Ef ekki tekst að gera ÍL-sjóð upp með samkomulagi við skuldareigendur eða með slitum gæti sjóðurinn fengið auknar fjárfestingaheimildir svo að takmarka megi það tjón sem hann verður fyrir vegna neikvæðs vaxtamunar. 24.1.2023 08:50
Stórauknar vaxtatekjur bankanna vega upp á móti minnkun annarra tekna Útlit er fyrir að vaxtatekjur stóru viðskiptabankanna sem eru skráðir á markað, Arion banka og Íslandsbanka, hafi stóraukist milli ára á fjórða ársfjórðungi 2022 ef marka má afkomuspár greinenda. Aukning vaxtatekna gerir bönkunum kleift að viðhalda hárri arðsemi á sama tíma og aðrir tekjustofna láta undan. 23.1.2023 14:01
Afstöðu bankanna ekki haggað með rökum eða fortölum, segir formaður SFF Samninganefnd Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, SFF, furðar sig á því að bankarnir telji sig geta sloppið minna en 6 prósenta aukningu launakostnaðar á meðan aðrar atvinnugreinar hafa horft upp á meira en 10 prósenta hækkun vegna nýrra kjarasamninga. Þetta kemur fram í frétt á vef samtakanna sem sjá ekki fram á að ná árangri í viðræðunum „með rökum eða fortölum“. 20.1.2023 12:40
Tenging við rússneskan ólígarka tafði kaup Rapyd á Valitor Yfirtaka fjártæknifélagsins Rapyd á Valitor tafðist í meðförum fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands eftir að í ljós kom að einn stærsti eigandi Rapyd væri tengdur rússneskum ólígarka og samkvæmt heimildum Innherja var gerð krafa um að tengslin yrðu rofin. Einn af stofnendum Target Global lét af störfum undir lok síðasta árs. 20.1.2023 08:05
Ardian opið fyrir frekari fjárfestingu á Íslandi Franska sjóðstýringarfyrirtækið Ardian, sem gekk nýverið frá kaupunum á Mílu, er opið fyrir því að fjárfesta í fleiri innviðum hér á landi ef slík tækifæri bjóðast, að sögn framkvæmdastjóra félagsins. Nýr innviðasjóður Ardian var kynntur fyrir innlendum lífeyrissjóðum undir lok síðasta árs. 19.1.2023 07:01
Lífeyrissjóðum stafar sífellt meiri ógn af netárásum Hættan sem stafar af netárásum fer vaxandi og það er aðeins tímaspursmál hvenær netárásir á lífeyrissjóði eða fjármálafyrirtæki bera árangur og valda þeim tjóni. Þetta segir Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs. 18.1.2023 13:01
Hið árvissa metnaðarleysi í málefnum fjölmiðla Þrátt fyrir að ekki finnist vottur af eftirspurn, hvorki frá hinum endanlegu gefendum né þeim þiggjendum sem mestu máli skipta, hefur ráðherra tekist að festa styrkjakerfið í sessi. Nú er orðinn árviss viðburður að frumvarp þess efnis sé lagt fram við dræmar undirtektir og á hverju ári er hægt að slá því föstu að ráðherra láti hjá líða að takast á við orsök versnandi rekstrarumhverfis fjölmiðla, þ.e. umsvif erlendra miðla og Ríkisútvarpsins. 17.1.2023 13:41
Mesta aukning útsvarstekna í sex ár Útsvarstekjur sveitarfélaga og Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga námu 293 milljörðum króna á árinu 2022 og jukust um nærri 12 prósent milli ára. Ekki hefur sést jafnmikil aukning milli ára frá árinu 2016 samkvæmt nýjum tölum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um greidda staðgreiðslu. 17.1.2023 09:01