„Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Skemmdarverk á regnbogafánum við kirkjur eru orðin fastur og sorglegur árlegur liður í aðdraganda hinsegin daga. Þetta segir biskup Íslands sem segir sárt að sjá svo illa farið bæði með íslenska fánann og hinsegin fánann. 8.7.2026 11:10
Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Áfengisauglýsingar á samfélagsmiðlum og í hlaðvörpum hjá áhrifavöldum og öðrum opinberum persónum hafa aukist til muna undanfarin ár. Forvarnarsérfræðingur segir stjórnvöld hafa brugðist og kallar eftir því að áhrifavaldar axli ábyrgð. 7.7.2026 20:32
Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar, sem hefur fylgt Bandero, skipi Paul Watson-samtakanna, eins og skugginn síðustu daga hefur nú yfirgefið þau mið sem Bandero heldur sig á og sinnir öðrum verkefnum. Þar á meðal er vatnsskortur í Flatey. 7.7.2026 13:02
„Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ „Ég bara ítreka það að þetta eru náttúrulega alvarlegar ásakanir. Ef menn eru komnir í slíkt rökþrot þegar þeir fara í persónuna í staðinn fyrir málefnið þá held ég að menn séu bara komnir á slæman stað.“ 7.7.2026 12:36
Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Björgunarsveitir halda nú að Krýsuvíkurbjargi þar sem lamb hefur komið sér í sjálfheldu. Björgunarsveitarmenn ætla þar að athuga hvort hægt sé að síga niður til lambsins og bjarga því, þar sem dýrið er fast í fuglabjargi. 5.7.2026 17:57
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Brotist var inn á vinnustofu Karenar Briem og Antons Lyngdal aðfaranótt laugardags og ýmsum tólum og listaverkum stolið þar í skjóli nætur. Hugleikur Dagsson segir að þjófarnir muni skila þýfinu ef einhver heiður er eftir meðal meðlima undirheimanna og hótar að siga Bubba Morthens á þá ef ekki verður af því. 5.7.2026 15:58
„Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Yfirlögregluþjónn á Vesturlandi er sáttur eftir tónlistarhátíðina Lopapeysuna sem fór fram á Akranesi um helgina. Gönguhópar skiluðu sínu. 5.7.2026 13:54
Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Teiti Þorkelssyni leiðsögumanni brá í brún í morgun þegar hann lagði leið sína að Krýsuvíkurbjargi. Þar tók á móti honum hið vanalega mávagarg og önnur fuglahljóð en hann furðaði sig á því þegar hann heyrði jarm óma um kletta og björg. 5.7.2026 13:32
Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Í hádegisfréttum á Bylgjunni kynnum við okkur vofveiflegt andlát karlmanns á áttræðisaldri sem lést í tjaldi á Suðurlandi í gær. Svo virðist sem að um gaseitrun hafi verið að ræða en eiginkona hans var flutt þungt haldin frá vettvangi. 5.7.2026 11:53
Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Slys varð á Bryggjuhátíðinni á Stokkseyri í gær þegar ein fjögurra stoða hringekju gaf sig. Tækið er búið svokölluðum „bollum“ sem börnin setjast í og er síðan snúið í hringi. 5.7.2026 11:38