Selenskí varar við „kjarnorku hörmung“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kom fram fyrir þingi Sameinuðu þjóðanna í New York í dag og sagði Rússland vera að skipuleggja frekari árásir gegn kjarnorkuverum Úkraínu og varaði viðstadda við „kjarnorku hörmung“. 25.9.2024 19:54
Gömul og óskráð skotvopn komi oft „frá afa“ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur heimsótt á þriðja hundrað manns það sem af er ári í reglubundnu eftirliti með skotvopnaeigendum. Lögreglan ítrekar að eigendur geti átt von á heimsókn frá lögreglu án fyrirvara til að kanna vörslur skotvopna og skotfæra. 25.9.2024 18:33
Konan komst úr bílnum af sjálfsdáðum Bifreið hjóna sem lentu í alvarlegu umferðarslysi við Fossá á Skaga í gær var á hvolfi ofan í Fossá þegar að lögregla og viðbragðsaðilar komu á vettvang. Hjónin óku eftir malarvegi en svo virðist sem að maðurinn sem lést hafi misst stjórn á bílnum og ekið út af. 25.9.2024 15:37
Vilja ályktun um stjórnarslit á dagskrá hjá VG „Landsfundur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn í Reykjavík 4. til 6. október 2024 ályktar að tímabært sé að horfa til þess að slíta ríkisstjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk.“ 24.9.2024 23:32
Skyldur vinnuveitenda gífurlegar í erfiðum málum „Varðandi MeToo-umræðuna. Að mörgu leyti hefur regluverkið ekki mikið breyst í gegnum tíðina. Kannski hefur verið skerpt aðeins á því hvað telst einelti og hvað er ofbeldi og slíkt en fyrirtækin eru að taka þetta miklu miklu fastari tökum og miklu meira formfast og rannsaka þetta með skipulögðum hætti. Málin eru bara svo flókin, það er engin ein leið rétt.“ 24.9.2024 22:47
Banaslys við Fossá Ökumaður bifreiðarinnar sem ók út af og valt við Fossá á Skaga, norðan Skagastrandar, um klukkan tvö í dag lést í slysinu. Farþegi í ökutækinu var fluttur með sjúkrabifreið á Sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar. 24.9.2024 20:59
Hafa rúmir opnunartímar áhrif á verðlag? Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, segir það mjög furðulegt ef matvöruverslanir myndu ekki stytta opnunartíma sína ef það gæti gert þeim kleift að lækka verð á matvörum. Hún telur það áhugavert álitamál og bendir á að matvöruverslanir eru með rúman opnunartíma hér á landi. 24.9.2024 20:04
Tveir í bílnum sem hafnaði utan vegar Tveir voru í ökutæki sem ók út af og valt við Fossá á Skaga, norðan Skagastrandar, um klukkan tvö í dag. Viðbragðsaðilar eru enn að störfum á vettvangi og hefur rannsóknarnefnd samgönguslysa verið kölluð til. 24.9.2024 17:55
Dularfullt „draugahljóð“ spillir fyrir svefni íbúa Dularfullt ýl eða flaut hefur leikið íbúa í Laugarneshverfi grátt síðustu misseri en óvíst er hvaðan hljóðið kemur. Íbúi í hverfinu segir hljóðið spilla fyrir svefni sínum og kvartar undan aðgerðarleysi heilbrigðiseftirlitsins við heilsuspillandi hávaða. 12.9.2024 21:02
Vonast til að fá vinnu að námi loknu Nýtt nám fyrir fólk með þroskahömlun og aðrar fatlanir hófst í vikunni en ráðist var í verkefnið til að auka atvinnuþátttöku fólks með mismikla starfsgetu. Námið býður upp á starfsþjálfun og fræðslu en nemendur sem fréttastofa ræddi við vonuðust til að verða leikskólakennarar eða starfa í félagsmiðstöð 12.9.2024 20:02