Ein leið í og úr hverfinu dragi úr öryggi íbúa Garðabær bíður núna eftir því að ná samkomulagi við Vegagerðina um endurbætur á Flóttamannaleiðinni svokölluðu. Til hefur staðið að tengja Urriðaholtsstræti og Holtsveg við veginn í tíu til fimmtán ár síðan að skipulag fyrir hverfið var gert. Eins og stendur er aðeins ein leið í og úr hverfinu. 4.7.2024 06:22
Fjórar ferðir vegna heilbrigðisþjónustu fást nú endurgreiddar Réttur fólks til að fá greiddan ferðakostnað þurfi það að sækja sér heilbrigðisþjónustu utan heimabyggðar miðast nú við fjórar ferðir á hverju almanaksári. 3.7.2024 15:15
Rannsókn lokið á máli sem snýr að Polar Nanoq Rannsókn á kynferðisbrotamáli sem á að hafa átt sér stað um borð í grænlenska frystitogaranum Polar Nanoq er nú lokið og málið komið á borð ákærusviðs ríkislögreglustjóra. 3.7.2024 14:07
Ólafía Hrönn reyndist vera á bak við „stóra pokamálið“ Evu Björk Úlfarsdóttur, kvensjúkdóma- og fæðingarlækni, var ansi brugðið í gær þegar tólf ára sonur hennar sneri heim tómhentur úr búðarferð. Hann hafði keypt snarl klukkan tíu í gærkvöldi í Nettó á Granda en lenti í veseni með að flytja matvörupokann heim á hjólinu sínu. 3.7.2024 11:11
Faglært starfsfólk og eftirlit skorti í búsetuúrræðum fyrir börn Eftirlit umboðsmanns Alþingis með Klettabæ og Vinakoti, einkarekin búsetuúrræði fyrir börn, leiddi í ljós að fagfólk hefur takmarkaða aðkomu að umönnun barna sem fá þar þjónustu frá degi til dags. 3.7.2024 09:00
Lenti með höfuðið á malbikinu þegar maður tók fram úr bílalest Guðmundur Erlendsson neyddist til nauðhemla á bifhjóli sínu er hann ók eftir þjóðvegi eitt um Langadal í átt að Akureyri á sunnudagskvöldið vegna bifreiðar á vegarhelmingi hans sem ók á móti honum úr gagnstæðri átt. Bifreiðin hafi þá ætlað að taka fram úr bílalest á hinum vegarhelmingnum. 2.7.2024 17:00
Landris nú hraðara en fyrir síðasta eldgos Kvikuflæði heldur áfram undir Svartsengi en hraði landriss mælist nú meiri en fyrir síðasta eldgos á Reykjanesinu sem hófst þann 29. maí og lauk 22. júní. Í tilkynningu á vefsíðu Veðurstofu Íslands kemur fram að líkur eru á öðru kvikuhlaupi eða eldgosi á næstu vikum eða mánuðum. 2.7.2024 16:16
Ríkisstjórnin líði fyrir efnahagsástandið Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, segir fylgistap flokksins ekki góð tíðindi og tekur fram að ríkisstjórnarflokkarnir líði fyrir háa verðbólgu og vaxtastig. Hann er vongóður um að fylgi flokksins aukist næsta vetur. 2.7.2024 13:04
Mögulega komnir úr landi en ekki ástæða til að lýsa eftir þeim Mennirnir tveir sem brutust inn í veitingasal Brunnhóls á Mýrum í Hornafirði þann 22. júní eru enn ófundnir og mögulega komnir úr landi. Lögreglan á Suðurlandi sér ekki ástæðu til að lýsa eftir mönnunum þrátt fyrir að vera með ljósmynd af þeim úr eftirlitsmyndavél gistiheimilisins. 2.7.2024 11:13
Dvaldi í tjaldi á hringtorgi þar til lögreglan kom Ungur maður tók upp á því að tjalda á hringtorgi í Mosfellsbæ á fimmtudaginn eftir að hafa tapað veðmáli. Hann dvaldi á hringtorginu í fimmtán klukkutíma þangað til að lögreglan kom og minnti hann á að hringtorgið væri ekki tjaldsvæði. 2.7.2024 07:00