Kári Stefánsson formaður í nýjum starfshóp Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem falið er að gera tillögur um hvernig staðið skuli að einstaklingsmiðaðri heilbrigðisþjónustu hér á landi. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, er formaður hópsins. 11.6.2024 15:33
Þyrla kölluð út vegna vélsleðaslyss við Langjökul Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út upp úr klukkan 13 í dag vegna vélsleðaslyss sem varð á Skálpnesi suðaustur af Langjökli. 11.6.2024 14:23
„Svartur dagur fyrir dýravelferð á Íslandi“ Dýraverndarsamband Íslands (DÍS) lýsir yfir vonbrigðum og harmar ákvörðun Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra sem veitti fyrr í dag Hval hf. leyfi til veiða á 128 langreyðum. Að mati sambandsins stangast lög um hvalveiðar frá árinu 1949 á við lög um dýravelferð. 11.6.2024 13:58
Segja ákvörðun Bjarkeyjar í berhöggi við stjórnarskrá Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) telja leyfið sem Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra veitti fyrr í dag til veiða á langreyðum sé í raun aðeins gefið út til málamynda. Matvælaráðherra leggi á ólögmætan hátt stein í götu sjálfbærra veiða á langreyðum með ákvörðuninni í berhöggi við stjórnarskrárvarin atvinnuréttindi Hvals hf. 11.6.2024 12:43
Loka vinnuskólanum og leikskólabörnum haldið innandyra Vinnuskóla Kópavogs auk Vinnuskóla Reykjavíkur var lokað í dag og starfsmenn sendir heim sökum slæmra loftgæða af völdum gosmengunar. Þá verður leikskólabörnum í Kópavogi haldið innandyra og ekki send í útivist í dag af sömu ástæðu. 11.6.2024 12:06
Landris hafið að nýju og má gera ráð fyrir öðru gosi Landris er hafið á nýjan leik undir Svartsengi en það þýðir að það muni líklegast gjósa aftur á Reykjanesi. Áttunda eldgosið sem stendur yfir um þessar mundir mun því líklegast ekki verða það síðasta á svæðinu. 11.6.2024 10:41
Flugvél varaforseta Malaví týnd Flugvél sem flutti varaforseta Malaví, Saulos Chilima, og níu aðra er týnd samkvæmt tilkynningu frá skrifstofu forseta í Malaví. 10.6.2024 16:34
Nefnir legókeppni sem mögulegt ráð við vanda drengja „Ég held að „svarið“ við veseni á strákunum sé ekki að skrifa fleiri bækur um fótbolta, (ofuráhersla á bolta og óhóflegt gláp feðra mætti jafnvel rannsaka sem hluta af vandamálinu). Allavega, skólafólk mætti skoða þessa keppni fyrir næsta ár, það er mikilvægt að stækka heimsmynd krakkanna með verkefnum að þessu tagi eða útskýra af hverju þeir kjósa að taka ekki þátt.“ 10.6.2024 16:07
Krefur úrskurðarnefnd upplýsingamála um upplýsingar Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir upplýsingum frá úrskurðarnefnd upplýsingamála um stöðu og fjölda mála hjá henni. Þá gagnrýnir umboðsmaður að málsmeðferðartími nefndarinnar hafi ekki verið lengri í átta ár en úrskurðum hefur einnig fækkað töluvert undanfarin ár. 10.6.2024 14:27
Lést af náttúrulegum orsökum Breski sjónvarpslæknirinn, Michael Mosley, sem fannst látinn í gær á grísku eyjunni Symi lést af náttúrulegum orsökum samkvæmt fyrstu krufningu sem var framkvæmd á líki hans í dag. 10.6.2024 13:34