Fréttamaður

Tómas Arnar Þorláksson

Tómas Arnar er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Tveir látnir eftir skot­á­rás í Noregi

Mikill viðbúnaður lögreglu var í bænum Halden í morgun eftir skotárás þar sem tveir létust og einn særðist. Einn er í haldi lögreglu vegna málsins. Þeir þrír sem urðu fyrir skotum voru allir hluti af veiðihópi.

Þúsundir manna mót­mæla í 50 borgum

Mörg þúsund manns fylla götur og torg á Spáni í dag til að mótmæla ástandinu á húsnæðismarkaðnum þar í landi. Skipulögðu mótmælin fara fram í meira en 50 borgum en þar á meðal er Madrid, Valencia og Barcelona.

Taka sig upp á ógnar­hraða og smella beltinu af

Lögreglan hefur áhyggjur af nýrri tískubylgju meðal hóps ungra ökumanna sem virðist vera að ryðja sér til rúms á samfélagsmiðlum. Athæfið birtist þannig að ökumenn taka sig upp á ógnarhraða og smella af sér bílbeltinu. 

Illa brugðið en heill á húfi

Flugvél af gerðinni Skyhawk 172 fór út af flugbrautinni á Hólmsheiði við lendingu í gær. Skemmdir urðu á vélinni en engan sakaði í slysinu. Málið er á borði Rannsóknarnefndar samgönguslysa. 

Ung­lingar bundnir og skildir eftir við heimili

Tveir unglingar voru bundnir þannig að þeir voru ósjálfbjarga og skildir eftir annars vegar fyrir utan heimili og hins vegar í kjallara fjölbýlishúss. Atvikin áttu sér stað á sitthvorum staðnum í Reykjavík. Málin eru bæði á borði lögreglunnar.

Allir sau­tján frjálsir ferða sinna

Þeir tveir sem sátu eftir í gæsluvarðhaldi af þeim sautján sem voru upphaflega handteknir í tengslum við rannsókn lögreglunnar á sölu fíkniefna og peningaþvætti eru nú lausir og frjálsir ferða sinna. 

Ein mat­skeið og þá er dauðinn vís

„Ég hef lesið það að ef menn borða sem samsvarar einni matskeið af soðinni eða eldaðri viðarkveif (galerina marginata) sem er lítill brúnn sveppur sem er oft í kurlbornum göngustígum, þá er dauðinn nokkuð vís.“

Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöld­verð með Björk

Hvernig tilfinning ætli það sé að stoppa Alexander Skarsgård á leiðinni í mat með Björk og segja honum að hann sé hvergi nærri búinn að veita viðtal? Það er óþægileg tilfinning enda þekki ég það frá fyrstu hendi frá fundi okkar á Edition-hótelinu í fyrrakvöld. Í lokin neyddist ég til að viðurkenna fyrir honum að ég kæmist ekki á hátíðarsýningu nýju kvikmyndar hans því ég ætti stefnumót vegna sölu á notuðu teppi.

Sjá meira