Rauðar viðvaranir vegna Éowyn Óveðrið Eowyn gengur nú yfir Bretlandseyjar og Írland er veðrið þegar farið að valda vandræðum. Þannig hefur fjölmörgum flugferðum verið aflýst á flugvöllunum í Glasgow, Edinborg og í Dyflinni. 24.1.2025 07:51
Foreldrar sextíu barna vilji leikskólastjórann burt Foreldrar sextíu barna sem eru eða voru á leikskólanum Maríuborg í Grafarholti hafa sent borgarráði Reykjavíkur bréf þar sem þess er krafist að leikskólastjóra Maríuborgar verði vikið frá störfum. Í bréfinu er að finna alvarlegar kvartanir vegna starfshátta á leikskólanum. 24.1.2025 07:01
Farinn af vettvangi en fannst með áverka stuttu síðar Lögregla hefur handtekið þrjá, vegna gruns um stórfelldrar líkamsárásar. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar fyrir verkefni gærvköldsins og næturinnar. 24.1.2025 06:33
Viss um sigurinn en óviss um að komast inn á landsfundinn Listamaðurinn Snorri Ásmundsson, sem einn hefur lýst yfir framboði til embættis formanns Sjálfstæðisflokksins, segist sigurviss. Það er þrátt fyrir að eiga ekki sæti á landsfundi flokksins eins og sakir standa. Hann reynir nú að ráða úr því bót. 23.1.2025 21:03
Vél frá Dubai lenti í Keflavík með veikan farþega Flugvél á leið frá Dubai til Bandaríkjanna lenti á Keflavíkurflugvelli síðdegis, vegna veikinda farþega um borð. 23.1.2025 14:44
Segja verðið betra en í Krónunni, Bónus og Costco Notendur forrits sem ætlað er að sporna við matarsóun með því að bjóða notendum veglega afslætti á mat sem annars yrði hent geta fengið veglegan afslátt. 23.1.2025 11:53
Halla vill leiða VR áfram Halla Gunnarsdóttir, sem tók við formennsku í VR eftir að Ragnar Þór Ingólfsson var kjörinn á þing, mun sækjast eftir áframhaldandi setu á formannsstól. Formannskjör fer fram í mars. 23.1.2025 11:26
Sakleysi dætranna hafi gufað upp Mæður á Akureyri sem kærðu mann fyrir kynferðisbrot gegn tíu ára dætrum þeirra segjast hafa misst alla trú á kerfinu eftir að málinu var vísað frá af tveimur saksóknaraembættum. Framburðir stúlknanna í málinu voru ekki metnir nægilega samhljóma. Um svipað leyti og hin meintu brot áttu sér stað var maðurinn gripinn með barnaníðsefni í fórum sínum. 23.1.2025 09:01
Af þingi í skólamál á Austurlandi Líneik Anna Sævarsdóttir, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, hefur verið ráðin stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu hjá Fjarðabyggð. Líneik, sem mun hefja störf með vorinu, hefur setið á þingi frá 2013, með hléi. 22.1.2025 16:13
Bónus ódýrari en Prís í fjögur skipti af fimm hundruð Vöruverð í Prís er að meðaltali fjórum prósentum lægra en í Bónus, en einstakir vöruflokkar eru allt að 12 prósent ódýrari samkvæmt athugun verðlagseftirlits ASÍ. Athugunin náði til 514 vara, sem voru nánast alltaf ódýrari hjá Prís. 22.1.2025 15:48