

Maður sem skaut heila fjölskyldu til bana í Flórída um helgina hefur ekki sagt af hverju hann framdi ódæðið að öðru leyti en að guð hafi sagt honum að gera það. Bryan Riley er sakaður um að hafa myrt par, þriggja mánaða son þeirra og ömmu barnsins á sunnudagskvöldið.
Ríkisstjórn Mexíkó ætlar að höfða mál gegn byssuframleiðendum í Bandaríkjunum vegna þess hve mörg skotvopn berast ólöglega frá Bandaríkjunum til Mexíkó. Lögsóknin beinist ekki gegn yfirvöldum Bandaríkjanna.
Lögregluþjónn í Utah í Bandaríkjunum braut ekki af sér í starfi þegar hann skaut handjárnaðan mann í höfuðið á lögreglustöð fyrir tveimur árum. Myndbönd af banaskotinu sýna lögregluþjóninn segja: „Þú ert að fara að deyja, vinur minn“, áður en hann tók upp byssu sína og skaut manninn í höfuðið í miklu návígi.
Þrjú særðust í skotárás í Milwaukee í Wisconsin-fylki í Bandaríkjunum í nótt. Árásin átti sér stað í fögnuði borgarbúa eftir að körfuboltaliðið Milwaukee Bucks hafði tryggt sér NBA-meistaratitilinn í körfubolta í gærkvöld.
Bandarískt fyrirtæki sem framleiðir byssur hefur valdið mikilli reiði vestanhafs og víðar með því að framleiða byssu sem lítur út fyrir að vera gerð úr Lego-kubbum.
Lögregluþjónar í Denver í Bandaríkjunum handtóku á föstudaginn fjóra á hóteli í borginni og lögðu hald á fjölda skotvopna og hundruð byssukúlna. Stjörnuleikur hafnaboltadeildar Bandaríkjanna fer fram í Denver á þriðjudaginn og er talið mögulegt að fólkið hafi ætlað að fremja fjöldamorð.
Að minnsta kosti 150 létust í yfir 400 skotárásum í Bandaríkjunum síðastliðna helgi, þegar landsmenn fögnuðu þjóðhátíðardeginum 4. júlí. Enn er verið að uppfæra tölurnar, sem ná yfir 72 klukkustunda tímabil frá föstudegi til sunnudags.
Minnst 13 særðust í skotárás í miðbæ Austin í Texas í nótt. Skotárásin var gerð í skemmtanahverfi í borginni þar sem mikill mannfjöldi var saman kominn. Enginn dó í árásinni en tveir eru alvarlega særðir.
Allt að 25 eru særðir og tveir eru látnir eftir skotárás í norðvesturhluta Miami Dade-sýslu í Flórídaríki í Bandaríkjunum. Einn hinna særðu er í lífshættu eftir skotárásina.
Maðurinn sem skaut níu manns til bana og svipti sig svo lífi í lestamiðstöð San Jose í Kaliforníu á miðvikudaginn, mun ekki hafa skotið samstarfsmenn sína af handahófi. Heldur virðist hann hafa valið skotmörk sín.
Maðurinn sem skaut níu manns til bana áður en hann framdi sjálfsvíg á lestamiðstöð San Jose í Kaliforníu í gær, hafði áður talað um það að skjóta samstarfsfólk sitt. Þetta segir fyrrverandi eiginkona hans en hún segir árásarmanninn oft hafa verið mjög reiðan í garð vinnu sinnar og samstarfsfólks.
Að minnsta kosti átta eru látnir eftir skotárás á léttlestarstöð í borginni San Jose í Kaliforníufylki. Árásarmaðurinn er meðal hinna látnu.
Óljóst er hve margir eru látnir eftir skotárás í miðbæ borgarinnar San Jose í Kaliforníufylki en lögregla þar staðfestir að þeir séu nokkrir. Lögregla segir að árásarmaðurinn sé látinn.
Ríkisþing Texas í Bandaríkjunum hefur samþykkt frumvarp um að leyfa öllum íbúum ríkisins, 21 árs og eldri, að bera skammbyssu, jafnvel þó viðkomandi hafi ekki gengist byssupróf og þá bakgrunnsskoðun sem því fylgir. Frumvarpið hefur verið sent til Greg Abbott, ríkisstjóra, sem hefur sagst ætla að skrifa undir það.
Lögmenn feðganna Travis (35) og Gregory McMichael (65) hafa farið fram á að mega nota sakaskrá Ahmaud Arbery, 25 ára manns sem þeir eru sakaðir um að hafa myrt, í réttarhöldunum gegn þeim. Feðgarnir, auk William Bryan, eru hvítir og sátu fyrir Arbery, sem var svartur, þegar hann var úti að skokka og skutu hann til bana.
Beiðni samtaka skotvopnaeigenda í Bandaríkjunum, National Rifle Association, um gjaldþrot var hafnað af alríkisdómara í gær. Sá sagði beiðnina ekki hafa verið lagða fram í góðri trú, heldur væri markmiðið að komast undan lögsókn ríkissaksóknara New York.
Lögregla í New York-borg í Bandaríkjunum hefur lokað hluta Times Square, eins þekktasta kennileitis borgarinnar, eftir að tvær konur og fjögurra ára stúlka voru skotnar þar.
Tólf ára gömul stúlka í Rigby Middle School í borginni Rigby í Idaho í Bandaríkjunum skaut á tvo samnemendur sína og starfsmann skólans í gær. Fórnarlömbin eru talin munu lifa.
Fimm hafa verið handteknin og ákærð vegna árásar á aðstoðarmann Lady Gaga í febrúar og hafa þau verið ákærð fyrir morðtilraun og aðild að morðtilraun. Þrír voru handteknir á þriðjudaginn og eru þeir sakaðir um morðtilraun. Í kjölfarið voru tvö handtekin til viðbótar og ákærðir fyrir aðild að morðtilraun.
Lögmaður lögreglukonunnar fyrrverandi Amber Guyger munu í dag færa rök fyrir því að snúa eigi við sakfellingu hennar fyrir morð. Hún skaut nágranna sinn í Dallas í Texas til bana árið 2018 eftir að hún fór fyrir mistök inn í íbúð hans en ekki sína.
Lögregla í Texas leitar nú Stephen Nicholas Broderick, 41 árs gamals manns sem grunaður er um að hafa skotið þrjú til bana í borginni Austin í dag. Maðurinn, sem er fyrrverandi lögreglumaður, er talinn vopnaður og hættulegur.
Lögregla í Indianapolis í Bandaríkjunum hefur borið kennsl á mann sem talinn er hafa skotið átta manns til bana á starfsstöðvum FedEx. Maðurinn, sem framdi sjálfsvíg eftir árásina, hét Brandon Scott og var nítján ára gamall.
Eftir tiltölulega rólegt ár í fyrra virðist mannskæðum skotárásum fara hratt fjölgandi í Bandaríkjunum. Átta eru látnir eftir skotárás í Indianapolis í nótt og fimm voru fluttir á sjúkrahús vegna skotsára.
Lögreglan í Chicago birti í gærkvöldi myndband sem sýnir lögregluþjón skjóta þrettán ára dreng til bana í lok mars. Drengurinn virðist hafa verið með hendur sínar á lofti þegar hann var skotinn.
Að minnsta kosti átta eru látnir eftir skotárás í Indianapolis í Bandaríkjunum og margir særðir. Vitni segjast hafa heyrt skothvelli á starfsstöðvum FedEx og einn segist hafa séð mann hleypa af sjálfvirku skotvopni.
Lögreglukonan sem skaut Daunte Wright til bana eftir að hann var stöðvaður fyrir umfarðalagabrot verður ákærð fyrir manndráp. Hin 48 ára gamla Kimberly A. Potter, sem hafði starfað hjá lögreglunni í Brooklyn Center í Minnesota, segist hafa skotið Wright fyrir mistök er hann reyndi að komast á brott.
Lögreglustjórinn í borginni Brooklyn Center í Minnesota-ríki, Tim Gannon, hefur sagt upp störfum. Lögreglan í borginni hefur verið harðlega gagnrýnd eftir að lögreglukona skaut svartan ökumann, Daunte Wright, til bana.
Fjörutíu mótmælendur voru handteknir í Brooklyn Center í Bandaríkjunum í nótt. Mikil reiði er á meðal borgarbúa eftir að lögregla skaut tvítugan svartan karlmann til bana á sunnudag.
Til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu í úthverfi Minneapolis í Bandaríkjunum, annað kvöldið í röð eftir að svartur maður var skotinn til bana af lögregluþjóni. Umræddur lögregluþjónn ætlaði að taka upp rafbyssu sína en tók fyrir mistök upp alvöru byssu.
Fjögur létust, þar af eitt barn, í skotárás á skrifstofubyggingu í úthverfi Los Angeles í Bandaríkjunum í gær. Hinn grunaði særðist í skotbardaga við lögregluna og hefur verið handtekinn.