Flug
68 69 70 71 72 73 74 75 76 … 173 ›
Þotu snúið við vegna farþega sem neitaði að bera grímu Flugvél American Airlines á leið frá Miami til Lundúna á miðvikudaginn var snúið við eftir tæplega klukkustundar flug vegna farþega sem harðneitaði að bera grímu líkt og allir aðrir. Erlent 21.1.2022 19:09
Góð útkoma Boeing Max frestar kaupum á langdrægari þotum Icelandair hyggst bíða með ákvörðun um kaup á stærri þotum þar sem Boeing Max-þoturnar hafa reynst henta leiðakerfi félagsins betur en búist var við. Breiðþotur af gerðinni Boeing Dreamliner og Airbus-þotur eru meðal þeirra sem Icelandair skoðar til að sinna fjarlægari áfangastöðum. Viðskipti innlent 20.1.2022 22:45
Tókst ætlunarverkið: Yngsta kona sögunnar til að fljúga umhverfis hnöttinn Hin nítján ára gamla Zara Rutherford lenti í Belgíu, heimalandi sínu, í dag og er þar með yngsta kona sögunnar til þess að fljúga einsömul hringinn í kringum jörðina. Erlent 20.1.2022 17:29
Icelandair bætir við sig Boeing 737 MAX 8 farþegaþotum Icelandair hefur komist að samkomulagi við Dubai Aerospace Enterprise (DAE) um langtímaleigu á tveimur nýjum Boeing 737 MAX 8 flugvélum. Gert er ráð fyrir að Boeing afhendi flugvélarnar vorið 2022. Viðskipti innlent 18.1.2022 19:12
Flugfélög vara við óreiðu vegna 5G Forsvarsmenn bandarískra flugfélaga segja að ætlanir samskiptafyrirtækjanna Verizon og AT&T um að kveikja á 5G kerfi þeirra í vikunni muni valda gífurlegri óreiðu. Hætta þurfi við þúsundir flugferða og hagkerfi Bandaríkjanna muni bíða mikla hnekki. Erlent 18.1.2022 15:28
Bandarísk flugfélög ósátt við Kúbuflug Icelandair Þrjú bandarísk flugfélög sem stunda áætlunarflug á milli Bandaríkjanna og Kúbu mótmæltu því að að Icelandair yrði heimilað að fljúga á milli Orlando í Bandaríkjunum og Havana í Kúbu. Bandarísk yfirvöld sögðu engin rök hníga að því að taka mótmæli flugfélagana til greina. Viðskipti innlent 18.1.2022 14:53
Fæddi „kraftaverkabarn“ í háloftunum Kona fæddi barn í flugi flugfélagsins Qatar á leið frá höfuðborginni Doha til Úganda í vikunni. Blessunarlega var læknir um borð sem tók á móti barninu. Móður og barni heilsast vel. Erlent 15.1.2022 10:35
„Aðstæður hverju sinni eru grandskoðaðar til þess að finna lausn“ Isavia hefur fjölgað veðurmælum sem mæla vindhraða á Keflavíkurflugvelli. Þetta er gert til þess að skapa þann möguleika að í einhverjum tilfellum sé hægt sé að hleypa fólki frá borði í vonskuveðri með því að færa flugvélar um stæði. Innlent 12.1.2022 12:21
Bæta fjórum áfangastöðum við leiðakerfið Icelandair hefur birt upplýsingar um sumaráætlun sína og hafa fjórir áfangastaðir bæst við leiðakerfið – Róm á Ítalíu, Nice í Frakklandi, Alicante á Spáni og Montreal í Kanada. Viðskipti innlent 12.1.2022 09:23
Vindurinn veldur vandræðum á Keflavíkurflugvelli Ferðalangar, sem lentu á Keflavíkurflugvelli á leiðinni frá Tenerife með flugvél Play í kvöld, munu þurfa að bíða eitthvað eftir að komast heim en svo mikið rok er á flugvellinum að ekki er hægt að hleypa farþegum inn á Leifsstöð. Innlent 11.1.2022 23:45
Eftirlitið segir stjórnvöldum að hafa hemil á Isavia Samkeppniseftirlitið segir háttsemi Isavia á síðustu árum vekja áleitnar spurningar um það hvernig ríkisfyrirtækið nálgast samkeppni og samkeppnismál. Eftirlitið hefur beint tilmælum til ráðherra málaflokksins sem miða að því að skapa heilbrigða umgjörð um starfsemi á Keflavíkurflugvelli, draga úr óhagkvæmni í rekstri hans og efla ferðaþjónustu. Innherji 10.1.2022 14:02
Drógu flugmann úr brakinu andartökum áður en lest keyrði yfir það Lögreglumönnum í Los Angeles í Bandaríkjunum tókst að bjarga flugmanni úr braki lítillar Cessnu-flugvélar sem hrapað hafði á lestarteina, örfáum sekúndum áður en að afvífandi lest keyrði yfir brakið á miklum hraða. Erlent 10.1.2022 13:01
Farþegar sátu fastir í vélinni í einn og hálfan tíma Farþegar frá Kaupmannahöfn sátu fastir í flugvél Play þar sem ekki var hægt að nota landganga. Farþegar fá ekki töskur sínar fyrr en á morgun. Icelandair aflýsti tveimur flugferðum í kvöld vegna veðurs. Innlent 10.1.2022 00:53
Isavia og Íslandsbanki voru oftast í fréttum á árinu 2021 Ríkisfyrirtækið Isavia kom oftast fyrir í fréttum á árinu 2021 samkvæmt úttekt Creditinfo á fjölmiðlaumfjöllun um fyrirtæki. Innherji 9.1.2022 16:08
Ekki þurft að fljúga tómum vélum vegna reglna ESB Nýverið greindi Lufthansa Group frá því að samstæðan sæi fram á fljúga minnst átján þúsund flugferðir í vetur sem það myndi undir eðlilegum kringumstæðum vilja fella niður vegna fárra farþega. Viðskipti innlent 8.1.2022 23:53
Tveir nýir framkvæmdastjórar hjá Icelandair Sylvía Kristín Ólafsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri þjónustu og markaðsmála hjá Icelandair Group. Einnig hefur Rakel Óttarsdóttir verið ráðin í starf framkvæmdastjóra stafrænnar þróunar og upplýsingatækni hjá félaginu. Viðskipti innlent 7.1.2022 14:14
Smit greindist hjá áhöfn Icelandair eftir flug frá Washington D.C. milli jóla og nýárs Smit kom upp hjá áhöfn Icelandair sem flaug hingað til lands frá Washington D.C. 27. desember síðastliðinn. Heimildir Vísis herma að öll áhöfnin hafi reynst smituð af Covid-19 utan flugstjórans en þetta hefur ekki fengist staðfest hjá Icelandair. Innlent 5.1.2022 06:28
Fella niður flug á fimmtudag Vegna þess vonskuveðurs sem spáð er í Keflavík næstkomandi fimmtudag mun Icelandair seinka eða aflýsa tilteknum flugferðum þann daginn. Farþegar munu fá nákvæmar leiðbeiningar um breytingarnar og næstu skref. Innlent 4.1.2022 20:52
Stærsti hluthafinn selt í Play fyrir um milljarð en keypt í Icelandair Akta sjóðir, sem voru á meðal þeirra fjárfesta sem leiddu fjármögnun Play á árinu 2021, hafa á síðustu þremur mánuðum selt yfir þriðjung allra bréfa sinna í flugfélaginu. Innherji 4.1.2022 13:00
Nýfætt barn fannst í ruslatunnu flugvélarsalernis Starfsfólk flugvallar á Máritíus fann nýfætt barn í ruslatunnu inni á salerni flugvélar sem var nýlent á vellinum á nýársdag. Erlent 3.1.2022 23:39
Segir nýtt íbúðahverfi skerða rekstraröryggi flugvallarins Óvíst er hvort Isavia muni afhenda Reykjavíkurborg svæði í Skerjafirði í vor til byggingar nýs íbúðahverfis án frekari rannsókna. Framkvæmdastjóri innanlandsflugvalla Isavia segir húsbyggingar þar hafa umtalsverð áhrif á rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar. Innlent 3.1.2022 21:53
Steig í ógáti á bremsu svo flugvélin hafnaði á hvolfi við Blönduósflugvöll Flugmaður í aftursæti heimasmíðaðrar flugvélar steig í ógáti og of harkalega á bremsu sem varð til þess að vélin steyptist yfir sig og hafnaði á hvolfi við æfingar á grasi utan flugbrautar á Blönduósflugvelli 4. maí síðastliðinn. Innlent 1.1.2022 13:01
Borgin tekur tvær sneiðar til viðbótar af flugvellinum Nýtt aðalskipulag Reykjavíkur gerir ráð fyrir að tvær sneiðar verði skornar af Reykjavíkurflugvelli á næstu þremur árum og að vellinum verði svo endanlega lokað eftir áratug, árið 2032. Innlent 30.12.2021 22:22
Færði smituðum farþega mat og jólaskraut í einangrun: „Það er ýmislegt sem gerist þegar fólk er á ferðalögum“ Ragnhildur Eiríksdóttir, flugfreyja hjá Icelandair, sem fjallað var um í dag að hefði hjálpað hinni bandarísku Marisu Fotieo, sem fékk jákvæða niðurstöðu úr hraðprófi um borð í vél Icelandair hingað til lands, segist aðeins hafa verið að gera það sem hún hefði viljað að yrði gert fyrir sig ef hún hefði verið í sömu stöðu. Innlent 30.12.2021 20:18
Texasbúi réttur eigandi lénsins Iceland Express Fyrirtækið Sólvellir, sem tengt er Ferðaskrifstofu Íslands, kvartaði nýlega til Neytendastofu yfir notkun erlends aðila á léninu icelandexpress.is. Sólvellir á sjálft vörumerkið Iceland Express og bar fyrir sig að erlendi aðilinn hefði engin tengsl við merkið. Viðskipti innlent 30.12.2021 17:44
Nýtt flugfélag í samkeppni við Play og Icelandair Norsk flugmálayfirvöld veittu í gær nýja lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic flugrekstrarleyfi og telst það nú vera fullgilt flugfélag. Viðskipti erlent 30.12.2021 09:51
Einangraði sig inni á klósetti eftir jákvætt heimapróf í miðju flugi til Íslands Hún var afar sérstök, flugferð bandaríska kennarans Marisa Fotieo til Íslands skömmu fyrir jól. Í miðju flugi tók hún Covid-19 heimapróf sem reyndist jákvætt og ákvað hún því að einangra sig inn á klósetti flugvélarinnar til þess að freista þess að vernda aðra farþega. Innlent 30.12.2021 08:50
„Það er dálítið í land en þetta er allt að koma“ Farþegum sem fara um Keflavíkurflugvöll hefur fjölgað töluvert á milli ára. Ferðamálastjóri býst við að fjöldi ferðamanna nálgist eðlilegt horf á næsta ári. Enn sé þó mikil óvissa um þróunina vegna faraldursins. Innlent 28.12.2021 22:02
Undirrituðu samning um viðbyggingu við flugstöðina á Akureyrarflugvelli Isavia Innanlandsflugvellir og Byggingafélagið Hyrna undirrituðu í dag samning um smíði viðbyggingar við flugstöðina á Akureyrarflugvelli. Samningsupphæðin fyrir verkið er 810,5 milljónir króna. Viðskipti innlent 28.12.2021 16:08
Boeing 737 Max flugvélar fá brátt að fljúga aftur í Indónesíu Þrjú ár eru liðin síðan Boeing 737 Max flugvél hrapaði fyrir utan strendur Java á Indónesíu með 189 innanborðs. Síðan þá hafa vélarnar ekki fengið að fljúga í Indónesíu en það mun brátt breytast. Erlent 28.12.2021 10:15