Hryðjuverk í London

Lík Menezes flutt til Brasilíu
Flogið var með lík mannsins sem lögreglan í London skaut á Stockwell lestarstöðinni í vikunni, til Brasilíu í gær. Hinn 27 ára Jean Charles de Menezes var skotinn í höfuðið, alls átta sinnum, eftir að hafa hunsað fyrirmæli lögreglunnar um að stoppa.

Handtökur í Birmingham
Maðurinn var handtekinn í Birmingham eldsnemma í morgun. Fréttastofa BBC hefur eftir heimildarmönnum innan Skotland Yard að hann kunni að vera einn fjórmenninganna sem ákaft hefur verið leitað vegna árásarinnar á London í síðustu viku.

Einn sprengjumanna sagður í haldi
Breska lögreglan réðst til inngöngu í hús í Birmingham fyrir dögun í gærmorgun og beittu rafbyssu til að yfirbuga mann sem að sögn vitnis og fjölmiðla er sagður vera Yasin Hassan Omar, einn þeirra fjögurra sem reyndu að sprengja sprengjur í jarðlestum og strætisvagni í Lundúnum fyrir viku.

Handtökur í Bretlandi
Breska lögreglan handtók í morgun einn fjórmenninganna sem gerðu misheppnaða árás á London síðasta fimmtudag. Sex aðrir hafa verið handteknir í tengslum við árásirnar síðan í gærkvöld.

Blair segir Breta hvergi hvika
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagði í gær að bresk stjórnvöld myndu ekki "hvika svo mikið sem þumlung" fyrir hryðjuverkamönnum. Lögregla upplýstu að tveir mannanna sem eftirlýstir eru fyrir misheppnuðu tilræðin í síðustu viku séu löglegir innflytjendur sem fluttu á barnsaldri til Bretlands frá Sómalíu og Erítreu.

Tengsl milli hryðjuverka og Íraks
Kokhraustur Tony Blair blæs á kannanir sem sýna að almenningur telur tengsl á milli hryðjuverka í borginni og stríðsins í Írak. Rannsókn á árásunum heldur áfram og virðist lögreglan á hælum tilræðismannanna.

Ítalir óttast hryðjuverk
Mikill meirihluti ítölsku þjóðarinnar á von á að hryðjuverkaárás verði gerð í landinu í nánustu framtíð. Þetta kemur fram í könnun sem gerð var í kjölfar hryðjuverkaárásanna í London á dögunum.

Lögreglan í kappi við tímann
Breska lögreglan er nú í kappi við tímann en fjögurra tilræðismanna, sem gerðu misheppnaðar tilraunir til hryðjuverka á fimmtudaginn, er nú leitað. Óttast er að þeir leggi á ráðin um frekari árásir í London og að borgin sé orðin meginskotmark alþjóðlegra hryðjuverkamanna.

Kennsl borin á tvo tilræðismenn
Vitað er hverjir tveir hryðjuverkamannanna eru sem gerðu tilraun til árásar í London í síðustu viku. Lundúnalögreglan handtók í dag tvo menn en tilræðismannanna er leitað og óttast að þeir leggi á ráðin um fleiri tilræði.

5 handteknir vegna sprenginganna
Lögreglan í London hefur nú handtekið fimm menn í tengslum við rannsóknina á hryðjuverkaárásunum í borginni í síðustu viku. Tilkynnt var um handtöku tveggja manna nú síðdegis en þrír voru þegar í haldi lögreglu.

Lundúnalögreglan biðst afsökunar
Lögreglustjórinn í Lundúnum, Ian Blair, baðst í gær opinberlega afsökunar á því að lögregla skyldi hafa skotið til bana brasilískan rafvirkja, sem ekki tengdist hryðjuverkaárásunum í borginni á nokkurn hátt. Blair varði engu að síður þá stefnu lögreglunnar að hika ekki við að skjóta menn ef ástæða væri til að gruna þá um að bera á sér sprengju.
Páfi hittir múslima í Þýskalandi
Benedikt XVI páfi fordæmdi í gær aftur hryðjuverk sem framin voru nýlega í Evrópu og Mið-Austurlöndum. Þá bað hann guð um að taka fyrir hendur hryðjuverkamanna. Í næsta mánuði fundar páfi með fulltrúum múslima í Köln í Þýskalandi og segir talsmaður páfa hann telja að fundurinn verði afar mikilvægur.
Lítið um afpantanir til London
Eftirspurn eftir flugi til London hefur minnkað sáralítið og nánast ekkert hefur verið um að fólk afpanti ferðir sínar þangað, að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Icelandair.

Saka lögregluna um vanhæfni
Fjölskylda unga Brasilíumannsins, sem breska lögreglan skaut til bana í misgripum fyrir hryðjuverkamann, er harmi lostin. Hún skilur ekkert í hvernig þetta gat gerst.

Lögreglan heldur vinnureglum
Breska lögreglan hefur harmað að saklaus maður skyldi skotinn til bana, í Lundúnum, síðastliðinn föstudag. Lögreglustjóri höfuðborgarinnar segir að lögreglan muni samt halda áfram að skjóta til þess að drepa, ef þörf krefji.

Óhugnanleg lífsreynsla
Íslendingur, sem ásamt fjölskyldu sinni varð vitni að fjöldamorðum í Egyptalandi í morgun, segir að það hafi verið óhugnanleg lífsreynsla. Að minnsta kosti áttatíu og átta manns biðu bana í árásunumHver sprengingin af annarri skók Sharm El Sheik snemma í morgun, og aðkoman var skelfileg.

Tengdist ekki árásunum
Breska lögreglan hefur staðfest að maðurinn sem skotinn var á Stockwell lestarstöð í gær tengdist ekki hryðjuverkunum á fimmtudag. Í yfirlýsingu frá lögreglunni er atburðurinn harmaður og beðist afsökunar.
Hinn skotni ótengdur árásum
Maðurinn sem lögreglan í London skaut til bana í neðanjarðarlestarstöð á föstudaginn var ótengdur sprengjuárásunum í borginni. Þetta kom fram í yfirlýsingu Scotland Yard í gær. Tveir menn hafa verið handteknir í tengslum við árásirnar </font /></b />

Annar handtekinn í Lundúnum
Breska lögreglan handtók í dag annan mann vegna sprengjutilræðanna í Lundúnum, á fimmtudag. Ekki hefur verið upplýst hvort hann er einn af fjórum mönnum sem lýst er eftir vegna ódæðisins.

Breska lögregla bæði harmar og ver
Breska lögreglan hefur upplýst að maðurinn sem var skotinn til bana í gær, hafi ekki tengst sprengjutilræðunum síðastliðinn fimmtudag. Ekki var hins vegar sagt hver maðurinn var, eða hvers vegna hann var undir eftirliti. Breska lögreglan ver eftir sem áður þá stefnu að það skuli skotið til að drepa, þegar fengist er við hugsanlegan sjálfsmorðssprengjumann.

Litlar upplýsingar um þann látna
Breska lögreglan hefur enn ekki gefið neinar upplýsingar um mann sem hún skaut til bana í morgun, á járnbrautarstöð í Lundúnum. Fréttir af atburðinum er enn óljósar, en lögreglan hefur þó staðfest að maðurinn hafi verið skotinn til bana þegar hann var að fara um borð í járnbrautarlest á Stockwell brautarstöðinni.

Fjögurra enn leitað
Lögreglan í Bretlandi hefur staðfest að maðurinn sem hún skaut til bana á járnbrautarstöð í Lundúnum í morgun tengdist árásunum í gær. Hún leitar einnig fjögurra annarra manna sem tengjast árásinni.

Hefja leit í föggum fólks
Öryggisyfirvöld í New York hafa ákveðið að hefja slembileit í bakpokum og töskum fólks í borginni í kjölfar árásanna á London í gær. Frá og með deginum í dag getur hver sá sem notast við almennings samgöngur í borginni átt von á að leitað verði í föggum hans. Ekki liggur fyrir hve viðamiklar aðgerðirnar eru. Hingað til hefur ekki verið farið út í slíkar aðgerðir af ótta við tafir sem af þeim kynnu að hljótast.

Sprengjunum ætlað að drepa
Sprengjunum á London í gær var ætlað að drepa, segir Ian Blair, lögreglustjóri borgarinnar. Tilræðið í gær mistókst og telja sprengjusérfræðingar að tvær af sprengjunum fjórum hafi ekki sprungið.
Skjóta til að drepa
Ótti og spenna ríkir í Lundúnum, eftir að grunaður hryðjuverkamaður var skotinn til bana á lestarstöð í dag. Einn maður hefur verið handtekinn og birtar hafa verið myndir af fjórum öðrum mönnum sem grunaðir eru um sprengjutilræðin í borginni í gær. Lögreglan hefur skipanir um að skjóta til að drepa ef talið er að menn séu með sprengiefni á sér.

Lögregla skýtur grunaðan mann
Lögregla í Lundúnum handtók í gærkvöld mann í Stockwell í suðurhluta borgarinnar í tengslum við rannsóknina á hinum misheppnuðu sprengjutilræðum á fimmtudag. Óljóst var af fyrstu fréttum af handtökunni hvort hún tengdist atviki sem varð á Stockwell-jarðlestarstöðinni í gærmorgun, en þá skaut lögregla þar mann til bana sem hagaði sér grunsamlega.

Grunaður skotinn í London
Breska lögreglan skaut í morgun mann á neðanjarðarlestarstöð, þar sem hann var grunaður um sjálfsmorðsárás. Sky fréttastofan segir að han hafi verið skotinn í þann mund sem hann var að fara um borð í lest, og vitnar fréttstofan til lögreglunnar.

Götu lokað í Lundúnum
Vopnaðir lögregluþjónar lokuðu fyrir stundu Harrow Road í Lundúnum. Þeir sögðu íbúum að halda sig innan dyra og einn íbúi telur sig hafa séð fjarstýrt sprengjuleitartæki.

Sjö verið handteknir í Pakistan
Lögreglan í Pakistan hefur handtekið sjö menn sem taldir eru tengjast hryðjuverkunum á London á einn eða annan hátt. Einn mannanna, sem handtekinn var í gær, er talinn hafa rætt við einn árásarmannanna aðeins fáeinum klukkutímum fyrir árásirnar.
Lestarstöðvar í Lundúnum rýmdar
Neðanjarðarlestarstöð í Lundúnum var rýmd rétt í þessu og má sjá reyk leggja frá lest, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu í borginni. SKY greinir nú frá því að röð atvika hafi átt sér stað í borginni á síðustu mínútum en ekki er ljóst hvað gerðist.