Björgunarsveitir
1 2 3 4 5 6 7 … 46 ›
Áhöfn smábáts sem strandaði hífð upp í þyrlu Tveir menn sem voru um borð í smábát sem strandaði í utanverðum Súgandafirði í morgun voru hífðir upp í þyrlu Landhelgisgæslunnar og fluttir til Suðureyrar í morgun. Báturinn situr enn fastur á strandstaðnum. Innlent 28.10.2024 09:25
Grindavíkurbær nú opinn almenningi Grindavíkurbær opnaði klukkan sex í morgun, en aðgengi að bænum hefur verið verulegum takmörkunum háð síðustu misserin vegna eldsumbrota. Ferðir fólks eru á eigin ábyrgð. Innlent 21.10.2024 07:55
Nýja skipið mun betra Landsbjörg fékk nýtt björgunarskip afhent á föstudag. Gestir og gangandi geta skoðað skipið í Reykjavíkurhöfn í dag. Innlent 13.10.2024 09:43
Útkall vegna bílveltu í uppsveitum Árnessýslu Björgunarsveitir, ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar, hafa verið kallaðar út vegna bílveltu í uppsveitum Árnessýslu þar sem einn slasaðist. Innlent 12.10.2024 16:05
Nýtt björgunarskip Landsbjargar formlega afhent Fjórða björgunarskip sem Slysavarnafélagið Landsbjörg lætur smíða í Finnlandi var í gær afhent formlega. Innlent 12.10.2024 14:00
Erlendur ferðamaður fannst látinn við Stuðlagil Kona á fertugsaldri, erlendur ferðamaður sem var á ferð í Stuðlagili við annan mann, fannst látin í Jökulsá skammt neðan við Stuðlagil skömmu fyrir klukkan fimm í dag. Hún var þá látin. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Lögreglunni á Austurlandi. Innlent 9.10.2024 15:53
Margir í vandræðum í Kömbunum Hjálparsveit skáta í Hveragerði var kölluð út í kvöld til að aðstoða fjölda ökumanna sem lentu í vandræðum í Kömbunum í kvöld. Þar hafði myndast talsverð hálka og snjór á veginum sem gerði að verkum að margir komust ekki sinnar leiðar. Innlent 8.10.2024 21:50
Nýtt björgunarskip komið til landsins Björg, nýtt björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, var hífð frá borði Brúarfoss, skipi Eimskipafélagsins í Sundahöfn í um hádegi í dag. Björg mun leysa af hólmi skip með sama nafni á Rifi á Snæfellsnesi, sem er orðið 38 ára gamalt. Innlent 30.9.2024 16:18
Umhugsunarefni hve margir ferðamenn fái ekki að snúa aftur heim Talsmaður Landsbjargar segir nauðsynlegt að grípa til aðgerða til þess að gera ferðamönnum betur grein fyrir þeim hættum sem víða leynast á Íslandi. Það sé of algengt að ferðamenn komi hingað en fái ekki að snúa heim til að segja ferðasöguna. Innlent 25.9.2024 19:50
Maðurinn fannst látinn Maðurinn sem féll í Hlauptungufoss fannst látinn nú fyrir stundu. Um erlendan ferðamann er að ræða. Innlent 24.9.2024 13:13
Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Lík af karlmanni fannst í Reynisfjalli nú í kvöld. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út þar sem ekki var hægt að nálgast líkið langleiðina. Lögregla getur ekki staðfest að líkið sé af manni sem leitað hefur verið að undanfarna daga að svo stöddu. Innlent 19.9.2024 22:26
Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Hvítabjörn sem kom á land á Höfðaströnd í Jökulfjörðum var felldur nú fyrir skömmu. Hann fannst skammt frá sumarhúsi, þar sem konan sem tilkynnti um hann dvaldist einsömul. Innlent 19.9.2024 16:01
Senda vopnaða menn á svæðið Sá sem tilkynnti um að hvítabjörn hefði gengið á land á Höfðaströnd í Jökulfjörðum var staddur í sumarhúsi á svæðinu, og er einn eftir því sem lögregla kemst næst. Ekki hefur náðst aftur í viðkomandi. Lögreglumenn eru á leið á svæðið ásamt mönnum frá Landhelgisgæslunni sem eru sérþjálfaðir í meðferð skotvopna. Innlent 19.9.2024 14:59
Fresta leitinni að Illes Lögreglan á Suðurlandi og björgunarsveitir af Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu hafa frá því í gærkvöld leitað af Illes Benedek Incze, ungverskum ríkisborgara á stóru svæði í kringum Vík í Mýrdal. Þeirri leit hefur nú verið frestað. Innlent 17.9.2024 16:27
Sex ferðamenn festust í helli við Reynisfjöru Sex ferðamenn festust í helli við Reynisfjöru í dag. Björgunarsveitarmenn sem höfðu verið að leita að manni við Vík í Mýrdal fóru á vettvang og björguðu ferðamönnunum. Innlent 17.9.2024 16:15
Leitin að Illes bar ekki árangur í nótt Leitin að Illes Benedek Incze sem hófst í gærkvöldi á svæðinu í kringum Vík í Mýrdal hefur enn engan árangur borið. Innlent 17.9.2024 08:29
Leita manns við Vík í Mýrdal Björgunarsveitir eru að hefja leit að manni við Vík í Mýrdal. Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar í samtali við fréttastofu. Innlent 16.9.2024 21:29
Hífðu slasaðan mann upp úr gili í Skaftafelli Maður féll nokkra metra niður í gil í Skaftafelli síðdegis í dag og var hífður upp með aðstoð þyrluáhafnar Landhelgisgæslunnar. Verið er að leggja mat á ástand mannsins en hann virðist hafa sloppið við meiriháttar meiðsli, að sögn aðalvarðstjóra lögreglunnar á Suðurlandi. Innlent 15.9.2024 15:45
Veikur maður fluttur með þyrlu á Neskaupstað Karlmaður var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Neskaupstað í nótt með verk fyrir brjósti. Björgunarsveitir voru kallaðar út rétt fyrir miðnætti í gær vegna mannsins sem treysti sér ekki til að ganga lengr. Hann var staddur í Sandvík. Innlent 14.9.2024 11:05
Björgunarskip kom fjórum til bjargar Björgunarskipið Hafbjörg var kallað út um klukkan eitt í dag vegna vélarvana báts 17 mílum norðaustur af Neskaupstað. Báturinn er nú kominn í tog og siglir Hafbjörg með skipverjanna fjóra sem voru um borð í átt að landi. Innlent 9.9.2024 15:44
Björgunarsveit í fýluferð vegna neyðarblyss Áhöfn björgunarskipsins Gísla Jóns á Ísafirði var kölluð út á laugardagkvöldið eftir að tilkynning barst frá íbúa sem hafði séð fleiri en eitt neyðarblys á lofti í firðinum. Sveitin var síðar afturkölluð eftir að ljós kom að blysunum hafði verið skotið á loft af hópi fólks sem hafði komið saman vegna hátíðarhalda fyrir utan veitingastað á Skutulsfjarðareyri. Innlent 9.9.2024 08:07
Smali slasaðist við smalamennsku Fyrr í dag voru björgunarsveitir í Borgarfirði kallaðar út vegna smala sem hafði hrasað við smalamennsku í Skorradal og slasast eitthvað á fæti við það. Innlent 7.9.2024 21:48
Engin útköll hjá björgunarsveitum í nótt Engin útköll voru hjá björgunarsveitum vegna veðurs í gærkvöldi og í nótt eftir annasaman dag á norðurhluta landsins þegar mikið hvassviðri gekk yfir. Innlent 6.9.2024 07:34
Reyna að ná sambandi við sendanda neyðarkallsins Búist er við því að varðskipið Þór komi að Hlöðuvík á Hornströndum á hverri stundu nú en óljóst neyðarkall barst lögreglunni á Vestfjörðum þaðan um hádegisbil. Innlent 5.9.2024 20:17
Göngumaðurinn fannst kaldur á Kastárfjalli Göngumaður sem leitað var eftir að hann rann í skriðum á Kastárfjalli á Stokksnesi austan Hafnar hefur verið fundinn. Innlent 5.9.2024 18:41
Þór á leið í Hornvík vegna óljóss neyðarkalls Neyðarkall barst lögreglunni á Vestfjörðum um hádegisbil, en ekki er ljóst hvaðan það barst. Óskað var eftir aðstoð áhafnar á varðskipinu Þór, sem verður komið á vettvang í kvöld. Innlent 5.9.2024 16:13
Missti fótana á Kastárfjalli í hádeginu og er enn leitað Göngumaður á Kastárfjalli á Stokksnesi austan Hafnar rann í skriðum og hruflaðist um hádegisbilið í dag. Björgunarsveitir leita mannsins enn á fjallinu. Innlent 5.9.2024 16:07
Skútur rekur á land í röðum Þrjár skútur hefur rekið í land við Pollinn á Ísafirði það sem af er degi, eftir að hafa slitnað af legufærum í höfninni. Einni skútunni var komið í tog í morgun og bjargað en of slæmt er í sjóinn eins og er til að bjarga hinum tveimur. Innlent 5.9.2024 15:45
Skúta slitnaði frá bryggju í aftakaveðri fyrir vestan Bálhvasst hefur verið á Norðvesturlandi og á Vestfjörðum í morgun og björgunarsveitum á svæðinu hafa borist fjölmargar tilkynningar. Á Ísafirði slitnaði lítil skúta frá bryggju og rak upp í grjótgarðinn við Pollinn. Innlent 5.9.2024 11:21
Tíminn stóð í stað en allt var á fleygiferð „Mér fannst svo viðeigandi að gera þetta í minningu pabba. Pabbi var þannig gerður að hann vildi aldrei skulda neinum neitt eða standa í þakkarskuld við neinn. Og björgunarsveitirnar, sem komu og hjálpuðu okkar þennan dag áttu þetta svo sannarlega inni,“ segir Berglind Sigurðardóttir en faðir hennar, Sigurður Sigurjónsson, lést af slysförum á Skógaheiði í október á seinasta ári. Lífið 3.9.2024 07:01