Slökkvilið

Hyggjast ekki greina frá nöfnum hinna látnu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hyggst ekki greina frá nöfnum Bandaríkjamanns og Tékka, sem létust í eldsvoða að Hjarðarhaga í Reykjavík.

Eigandi Bjargar í áfalli en vonast til að bjarga fötum
Eigandi Efnalaugarinnar Bjargar á Háaleitisbraut sem brann í nótt segist vera í áfalli eftir nóttina. Um fjölskyldufyrirtæki er að ræða og segir hann mestu máli skipta að hlúa að starfsfólki en hann vonast til þess að hægt verði að bjarga einhverjum fötum sem voru þar til hreinsunar.

Mikið eignatjón vegna bruna í efnalaug við Háaleitisbraut
Rétt eftir klukkan tvö í nótt var slökkvilið kallað til vegna bruna í Efnalauginni á Háaleitisbraut. Í dagbók lögreglunnar segir að lögregla og slökkvilið hafi verið send með forgangi vegna mikils elds. Slökkviliði hafi gengið greiðlega að ráða niðurlögum eldsins.

Ökumaðurinn slapp naumlega: Þrjú þúsund lítrar af olíu um borð
Bíllinn sem logaði við munna Norðfjarðargöngunum var hlaðinn þrjú þúsund lítrum af málningu og þrjú þúsund lítrum af olíu. Hann varð því alelda á mjög skömmum tíma en ökumaður komst út af sjálfsdáðum og slapp ómeiddur.

Norðfjarðargöng lokuð vegna elds í bifreið
Norðfjarðargöngum, göngin á milli Eskifjarðar og Neskaupstaðar, hefur verið lokað eftir að eldur kviknaði í bíl.

Slökktu gróðurelda á Ströndum með aðstoð þyrlu
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á fimmta tímanum í dag vegna gróðurelda í Þjóðbrókargili í Selárdal á Ströndum. Slökkvistörf gengu vel og búið var að slökkva eldinn á áttunda tímanum.

Sinueldur kviknaði út frá brennandi rusli: „Erum pínulítið pirraðir á þessu“
Brunavarnir Árnessýslu slökktu sinueld við Apavatn upp úr hádegi í dag. Ábúandi var þar að brenna rusl á miðri sinubeðju þegar eldurinn breiddist svo út. Slökkviliðsmönnum var alls ekki skemmt enda ekki fyrsta sinn sem þeir hafa þurft að sinna slíku útkalli.

Benz brann í Breiðholti
Eldur kviknaði í húddi bíls á bílastæðinu við Mjódd á tíunda tímanum í kvöld. Slökkvilið var kallað á vettvang og búið er að ráða niðurlögum eldsins.

Hundrað ára afmæli bílsins í uppnámi eftir brunann
Níutíu og níu ára gamall bíll brann þegar eldur kviknaði í bílskúr á Álftanesi á þriðjudag. Eigandi hugðist halda upp á hundrað ára afmæli bílsins í júlí á næsta ári en er þó ekki alveg tilbúinn að afskrifa hann.

Vinnuslys við Suðurlandsbraut
Einn var fluttur á sjúkrahús eftir vinnuslys á vinnusvæði á Suðurlandsbraut upp úr hádegi í dag. Dælubíll slökkviliðs og tveir sjúkraflutningabílar voru kallaðir út vegna slyssins.

Háhyrningurinn synti rakleiðis í strand
Íbúi í Grafarvogi varð vitni að því þegar háhyrningur synti í strand í Gorvík í gærkvöldi og fangaði atvikið á myndskeiði.

Tók smá snúning en aftur kominn á svipaðar slóðir
Slökkviliðsmenn hafa haldið háhyrningi sem strandaði í Gorvík nærri Korpúlfsstöðum í Grafarvogi í gærkvöldi rökum í nótt með það fyrir augum að halda honum á lífi.

Eldur í bílskúr á Álftanesi
Eldur kom upp í bílskúr á Álftanesi rétt fyrir kl. 16 í dag. Allt tiltækt lið slökkviliðsins var ræst út en svo virðist sem búið sé að slökkva eldinn.

Nafn mannsins sem drukknaði við Örfirisey
Maðurinn sem drukknaði við Örfirisey í lok maí, eftir að hafa örmagnast á sjósundi, hét Michal Gabriš. Hann var frá Slóvakíu og varð aðeins 27 ára. Hann hafði nýlokið hringferð um Ísland á hlaupahjóli.

Grunur um íkveikju á Hjarðarhaga
Umtalsvert magn bensíns fannst í sýnum sem tekin voru á vettvangi mannskæðs eldsvoða að Hjarðarhaga í Reykjavík. Tveir létust í brunanum og grunur er uppi um að kveikt hafi verið í.

Slökktu eld á svölum á fjórðu hæð í Engihjalla
Allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins varr kallað út vegna bruna á svölum á fjórðu hæð í Engihjalla í Kópavogi. Slökkvilið var fljótt að slökkva eldinn og sakaði engan.

Komu í veg fyrir sýruleka á Akureyrarhöfn
Rýma þurfti Akureyrarhöfn og vinnusvæði Eimskips í gær vegna gruns um sýruleka eftir að hífingarbúnaður bilaði og tankur með fosfórsýru féll niður á þilfar flutningaskipsins Royal Arctic Line.

„Þetta er úrkoma sem má vænta á einhverra áratuga fresti“
Sú mikla úrkoma sem hefur mælst í vatnsveðrinu fyrir norðan er veðuratburður sem vænta má á nokkurra áratugafresti að sögn ofanflóðasérfræðings. Slökkviliðsstjóri Fjallabyggðar segir útlitið bjartara en það var í gær því dregið hefur úr úrkomu en áfram er skriðu-og snjóflóðahætta.

Sári djúpt snortinn yfir stuðningi
Sári Morg Gergó, ungverskur karlmaður sem slasaðist illa í brunanum á Hjarðarhaga fyrir tveimur vikum, er á góðum batavegi. Hann segir brunasár á líkamanum gróa vel. Síðustu tvær vikur hafi verið rússíbanareið.

Sundhöllinni lokað vegna reyks
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var að störfum í kjallara Sundhallar Reykjavíkur vegna reyks og brunalyktar fyrr í morgun. Ekki var talin hætta á ferð en lauginni hefur þó verið lokað um óákveðinn tíma.

Ofurölvi þjófur gisti í fangageymslu
Lögregluþjónar á höfuðborgarsvæðinu stöðvuðu nokkra ökumenn í gærkvöldi og í nótt vegna gruns um að þeir væru undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Þó virðist nóttin hafa verið róleg ef marka má dagbók lögreglu. Þar kemur fram að tveir hafi gist fangageymslur í nótt og að 69 mál hafi verið skráð í kerfi lögreglu frá fimm seinni partinn í gær til fimm í morgun.

Fádæma úrhelli á Ólafsfirði
Gífurleg úrkoma hefur verið á Norðurlandi síðan í gærkvöldi, en gul veðurviðvörun er í gildi og búist er við áframhaldandi rigningu á morgun. Sérstaklega hefur rignt á Ólafsfirði þar sem slökkviliðið var kallað út laust eftir hádegi til að dæla vatni af lægstu punktum bæjarins.

„Ekki hægt að segja annað en fyrirgefið“
Þríeykið að baki útvarpsþættinum FM95Blö segist harma innilega að fólk hafi slasast á tónleikum sem haldnir voru í þeirra nafni. Þeir segjast ekki hafa viljað ræða við fjölmiðla strax þar sem þeir hafi ekki haft upplýsingar um nákvæmlega hvað hefði gerst. Þetta kom fram í hlaðvarpsþætti þeirra sem birtist í dag.

„Auddi, Steindi og Egill voru í markaðsmálum“
Forsvarsmaður félagsins sem stóð að skipulagi umtalaðra tónleika FM95Blö á laugardag, þar sem mikill troðningur skapaðist á tímabili og einhverjir slösuðust, segir engan hafa getað séð fyrir það sem gerðist á tónleikunum. Hann leggur áherslu á að þríeykið í FM95Blö hafi ekki komið að framkvæmd og skipulagi heldur markaðsmálum og undirbúningi.

„Beðið um leyfi fyrir átta þúsund manns“
Skipuleggjendur stórtónleika FM95BLÖ sóttu um leyfi fyrir átta þúsund manns á tónleikunum en talið er að mun fleiri hafi verið á staðnum. Reyndur skipuleggjandi viðburða segir öryggisgæslu á tónleikum FM95BLÖ ekki hafa verið fullnægjandi. Áfengissala hófst fyrr en leyfi var fyrir.

Fundað vegna örtraðarinnar í höllinni
Viðbragsaðilar funduðu í morgun með rekstraraðilum Laugardalshallar vegna stórtónleika FM95BLÖ þar sem fjöldi manns var hætt kominn vegna skipulags. Slökkviliðsstjóri segir mikilvægt að lærdómur sé dreginn af málinu en tónleikagestur segist enn vera að jafna sig.

Hinn látni erlendur ríkisborgari á þrítugsaldri
Karlmaðurinn sem fannst látinn í sjónum út af Örfirisey eftir hádegi í dag er talinn vera sami maður og leitað hefur verið að frá því síðdegis í gær. Maðurinn var erlendur ríkisborgari á þrítugsaldri.

Grill í ljósum logum úti á svölum
Eldur kviknaði í grilli á annarri hæð í fjölbýlishúsi við Mánatúni í Reykjavík. Búið er að slökkva eldinn en slökkvilið vinnur að því að reykræsta íbúðina.

Vilja endurbyggja verkstæðið en nágrannar mótmæla harðlega
Eigendur lóðar að Grettisgötu 87 í Reykjavík, þar sem réttingaverkstæði brann árið 2016, hafa fengi leyfi byggingarfulltrúa til að endurbyggja húsið og innrétta þar réttingaverkstæði og heildverslun. Nágrannar mótmæla áformunum harðlega.

Telja að maðurinn sé fundinn
Viðbragðsaðilar telja að maðurinn, sem talið er að hafi örmagnast í sjónum úti fyrir Fiskislóð í Reykjavík í gær, sé fundinn. Hann var ekki með lífsmarki.