
Jólalög

Syngur All I Want For Christmas Is You með tuttugu mismunandi röddum
Anthony Vincent er engum líkur.

Þrettán dagar jóla
Á jóladaginn fyrsta / hann Jónas færði mér / einn talandi páfugl á grein.

Jólaklukkur
Ding dong dingadinga dong / Nú klukkur himins klingja / Fjölda engla fyrir ber / um frið á jörðu syngja / Gloría, Gloría

Í Betlehem
Í Betlehem er Barn oss fætt / Því fagni gjörvöll Adamsætt / Hallelúja

Nú er Gunna á nýju skónum
Nú er Gunna á nýju skónum / nú eru að koma jól / Siggi er á síðum buxum / Solla á bláum kjól.

Jólin alls staðar
Jólin, jólin alls staðar / með jólagleði og gjafirnar / Börnin stóreyg standa hjá / og stara jólaljósin á.

Hátíð í bæ
Ljósadýrð loftin gyllir / lítið hús yndi fyllir / og hugurinn heimleiðis leitar því æ / man ég þá er hátíð var í bæ.

Jól
Þau lýsa fegurst er lækkar sól / í bláma heiði, mín bernskujól / Er hneig að jólum mitt hjarta brann / dásemd nýrri hver dagur rann.

Í skóginum stóð kofi einn
Í skóginum stóð kofi einn / sat við gluggann jólasveinn / Þá kom lítið héraskinn / sem vildi komast inn.

Gekk ég yfir sjó og land
Gekk ég yfir sjó og land / og hitti þar einn gamlan mann / spurði hann og sagði svo / Hvar áttu heima?

Jólasveinninn kemur í útvarpið
Krakkar mínir, komið þið sæl / hvað er nú á seyði? / Áðan heyrði ég eitthvert væl / upp á miðja heiði.

Það heyrast jólabjöllur
Dammmmmmmmmmm / Það heyrast jólabjöllur / og o´n úr fjöllunum fer / flokkur af jólaköllum til að / gantast við krakkana hér.

Yfir fannhvíta jörð
Yfir fannhvíta jörð leggur frið / þegar fellur mjúk logndrífa á grund / eins og heimurinn hikri´ aðeins við / haldi niðri í sér anda um stund

Skreytum hús
Skreytum hús með greinum grænum / tra la la la la la la la la la / Gleði ríkja skal í bænum / tra la la la la la la la la la.

Þá nýfæddur Jesús í jötunni lá
:Þá nýfæddur Jesús í jötunni lá / á jólunum fyrstu var dýrðlegt að sjá / Þá sveimuðu englar frá himninum hans / því hann var nú fæddur í líkingu manns

Skín í rauðar skotthúfur
Skín í rauðar skotthúfur / skuggalangan daginn / jólasveinar sækja að / sjást um allan bæinn / Ljúf í geði leika sér / lítil börn í desember / inn í frið og ró, útí frost og snjó / því að brátt koma björtu jólin / bráðum koma jólin

Fögur er foldin
Fögur er foldin / heiður er guðs himinn / indæl pílagríms ævigöng / fram, fram um víða / veröld og gistum / í paradís / með sigursöng

Krakkar mínir komið þið sæl
Krakkar mínir, komið þið sæl / hvað er nú á seyði? / Áðan heyrði ég eitthvert væl / upp á miðja heiði

Sjá, himins opnast hlið - In dulci jubilo
Sjá, himins opnast hlið / heilagt englalið / fylking sú hin fríða / úr fagnaðarins sal

Grýla kallar á börnin sín
Grýla kallar á börnin sín / þegar hún fer að sjóða til jóla / Komið þið hingað öll til mín / Nípa, Típa / Næja, Tæja

Ég sá mömmu kyssa jólasvein
Ég sá mömmu kyssa jólasvein / við jólatréð í stofunni í gær / Ég læddist létt á tá / til að líta gjafir á / hún hélt ég væri steinsofandi / Stínu dúkku hjá.

Jólasveinar einn og átta
Jólasveinar einn og átta / ofan komu úr fjöllunum / Í fyrrakvöld þeir fóru að hátta / fundu´ann Jón á Völlunum.

Hátíð fer að höndum ein
Hátíð fer að höndum ein / hana vér allir prýðum / lýðurinn tendri ljósin hrein / líður að tíðum / líður að helgum tíðum

Hin fyrstu jól
Það dimmir og hljóðnar í Davíðsborg / í dvala sig strætin þagga / í bæn hlýtur svölun brotleg sál / frá brunni himneskra dagga / öll jörðin er sveipuð jólasnjó / og jatan er ungbarnsvagga.

Það á að gefa börnum brauð
Það á að gefa börnum brauð / að bíta í á jólunum / Kertaljós og klæðin rauð / svo komist þau úr bólunum.

Göngum við í kringum...
Göngum við í kringum einiberjarunn / einiberjarunn, einiberjarunn / Göngum við í kringum einiberjarunn / snemma á mánudagsmorgni.

Hvít jól
Ég man þau jólin mild og góð / er mjallhvít jörð í ljóma stóð / stöfuð stjörnum bláum / frá himni háum

Jólasveinar ganga um gólf
Jólasveinar ganga um gólf / með gildan staf í hendi / móðir þeirra sópar gólf / og flengir þá með vendi.

Frá ljósanna hásal
Frá ljósanna hásal, ljúfar stjörnur stara / og stafa um næturhúmið geislakrans / Fylkingar engla, létt um loftin fara / og ljúfir söngvar hljóma / um lífsins helgidóma

Gilsbakkaþula
Kátt er á jólunum, koma þau senn / þá munu upp líta Gilsbakkamenn / upp munu þeir líta og undra það mest / úti sjái þeir stúlku og blesóttan hest / úti sjái þeir stúlku, sem um talað varð / "Það sé ég hér ríður hún Guðrún mín um garð / það sé ég hér ríður hún Guðrún mín heim."