Strætó

Frávik á leiðum Strætó vegna Kvennafrídagsins
Klukkan 09:00 lokaði Kalkofnsvegur vegna uppsetningar á sviði gegnt Arnarhóli og leið 14 mun því aka hjáleið um Ánanaust og Hringbraut fram á kvöld.

Prime Tours hættir akstri
Skiptastjóra þrotabús Prime Tours ehf. hefur tilkynnt Strætó að öllum akstri á vegum þrotabúsins fyrir akstursþjónustu fatlaðs fólks hefur verið hætt.

Fleiri tilfelli hjá Strætó en gefið var upp
Strætó hefur notast við starfsfólk starfsmannaleigu lengur en fyrirtækið greindi upphaflega frá.

70 þúsund króna húsaleiga var dregin af launum þrjátíu vagnstjóra Strætó
Strætó bs. hafnar því að brotið sé á réttindum og kjörum starfsmanna. Fyrirtækið segist þó hafa dregið 70 þúsund krónur af launum þrjátíu erlendra vagnstjóra sem störfuðu hjá fyrirtækinu sumarið 2018.

Samþykktu að auka aksturstíðni Strætó á stofnleiðum
Í tillögunni felst að stefnt verði að því að leiðir 1, 3 og 6 aki á 7,5 mínútna aksturstíðni frá og með ársbyrjun 2020.

Það er fátt sem toppar gott strætóspjall
Í dag er Bíllausi dagurinn haldinn hátíðlegur víða um heim. Í sumum borgum er ekki bíl að sjá á götum borgarinnar þennan dag heldur fyllast þær af fjölskyldufólki og fólki á öllum aldri á reiðhjólum og öðrum umhverfisvænum farskjótum. Úr verður skemmtileg borgarhátíð með uppákomum sem henta flestum.

Strætó vísar ásökunum Sönnu um níðingsskap til föðurhúsanna
Sanna sakaði fyrirtækið um að "leigja fólk“ í gegnum starfsmannaleigur og greiða því "lægstu laun“ á borgarstjórnarfundi á þriðjudag.

Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur strætó og fólksbíls
Árekstur varð á Bústaðavegi rétt fyrir klukkan níu í morgun þegar strætisvagn og fólksbíll rákust saman. Samkvæmt varðstjóra hjá slökkviliðinu var einn fluttur á slysadeild með minniháttar meðsli.

Gera ráð fyrir að bílaumferð víki fyrir gangandi vegfarendum við Hlemm
Bílaumferð víkur fyrir gangandi vegfarendum í tillögum að nýju heildarútliti svæðisins við Hlemm. Samgöngustjóri Reykjavíkur vonar að framkvæmdir geti hafist næsta sumar, en nýtt deiliskipulag fer í vinnslu í haust.

Skutluþjónusta í boði á Menningarnótt
Strætó hvetur ökumenn til að nýta sér skutluþjónustu sem verður í boði á Menningarnótt. Þannig munu strætisvagnar aka frá Laugardalshöll, um Borgartún, að Hlemmi og beinustu leið upp að Hallgrímskirkju og til baka.

Sérstakar strætóskutlur starfræktar
Strætó er ókeypis frá 07:00-01:00 á morgun vegna Menningarnætur. Sérstakar strætóskutlur verða starfræktar sem munu aka án sérstakrar tímatöflu.

Vagnstjórinn mun ekki aka undir merkjum Strætó framar
Strætisvagnstjóri, sem sást aka glannalega fram úr bifreið, mun ekki aka undir merkjum Strætó héðan í frá. Upplýsingafulltrúi Strætó segir málið grafalvarlegt og þakkar fyrir að ekki fór verr.

Strætó harmar framúraksturinn: Setjast niður með bílstjóra strætisvagnsins í dag
Upplýsingafulltrúi Strætó segir fyrirtækið harma glannalegan framúrakstur strætisvagns í Þrengslum á föstudag. Rætt verður við bílstjórann í dag.

Strætó með glimmervagn í gleðigöngunni
Strætó tekur þátt gleðigöngu Hinsegindaga í ár, í annað sinn frá upphafi.

Fimm nýir rafstrætóar á götum Reykjavíkur
Fimm nýir rafstrætóar bætust í stætisvagnaflotann í Reykjavík í dag en fjórir rafvagnar hafa verið í notkun frá því í mars með góðum árangi. Í vetur koma fimm vagnar í viðbót. Vagnarnir fjórtán sem Strætó kaupir kostar um 880 milljónir króna.

Bjuggust við fleirum í strætisvagninn til Eyja
Vinkonurnar Vigdís og Stefanía voru á leið á sínu fyrstu Þjóðhátíð í gær og tóku enga áhættu og mættu fjörutíu mínútum fyrir brottför strætó í Landeyjahöfn.

Svona verður þjónusta Strætó í kringum stórtónleika Guns N´ Roses
Strætó mun þreyta ákveðna frumraun í kvöld og en fyrirtækið hvetur sem flesta til þess að sýna skilning og þolinmæði á þeim aðstæðum sem kunna að myndast í umferðinni í kringum tónleikasvæðið.

Strætóbílstjóri lét farþega hlaupa apríl
Farþegum um borð í strætisvagni, nánar tiltekið leið 11, brá heldur betur í brún í gær þegar vagnstjórinn stöðvaði skyndilega vagninn við stoppistöð á Fríkirkjuvegi og bað alla um að fara út.