

Hringbraut í vesturbæ Reykjavíkur var lokað til vesturs í morgun vegna áreksturs bifreiða.
Tveir erlendir ferðamenn létust í alvarlegu umferðarslysi sem varð laust fyrir klukkan tíu í morgun á Þjóðvegi 1 skammt vestan við afleggjarann að Skaftafelli. Tvær bifreiðar sem komu úr gagnstæðum áttum skullu saman, en mikil ísing var á vettvangi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.
Sex af þeim átta sem slösuðust í árekstri á hringveginum nærri Svínafellsjökli eru á leiðinni til Reykjavíkur með tveimur þyrlum Landhelgisgæslunnar. Von er á þeim á Landspítalann í Fossvogi upp úr klukkan eitt.
Yfirlögregluþjónn á Suðurlandi segir mikla hálku vera við Skaftafell þar sem tveir fólksbílar skullu saman í morgun og átta slösuðust. Tveir eru alvarlega slasaðir og fólkið hefur enn ekki verið flutt á sjúkrahús.
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð á Suðurlandi eftir árekstur tveggja bíla á þjóðveginum við Svínafellsjökul á Suðurlandi. Átta eru sagðir slasaðir þar af tveir alvarlega. Þyrlur Landhelgisgæslunnar eru á leiðinni á vettvang. Lokað hefur verið umferð um veginn vegna slyssins.
Fólkið sem lést í umferðarslysi á Grindavíkurvegi hét Frímann Grímsson og Margrét Á. Hrafnsdóttir. Þau voru hjón og láta eftir sig tvö uppkomin börn, tengdabörn og barnabörn.
Kennari að nafni Bob fann íhlutinn sem losnaði af Boeing 737 Max 9 vélinni sem þurfti að snúa við skömmu eftir flugtak þegar gat myndaðist á skrokk vélarinnar.
Þann 2.febrúar árið 2022 átti sér stað skelfilegur harmleikur við Framhaldsskólann á Laugum í Reykjadal. Hópur nemenda hafði verið að renna sér í snjó í brekku við skólann; hefð sem hefur tíðkast í áratugi. Einn nemandinn, Kristinn Aron Curtis Arnbjörnsson varð fyrir bíl og lést. Hann var einungis 19 ára gamall. Samfélagið í Þingeyjarsveit var slegið.
Öryggisstjóri segir stórhættulega hálku myndast á Grindavíkurvegi vegna uppgufunar frá Seltjörn og orkuverinu í Svartsengi. Hálkuvörnum sé ekki sinnt nógu reglulega til að bregðast við því. Upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir vetrarþjónustu miðast við umferðarmagn og veðuraðstæður hverju sinni.
Steypustöðin hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna banaslyssins á Grindavíkurvegi í gær. Í tilkynningunni segir að hugur Steypustöðvarinnar sé hjá aðstandendum hinna látnu og að fyrirtækið vinni með rannsóknaraðilum til að veita allar tiltækar upplýsingar.
Tveir létust í alvarlegu umferðarslysi sem átti sér stað á tólfta tímanum í dag á Grindavíkurvegi. Lögreglan á Suðurnesjum hefur tildrög slyssins til rannsóknar.
Alvarlegt umferðarslys varð á Grindavíkurvegi þegar tveir bílar rákust saman upp úr hálf tólf í dag.
Bílvelta varð á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi skömmu fyrir klukkan fimm í morgun.
„Það er mikil mildi að ekki fór verr,“ segir Guðmundur Berg, hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, um farm úr járni sem féll af vörflutningabíl á Hringbraut í Reykjavík um tvöleytið í dag.
Bílvelta varð við Lögbergsbrekku um hálf tíuleytið í dag. Brekkan er skammt frá höfuðborgarsvæðinu þegar keyrt er austur fyrir fjall.
Nú hækkar sól á lofti og daginn fer að lengja. Þrátt fyrir það kallar okkar daglega líf á það að við þurfum að vera að aka í myrkri og slæmu skyggni. Ljóst er að akstur í myrkri er varasamari en akstur í dagsbirtu.
Karlmaður hefur verið dæmdur til eins mánaðar skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að hafa valdið banaslysi við Hítará í sumar af stórfelldu gáleysi. Slysið var talið mega rekja til þess að maðurinn hafi verið ófær um að stjórna bifreið vegna þreytu.
Fjölmennar bænastundir voru haldnar á þremur stöðum í gær vegna alvarlegs bílslyss fyrir tæpri viku síðan. Kona á sjötugsaldri lést í slysinu. Tvö liggja enn þungt haldin á spítala.
Konan sem lést í umferðarslysinu sem varð við Vesturlandsveg á miðvikudag hét Jóninna Huld Haraldsdóttir.
Tveir voru fluttir á sjúkrahús eftir að bíl velti á Háaleitisbraut fyrr í kvöld.
Því hefur verið beint til starfsmanna Ólafsvíkurhafnar að yfirfara verklag sitt við móttöku stærri skipa eftir að flutningaskipið Wilson Hook strandaði við komuna til hafnar í mars síðastliðnum.
Kerfisbundin mistök og skortur á samskiptum urðu til þess að farþegaþota Icelandair á leið frá Seattle lenti í október árið 2019 á flugbraut í Keflavík þar sem önnur flugvél var fyrir.
Tíu bíla árekstur varð á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi í kvöld og var einn fluttur á slysadeild. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu hlutu fleiri minniháttar áverka.
Einn lést í alvarlegu umferðarslysi á Vesturlandsvegi til mót við Skipanes á fjórða tímanum í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Vesturlandi.
Alvarlegt bílslys varð á Þjóðvegi 1 nærri Skipanesi norður af Akrafjalli á fjórða tímanum í dag. Þrír eru slasaðir og var þyrla Landhelgisgæslunnar send norður til aðstoðar.
Flutningabíll fór á hliðina við stóra hringtorgið við Fitjar á Reykjanesbraut við samnefndan bæ á leiðinni vestur. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu slasaðist enginn alvarlega.
Ökumaður sem lést í umferðarslysi á Akrafjallsvegi í grennd við Hvalfjarðargöng þann 22. júlí í fyrra reyndist hafa verið á örvandi efnum sem gerði það að verkum að hann var óhæfur til aksturs. Þá er sennilegt að hann hafi hraðast ekið um á tvöföldum leyfðum hámarkshraða.
Tveir voru fluttir á slysadeild Landspítalans til skoðunar eftir að bíll fór út af Kaldárselsvegi, ekki langt frá Hvaleyrarvatni í Hafnarfirði, klukkan rúmlega eitt í nótt.
Ökumaður ók bíl út af veginum á nýja kafla Vesturlandsvegar um Kjalarnes. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild til skoðunar en áverkar hans voru ekki alvarlegir og var hann með meðvitund.
Þriggja bíla árekstur varð á gatnamótum Þorlákshafnarvegar og Eyrarbakkavegar um eitt leytið í dag.