Seðlabankinn

Seðlabankinn fylgist með áhrifum Wuhan-kórónaveirunnar á hagkerfið
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum Wuhan-kórónaveirunnar á efnahagslífið í nýjustu spám Seðlabanka Íslands að sögn seðlabankastjóra.

Mesti samdráttur í útflutningi í tæp þrjátíu ár
Efnahagshorfur á þessu ári og næsta versna mikið frá fyrri spám Seðlabankans sem er reiðubúinn að lækka vexti niður í núll ef á þurfi að halda. Samdráttur í útflutningi hefur ekki verið meiri en í fyrra í tæp þrjátíu ár.

Bein útsending: Peningastefnunefnd rökstyður stýrivaxtaákvörðun
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skýrir frá ákvörðun sinni um að lækka stýrivöxti bankans í 2,75% á fundi sem hefst klukkan 10 í Seðlabankanum.

Stýrivextir lækka í 2,75 prósent
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentur.

Vonar að Ísland komist af gráum lista í október
Vera Íslands á gráa listanum hefur að sögn Seðlabanka Íslands enn sem komið er ekki haft áhrif á starfsemi aðila á borð við tryggingafélög og lífeyrissjóði á Íslandi.

Gunnhildur Arna á eftir að ákveða hvort hún krefjist bóta
Seðlabankinn unir úrskurði kærunefndar jafnréttismála um að bankinn hafi brotið jafnréttislög þegar hann réð í starf upplýsingafulltrúa bankans á síðasta ári. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir blaða-og dagskrárgerðarmaður sem kærði ráðninguna hefur ekki ákveðið hvort hún fari fram á bætur, mestu skipti að bankinn fari að lögum.

Seðlabankinn braut jafnréttislög við ráðningu upplýsingafulltrúa
Seðlabankinn braut jafnréttislög þegar hann réð Stefán Rafn Sigurbjörnsson sem upplýsingafulltrúa bankans á síðasta ári. Þetta er niðurstaða kærunefndar jafnréttismála.

Fyrrverandi aðstoðarforstjóri FME meðal þeirra sem hætta
Átta störf í Seðlabanka Íslands lögðust niður í gær með gildistöku nýs skipurits stofnunarinnar.

Átta sagt upp hjá Seðlabankanum
Nýtt skipurit stofnunarinnar tók gildi í dag.

Telur að ferðaþjónustan geti ekki leitt hagvöxt til lengdar
Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri segir að bankinn hafi gripið til aðgerða eftir fall WOW air og lækkað vexti. Þeir séu nú í sögulegu lágmarki hér á landi en muni lækka meira ef þörf sé á.

Þarf að breyta Seðlabankanum til að koma starfsfólki fyrir
Ráðast þarf í breytingar á húsnæði Seðlabanka Íslands til að skapa rými fyrir allt starfsfólk nýrrar sameinaðar stofnunar. Fjármálaeftirlitið er ekki lengur til þar sem það sameinaðist seðlabankanum undir nafni Seðlabanka Íslands um áramótin.

Gunnar Jakobsson skipaður varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika
Forsætisráðherra hefur skipað Gunnar Jakobsson lögfræðing í embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika til fimm ára.

Framkvæmdastjóri hjá Goldman Sachs tilnefndur í embætti varaseðlabankastjóra
Fjármála- og efnahagsráðherra hefur tilnefnt Gunnar Jakobsson í embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika. Forsætisráðherra skipar í embættið.

Frekari vaxtalækkun komi til greina ef á þarf að halda
Meginvextir bankans eru í sögulegu lágmarki en seðlabankastjóri segir til greina koma að lækka vexti frekar ef á þarf að halda.

Bein útsending: Peningastefnunefnd rökstyður stýrivaxtaákvörðun
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skýrir frá ákvörðun sinni um að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum á fundi sem hefst klukkan 10 í Seðlabankanum.

Stýrivextir haldast óbreyttir
Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 3%.

Óttast um gjaldþrot seðlaprentara íslenska ríkisins
Mjög er óttast um fjárhagslega stöðu breska fyrirtækisins De La Rue sem prentað hefur íslenska peningaseðla fyrir Seðlabanka Íslands í fleiri áratugi.

Hannes sem reiður hani á Facebook-vegg Øygards
Hannes Hólmsteinn fer mikinn á Facebook-síðu Sveins Haralds Øygards.

Haukur yfir fjármálastöðugleika hjá Seðlabankanum
Haukur Camillus Benediktsson hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra fjármálastöðugleika hjá Seðlabanka Íslands. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum.

„Enn eitt dæmið“ um af hverju er mikilvægt að rannsaka fjárfestingaleið Seðlabankans
Þingmenn Pírata, Samfylkingarinnar og Viðreisnar vilja að skipuð verði þriggja manna rannsóknarnefnd sem falið verði að rannsaka svokallaða fjárfestingaleið Seðlabankan Íslands.

Engin áform um að hækka Seðlabanka um tvær hæðir
Seðlabankastjóri telur ekki tímabært að ráðast í byggingu tveggja hæða ofan á núverandi höfuðstöðvar Seðlabankans.

Grínaðist með að Skúli hefði getað frestað hruninu til 2010
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri fékk gesti á Peningamálafundi Viðskiptaráðs til að skella upp úr á Hilton Nordica í morgun. Fundurinn bar yfirskriftina Ótroðnar lágvaxtaslóðir

Viðskiptastríð Bandaríkjanna og Kína lækkar hagvöxt á Íslandi
Stýrivextir hafa verið lækkaðir um 1,5 prósentur frá því vor og standa nú í 3 prósentum. Flestar aðrar kennitölur í peningamálum bankans horfa hins vegar til verri vegar.

Vextir á Íslandi hafa aldrei verið lægri
Stýrivexti og raunvextir hafa aldrei verið eins lágir á Íslandi og nú eftir að Seðlabanki Íslands lækkaði stýrivexti niður í þrjú prósent í morgun. Bankinn reiknar með að verðbólga verði komin niður í markmið hans fyrir áramót.

Bein útsending: Peningastefnunefnd rökstyður vaxtalækkun
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skýrir frá ákvörðun sinni um að lækka vexti bankans um 0,25 prósentustig á fundi í Seðlabankanum sem hefst klukkan 10.

Stýrivextir halda áfram að lækka
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 3%.

„Sérstakir samningar“ upp á allt að 4,2 milljónir
Sex af átta starfsmönnum Seðlabanka Íslands, sem fengið hafa "sérstaka samninga“ vegna námsstyrkja frá árinu 2015, starfa enn í Seðlabankanum.

Birta samskipti Ingibjargar og starfsmanns RÚV í aðdraganda húsleitarinnar
Seðlabanki Íslands birti í gær minnisblað, sem innri endurskoðandi bankans tók saman að beiðni seðlabankastjóra um samskipti starfsmanna bankans við Ríkisútvarpið í aðdraganda húsleitar hjá Samherja í mars 2012.

Skattaleg áhrif af samningi við starfsmann Seðlabankans óviss
Líklegt er að Seðlabanki Íslands hafi dregið frá staðgreiðslu skatts á átta milljóna króna greiðslum til Ingibjargar Guðbjartsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits bankans.

Samherjamálið sent á Vestfirði vegna vanhæfis Sigríðar Bjarkar
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, lýsti sig vanhæfa í Samherjamálinu svokallaða og hefur erindi forsætisráðuneytisins í málinu því verið sent til lögreglustjórans á Vestfjörðum.