Viðskipti
103 104 105 106 107 108 109 110 111 … 223 ›
Síminn fyrstur á Íslandi með WiMAX tækni Síminn býður viðskiptavinum sínum aðgang að samskiptaneti sem nýtir WiMAX tækni. Um er að ræða þráðlaust net sem hentar vel fyrir bandbreiðar Internetteningar. Nú þegar er þessi þjónustu í tilraunarekstri fyrir sumarhúsasvæði í Grímsnesi. Í tilkynningu segir að Síminn sé fyrst fyrirtækja á Íslandi til að bjóða upp á þessa tækni. Viðskipti innlent 17.11.2006 13:41
Thai Airways íhugar að hætta við kaup á risaþotu Wallop Bhukkanasut, einn af æðstu stjórnendum taílenska ríkisflugfélagsins Thai Airways, segir tafir á afhendingu A380 risaþotum flugfélagsins hafa orðið til þess að flugfélagið verði að endurskoða langtímaáætlanir sínar. Svo getur farið að flugfélagið falli frá kaupum á risaþotunum. Erlent 17.11.2006 13:27
Góð afkoma hjá Atorku Group Fjárfestingafélagið Atorka Group skilaði rúmlega 555 milljóna króna hagnaði á þriðja fjórðungi ársins samanborið við 224 milljóna króna hagnað á sama tíma í fyrra. Félagið skilar uppgjöri sínu í tvennu lagi: Uppgjöri móðurfélags og samtæðu Atorku Group. Viðskipti innlent 17.11.2006 12:39
Íbúðaverð lækkar á höfuðborgarsvæðinu Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 2,2% á milli september og október. Þetta kemur fram í tölum sem Fasteignamat ríkisins birti í gær. Greiningardeild Glitnis segir í Morgunkorni sínu í dag að íbúðaverð hafi verið sveiflukennt að undanförnu, bæði hækkað og lækkað á víxl á milli mánaða. Viðskipti innlent 17.11.2006 12:01
House of Fraser óskar eftir afslætti frá birgjum Framkvæmdastjórn bresku verslanakeðjunnar House of Fraser (HoF) mun í næstu viku senda birgjum bréf þar sem þess er óskað að versluninni verði veittur afsláttur á vörum auk þess sem greiðslufrestur verði lengdur. Kaupum Baugs og fleiri fjárfesta á HoF lauk í síðustu viku en heildarfjármögnun nemur 77 milljörðum króna. Viðskipti erlent 17.11.2006 11:33
Stefnt að skráningu Teymis í Kauphöllina Stofnfundur fjarskipta- og upplýsingatæknifélagsins Teymis hf. var haldinn í morgun. Stefnt er að skráningu félagsins í Kauphöll Íslands. Stjórnarformaður félagsins er Þórdís J. Sigurðardóttir en forstjóri Teymis er Árni Pétur Jónsson. Viðskipti innlent 17.11.2006 11:25
Samdráttur hjá Starbucks Bandaríska kaffihúsakeðjan Starbucks, sem er ein sú stærsta í heimi, skilaði 117,3 milljónum bandaríkjadala í hagnað á þriðja fjórðungi ársins. Þetta svarar til rúmlega 8,2 milljarða íslenskra króna, sem jafnframt er 5 prósentum minni hagnaður en keðjan skilaði fyrir ári. Viðskipti erlent 17.11.2006 09:44
Framkvæmdastjóraskipti hjá Iceland Express Matthías Imsland hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Iceland Express. Matthías mun sinna starfinu tímabundið ásamt öðrum störfum fyrir eignarhaldsfélagið Fons ehf. Matthías er stjórnarformaður sænska ferðarisans Ticket og breska flugfélagsins Astreaus og situr hann einnig í ýmsum stjórnum stórfyrirtækja fyrir Fons ehf. Viðskipti innlent 17.11.2006 10:52
Jón Ásgeir nýr stjórnarformaður 365 Ákveðið var á hluthafafundi Dagsbrúnar í dag að félaginu verði skipt upp í tvö félög: fjölmiðlahluta 365 og Teymi, sem snýr að upplýsingatækni- og fjarskiptahluta félagsins. Stjórnin hefur kosið formenn og verður Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður fjölmiðlahlutans. Viðskipti innlent 17.11.2006 09:52
Skipt um stjórnarformann í Icelandic Group Stjórnarformannsskipti hafa átt sér stað í Icelandic Group. Í tilkynningu frá félaginu segir, að í ljósi breytinga á eignaraðild að félaginu hafi Gunnlaugur S. Gunnlaugsson, stjórnarformaður, ákveðið eftir stjórnarfund í gær að láta af embætti. Nýr stjórnarformaður var kjörinn Magnús Þorsteinsson. Viðskipti innlent 17.11.2006 09:50
Ná ekki væntingum Uppgjör Icelandic Group fyrir þriðja ársfjórðung var undir væntingum stjórnenda félagsins, þótt ýmsar aðgerðir sem gripið hefur verið til séu að byrja að bera árangur. Hagnaður nam 84 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi en hagnaður fyrir afskriftir, vexti og skatta (EBITDA) 1.202 milljónum króna. Viðskipti innlent 17.11.2006 00:06
Bankastjóri þiggur landbúnaðarstyrki Björn Wahlroos, þriðji ríkasti maður Finnlands og forstjóri fjármálasamsteypunnar Sampo Group, er einn stærsti þiggjandi landbúnaðarstyrkja frá finnskum stjórnvöldum samkvæmt upplýsingum sem Halikko, sveitarfélagið hans, lét finnska útvarpinu í té. Viðskipti innlent 17.11.2006 00:06
Kaupa meira í HB Granda Kaupþing jók hlut sinn í HB Granda í 30,9 prósent í gær eftir að SJ1, dótturfélag Sjóvár, seldi bankanum rúmlega fimm prósenta hlut. Bankinn er enn þá annar stærsti hluthafinn í Granda á eftir Vogun sem fer með tæp 35 prósent. Viðskipti innlent 17.11.2006 00:06
Dagsbrún gerir 1,5 milljarða króna varúðarfærslu Dagsbrún bókfærir tap af Wyndeham í varúðarfærslu og ætlar að selja félagið. Þetta kemur fram í afkomuviðvörun sem send var Kauphöll eftir lokun markaða í gær. Í dag á að ganga frá skiptingu félagsins og skipulagsbreytingum á fundi hluthafa. Viðskipti innlent 17.11.2006 00:06
Alfesca ofar vonum Afkoma Alfesca á fyrsta fjórðungi reikningsárs síns var neikvæð um 1,8 milljónir evra, sem svarar til 161,6 milljóna íslenskra króna. Er það nokkuð betri afkoma en meðaltalsspá greiningardeilda bankanna sem hljóðaði upp á um 215 milljóna króna tap. Viðskipti erlent 17.11.2006 00:06
Reader's Digest skiptir um eigendur Bandaríski fjárfestingasjóðurinn Ripplewood Holding hefur keypt bandaríska útgáfufélagið Reader's Digest, sem gefur úr samnefnt tímarit. Kaupverð nemur 1,6 milljörðum bandaríkjadala eða rúmlega 112 milljörðum íslenskra króna. Fyrsta tölublað Reader's Digest kom út árið 1922 í Bandaríkjunum og er talið að 80 milljónir manna lesi það. Viðskipti erlent 16.11.2006 22:15
Dagsbrún sendir frá sér afkomuviðvörun Dagsbrún sendi í dag frá sér afkomuviðvörun vegna níu mánaða uppgjörs. Stjórn fyrirtækisins hefur jafnframt ákveðið að ganga til viðræðna við hugsanlega kaupendur á meirihluta hlutafjár í Daybreak Acquisitions, móðurfélagi Wyndeham press Group PLC, sem er þriðja stærsta prent- og samskiptafyrirtæki Bretlands. Innlent 16.11.2006 17:49
Flaga skilaði tapi Flaga Group tapaði 107.000 bandaríkjadölum eða 7,5 milljónum króna á þriðja fjórðungi ársins. Þetta nokkur viðsnúningur frá sama tíma í fyrra þegar félagið hagnaðist um 800.000 dali eða 56 milljónir króna. Viðskipti innlent 16.11.2006 16:38
Sigurður Einarsson ræðir um skrif Ekstrablaðsins Sigurður Einarsson stjórnarformaður Kaupþings, hefur boðað til fundar með blaða- og fréttamönnum í húskynnum FIH bankans í Kaupmannahöfn í Danmörku á morgun. Tilefnið er útboð á nýjum hlutum í bankanum og skrif Ekstrablaðsins um bankann. Viðskipti innlent 16.11.2006 16:21
Tilboð MAN í Scania fellt Sænski fjárfestingasjóðurinn Investor AB, felldi nú síðdegis yfirtökutilboð þýsku vöruflutningaframleiðendanna hjá MAN í sænsku vörubílasmiðju Scania, sem MAN lagði fram í dag. Viðskipti erlent 16.11.2006 16:10
Afkoma Alfesca yfir væntingum Matvælafyrirtækið Alfesca skilaði 1,8 milljóna evra tapi á síðasta rekstrarári, sem hófst í júlí í fyrra en lauk í enda júní. Þetta svarar til 161,6 milljóna íslenskra króna samanborið við 3,3 milljónir evra eða 296 milljóna króna tap í fyrra. Afkoman er nokkuð yfir væntingum greiningardeilda sem spáðu að tapið myndi nema rúmum 215 milljónum króna eða 2,4 milljónum evra. Viðskipti innlent 16.11.2006 15:49
Vísitala neysluverð lækkaði vestanhafs Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,5 prósent í október. Þetta er annar mánuðurinn í röð sem vísitalan lækkar en helsta ástæðan er verðlækkun á eldsneytisverði og raforkuverði. Þetta er meiri lækkun en greiningaraðilar bjuggust við. Viðskipti erlent 16.11.2006 14:00
MAN gerir óvinveitt tilboð í Scania Þýski vörubílaframleiðandinn MAN gerði í dag óvinveitt yfirtökutilboð í sænska samkeppnisaðilann Scania. Tilboðið er óbreytt frá upphaflegu yfirtökutilboði, sem MAN gerði í Scania í september. Þýski bílaframleiðandinn Volkswagen, sem er stærsti hluthafinn í bæði MAN og Scania segir fyrirtækin verða að taka ákvörðun um næstu skref á morgun. Viðskipti erlent 16.11.2006 13:30
Verðbólga lækkar á evrusvæðinu Verðbólga mældist 1,6 prósent á evrusvæðinu í síðasta mánuði. Þetta er 0,1 prósentustigi minni verðbólga en mældist á evrusvæðinu í september. Þetta er jafnframt annar mánuðurinn í röð sem verðbólgan lækkar á milli mánaða en verðbólgan hefur ekki mælst minni síðan í febrúar árið 2004. Viðskipti erlent 16.11.2006 11:12
Smásöluverslun jókst umfram væntingar Velta í smásöluverslun í Bretlandi jókst um 0,9 prósent í síðasta mánuði, samkvæmt útreikningum bresku hagstofunnar. Þetta er þrisvar sinnum meira en greiningaraðilar höfðu reiknað með enda talsverð aukning frá því í september en þá dróst velta í smásöluverslun saman um 0,4 prósent á milli mánaða. Viðskipti erlent 16.11.2006 09:56
Hagnaður Euronext jókst um 8 prósent Hagnaður samevrópska hlutabréfamarkaðarins Euronext nam 92,28 milljónum evra, um 8,4 milljörðum íslenskra króna, á þriðja ársfjórðungi. Þetta jafngildir tæplega 8 prósenta meiri hagnaði en á sama tíma í fyrra. Viðskipti erlent 16.11.2006 09:37
Óbreyttir stýrivextir í Japan Seðlabanki Japans hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 0,25 prósentum. Bankinn hækkaði vextina um 25 punkta í júlí síðastliðnum og lét þar með af núllvaxtastefnu sinni, sem hafði verið viðvarandi undanfarin fimm ár. Viðskipti erlent 16.11.2006 09:25
IP-netið endurnýjað Síminn hefur stækkað IP-net (internet protocol net) sitt verulega og býður nú enn öruggari og hraðari gagnaflutninga. Viðskipti innlent 15.11.2006 21:45
Icelandair skilaði fjórum milljörðum: Stefnt að skráningu félagsins sjötta desember. Hagnaður Icelandair Group, sem stefnt verður á að skrá í Kauphöll Íslands hinn 6. desember, nam rúmum þremur milljörðum króna fyrir skatta á þriðja ársfjórðungi og tæpum fjórum milljörðum króna fyrir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins. Viðskipti innlent 15.11.2006 21:45
Með Windows í gemsanum Windows Mobile heitir ný lausn fyrir viðskiptavini Vodafone sem gerir þeim mögulegt að fá Windows-umhverfið í GSM síma. Með Windows Mobile er hægt með einföldum hætti að sækja tölvupóst, dagbók, tengiliða- og verkefnalista, auk þess að nota MSN í símtækinu. Viðskipti erlent 15.11.2006 21:45