
Viðskipti

Kaupin á Orkla ekki lykilatriði
Dagsbrún ætlar að gefa út fríblað í Danmörku, með Fréttablaðið sem fyrirmynd, hvort sem keypt verður í norsku fjölmiðlasamsteypunni Orkla Media eða ekki. Samkvæmt heimildum blaðsins er stefnt að útgáfu seinnipart sumars eða í haust.

Fjögurra milljarða króna hagnaður
Hagnaður Símans jókst um 30 prósent milli áranna 2004 og 2005. Hagnaður ársins 2005 var 4.032 milljónir króna en 3.090 milljónir króna árið 2004. Rekstrartekjur jukust um tæp 8 prósent á árinu, voru 20.419 milljónir króna árið 2004 en 22.041 milljónir króna nú.

Kaupa hástökkvara
Straumur-Burðarás hefur eignast 5,5 prósenta hlut í norska netleikjaframleiðandanum Funcom. Verðmæti hlutarins er í kringum 750 milljónir króna.

Strax kaupir more
Velta Strax-samstæðunnar, sem framleiðir aukabúnað fyrir farsíma, verður um 250 milljónir bandaríkjadala á þessu ári, sem samsvarar tæpum sextán milljörðum króna, eftir að félagið keypti þýska dreifingaraðilann more International. Velta samstæðunnar meira en tvöfaldaðist við yfirtökuna.

Framleiða í Tékklandi
Skortur á verkfræðingum í Danmörku er ástæðan fyrir því að raftækjaframleiðandinn Bang & Olufsen hefur opnað sína fyrstu verksmiðju í útlöndum.

Hagar selja Skeljung og kaupa í Kringlunni
Hagar hasla sér völl í sérvöruverslun á nýjan leik með kaupum á fimm verslunum í Kringlunni. Pálmi Haraldsson í Fons hafði frumkvæði að því að kaupa Shell.

Straumur kaupir í Funcom
Straumur-Burðarás hefur keypt 5,5 prósenta hlut í norska tölvuleikjaframleiðandanum Funcom sem framleiðir netleiki. Hluturinn var keyptur í lokuðu hlutafjárútboði en allur eignarhluti Straums er metinn á tæpar 800 milljónir króna.
Endurgreiða sér kaupin á verslunarkeðjunni Iceland
Kaupendur Iceland hafa greitt sér upphaflega fjárfestingu til baka og gert upp fjármögnun vegna skuldsettra kaupa við Landsbankann.
Hagnaður OM eykst
Hagnaður Old Mutual (OM) jókst um 30 prósent milli áranna 2004 og 2005 sem skýrist af miklum vexti á suður-afrískum bankamarkaði í gegnum Nedbank. Var uppgjörið fyrir ofan spár markaðarins en hafði ekki áhrif til hækkunar á gengi bréfa félagsins.
Exista með Íslandsmet í hagnaði á einu ári
Exista, fjárfestingarfélag í eigu bræðranna í Bakkavör, KB banka og nokkurra sparisjóða, skilaði samkvæmt heimildum Markaðarins 50,3 milljörðum króna í hagnað í fyrra. Þetta er mesti hagnaður íslensks félags á einu ári, en fyrra metið átti KB banki sem hagnaðist um 49,3 milljarða í fyrra.
Enginn fær Express
Iceland Express hefur verið tekið úr sölumeðferð hjá KB banka samkvæmt upplýsingum frá bankanum.
Gengi krónunnar styrkist
Sérfræðingar telja að markaðurinn hafi brugðist óþægilega hart við skýrslu Fitch í byrjun síðustu viku þar sem breytt var horfum á lánshæfismati ríkisins. Í gærmorgun styrktist gengi krónunnar í kjölfar útgáfu Rabobank á svokölluðum krónubréfum að andvirði nær fimm milljarða króna. Útgáfan er til eins árs og virðist Rabobank því lítið gefa fyrir spár um veikingu krónunnar.

Penninn tapaði samningi við ríkið
Penninn féll út úr rammasamingi Ríkiskaupa fyrir stofnanir um kaup á ritföngum. Samningurinn veltir um 100 milljónum króna á ári hverju. Penninn hefur tölvusölu í næstu viku.

Gott uppgjör Bakkavarar
Bakkavör Group skilaði 3,5 milljarða hagnaði árið 2005 og var uppgjörið í góðum takti við væntingar markaðarins. Á fjórða ársfjórðungi, sem var besti hluti ársins, skilaði félagið um 1.229 milljóna króna hagnaði.

Aldrei bjartsýnni
Væntingarvísitala Gallup hækkaði í febrúar um rúmlega ellefu stig og fór í sitt hæsta gildi síðan byrjað var að mæla væntingar neytenda með þessum hætti árið 2001. Í Morgunkorni Íslandsbanka er talið líklegt að mikil umfjöllun um gott gengi íslenskra fyrirtækja í ársbyrjun, hækkanir í Kauphöllinni og umræðan um frekari álversframkvæmdir hafi virkað til hækkunar vísitölunnar.

Methagnaður Sparikassans
Föroya Sparikassi, stærsti stofnfjáreigandinn í SPRON, skilaði methagnaði á síðasta ári eða 1,3 milljörðum króna. Hagnaður fyrir skatta jókst um 47 prósent. Arðsemi eigin fjár eftir skatta var um 12,8 prósent.
Seld fyrir páskana
Gert er ráð fyrir að söluferlinu á Danól og Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni ljúki fyrir páska. Í fyrsta áfanga söluferlisins fá áhugasamir fjárfestar afhent almenn kynningargögn um fyrirtækin og markaðinn og skila inn upplýsingum um sig og ráðgjafa sína. Fjárfestar sem taldir eru koma til greina fá frekari kynningu á fyrirtækjunum.

Skortur jafngildir vaxtalækkun
Vextir ríkisvíxla lækkuðu um rúma 50 punkta frá síðasta útboði, en í gær, þriðjudag, voru boðnir út eins mánaðar víxlar í flokknum RIKV 06 0405. Alls bárust 19 gild tilboð upp á 16 milljarða króna, en aðeins var tekið tilboðum að upphæð fimm milljarðar.
Yfirtökuviðræðum slitið í Low & Bonar
Formlegum yfirtökuviðræðum í Low & Bonar hefur verið slitið eftir margra vikna viðræður stjórnar félagsins og þriðja aðila. Nafn Atorku Group var nefnt í því sambandi en félagið er stærsti hluthafinn í Low & Bonar með um þriggja milljarða eignarhlut að marksvirði.

Úrvalsvísitalan heldur áfram að lækka
Úrvalsvísitalan hefur því lækkað um rúm 3% á þeirri viku sem liðin er frá því að Fitch Ratings breytti horfum í lánshæfismati ríkissjóðs Ísland úr stöðugu í neikvætt. Mest lækkuðu hlutabréf í FL-Group í dag eða um tæp 3% en bréf í Straumi lækkuðu um 1,5% prósent. Gengi krónunnar styrktist í dag um 0,5%.
Bang og Olufsen flytur hluta starfseminnar frá Danmörku
Danski raftækjaframleiðandinn Bang og Olufsen, sem FL Group keypti nýverið hlut í, hefur ákveðið að flytja hluta starfsemi sinnar frá Danmörku bæði vegna skorts á verkfræðingum og til að draga úr launakostnaðil.
Óhagstæð um 11,4 milljarða
Halli á viðskiptum við útlönd í janúar nam tæpum 11,4 milljörðum króna. Á sama tíma í fyrra nam hallinn rúmum 4,3 milljörðum. Samkvæmt tölum Hagstofunnar nam útflutningur í janúar 14,1 milljarði króna, en innflutningur 25,5 milljörðum. Á sama tíma í fyrra nam útflutningur 12,9 milljörðum, en innflutningur tæpum 17,3. Miðað er við fast gengi.

Fjórir úr stjórninni
Sparisjóðir Fjórir af fimm stjórnarmönnum í Sparisjóði Hafnarfjarðar gengu úr stjórn á aðalfundi sem haldinn var á dögunum. Nýir stjórnarmenn eru Jón Auðunn Jónsson, Magnús Ármann, Matthías Imsland, sparissjóðsstjórinn Magnús Ægir Magnússon og Þórður Magnússon, sem átti sæti í gömlu stjórninni.

Vöruskipti óhagstæð um 11,4 milljarða
Halli á viðskiptum við útlönd í janúar nam tæpum 11,4 milljörðum króna. Á sama tíma í fyrra nam hallinn rúmum 4,3 milljörðum. Mest jókst innflutningur neysluvara og flutningatækja, um 23,6 og 14,2 prósent, meðan innflutningur á mat og drykkjarvöru dróst saman um 5,4 prósent.
Íbúðalánasjóður í Kauphöllina
Íbúðalánasjóður hefur viðskipti á skuldabréfamarkaði Kauphallar Íslands sjöunda mars næstkomandi undir auðkenninu ILS. Með aðild Íbúðalánasjóðs verða kauphallaraðilar orðnir 24.
Fitch staðfestir lánshæfi bankanna
Matsfyrirtækið Fitch hefur staðfest óbreytt lánshæfismat allra íslensku bankanna. Þetta kemur í kjölfar fréttar um að fyrirtækið hafi breytt horfum á lánshæfismati ríkissjóðs úr stöðugum í neikvæðar.

SAM-félagið kaupir kvikmyndahús í Danmörku
Úrás íslenskra kaupsýslumanna nær nú til kvikmyndahúsageirans því SAM-félagið, sem rekur meðal annars Sam-bíóin hér á landi, hefur keypt Cinemaxx-kvikmyndahúsakeðjuna í Danmörku. Með kaupunum má búast við að miðasala SAM-félagsins nærri fjórfaldist.

Gengislækkun krónunnar hafði áhrif víða um heim
Gengislækkun krónunnar í gær hafði víðtæk áhrif á alþjóðlegum gjaldeyrismarkaði samkvæmt frétt á heimasíðu Financial Times. Þar er sagt að lækkun krónunnar hafi valdið titringi á mörkuðum með jaðargjaldmiðla sem spákaupmenn hafa sótt í að kaupa í von um háa ávöxtun á sama hátt og erlendir aðilar hafa fjárfest í krónunni í stórum stíl.