Strax kaupir more 2. mars 2006 00:01 Í Dubai. Strax stefnir að því að opna skrifstofu í Dubai á þessu ári og síðar á Íslandi. Á myndinni má sjá nýtískubyggingu gnæfa yfir moskunni Zabil í janúarbyrjun.
Velta Strax-samstæðunnar, sem framleiðir aukabúnað fyrir farsíma, verður um 250 milljónir bandaríkjadala á þessu ári, sem samsvarar tæpum sextán milljörðum króna, eftir að félagið keypti þýska dreifingaraðilann more International. Velta samstæðunnar meira en tvöfaldaðist við yfirtökuna. Kjartan Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri sölumála hjá Strax, segir að félagið sé þar með orðið einn af stærstu dreifingaraðilum á aukavöruhlutum í farsíma í Evrópu. Strax hefur náð sterkri markaðsstöðu í Bretlandi og Danmörku. Stærstu viðskiptavinirnir eru annars vegar farsímafyrirtæki, meðal annars TDC í Danmörku og breska farsímafélagið O2, og hins vegar verslunarkeðjur, internetkeðjur og heildsalar úti um gjörvallan heim. Fyrir samrunann rak Strax skrifstofur í London, Hong Kong og Miami, þar sem höfuðstöðvarnar eru, en more International rekur átta skrifstofur. Á árinu ætlar fyrirtækið að opna söluskrifstofu í Dubai og unnið er að opnun skrifstofu á Íslandi. Stærsti hluthafinn í Strax er Landsbankinn.
Erlent Innlent Viðskipti Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira