Viðskipti

Félag Björgólfs fær farsímaleyfi
Fyrirtæki í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar hefur fengið farsímaleyfi í Póllandi. Fyrirtækinu Netia Mobile, sem Björgólfur Thor stýrir, og pólska símafyrirtækinu Netia var í gær úthlutað svokölluðu UMTS-leyfi í Póllandi, en það er fjórða leyfið sem veitt er fyrir þriðju kynslóð farsíma þar í landi. Búist er við að farsímanotkun Pólverja eigi eftir að aukast verulega.
Flugfloti Sterling tvöfaldaður
Flugfloti flugfélagsins Sterling, sem er í eigu Íslendinga, verður tvöfaldaður á næstunni, að sögn Almars Arnar Hilmarssonar, forstjóra félagsins. Hann segir í samtali við danska blaðið <em>Politiken</em> að gert sé ráð fyrir hagnaði af rekstrinum á þessu ár en tapið á síðasta ári var á annan milljarð króna. Hann segir ljóst að félagið hafi ekki verið keypt fyrir á fjórða milljarð króna til að láta það standa í stað.

Tilboð SPRON í Allianz samþykkt
SPRON hefur fengið samþykki á tilboð sem sparisjóðurinn gerði nýlega í 80% hlutafjár í Hring Eignahaldsfélagi, sem er eignahaldsfélag um Allianz Ísland hf. Baugur Group er stærsti hluthafi Hrings með 65% eignarhlut. Sparisjóður Kópavogs mun áfram eiga um 20% hlut í félaginu.
459 milljóna hagnaður
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum hagnaðist um 459 milljónir á fyrsta ársfjórðungi ársins og eykst hagnaður fyrirtækisins um tæp 70 prósent frá sama tímabili í fyrra. Tekjur félagsins námu 1,7 milljörðum króna.

Aðhefst ekkert vegna auglýsinga
Samkeppnisstofnun telur ekki ástæðu til þess að aðhafast neitt vegna auglýsinga Og Vodafone á Og1, nýrri símaþjónustu fyrir heimili. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Og Vodafone. Landssími Íslands hafði kvartað til Samkeppnisstofnunar vegna auglýsinga fyrir Og 1 og talið þær ólögmætar.

Fagnar átaki ASÍ
Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fagnar átaki ASÍ, Einn réttur - ekkert svindl, sem meðal annars beinist gegn þeim atvinnurekendum sem misnota erlent verkafólk. Hann segir jafnframt að skilgreina þurfi hvaða reglur eigi að gilda á íslenskum vinnumarkaði og að tryggja þurfi aðgengi erlends starfsfólks.

Mikil lækkun krónunnar í gær
Gengi krónunnar lækkaði um rúmlega hálft annað prósent í gær og er dollarinn nú kominn upp undir 64 krónur. Langt er síðan krónan hefur lækkað svo mikið á einum degi. Greiningadeild KB banka rekur þetta annars vegar til þeirrar ákvörðunar fjármálaráðherra að greiða upp erlendar skammtímaskuldir upp á hundrað milljónir dollara umfram áætlanir og hins vegar til breytinga Hagstofunnar á vaxtaþættinum í vísitölu neysluverðs.

Olís á eitt eftir að greiða sekt
Olís hafði skömmu fyrir hádegið ekki greitt sekt sína til ríkissjóðs vegna ólöglegs verðsamráðs olíufélaganna, en Esso fylgdi í gær fordæmi Skeljungs og greiddi sína sekt.

Olís greiðir samráðssekt
Olís greiddi núna áðan sekt sína til ríkissjóðs vegna ólöglegs verðsamráðs olíufélaganna. Esso fylgdi í gær fordæmi Skeljungs og greiddi sína sekt og öll olíufélögin hafa því greitt sektir sínar nú. Sameiginlegar sektir, sem lagðar voru á félögin með ákvörðun áfrýjunarnefndar í janúar, nema um einum og hálfum milljarði króna, þar af greiddi Olís mest.

Mikill bílafjöldi fluttur frá BNA
Gríðarleg ásókn er nú í að flytja inn bæði nýja og notaða bíla frá Bandaríkjunum því þeir eru tollafgreiddir inn í landið á því gengi dollara sem gildir daginn sem afgreiðslan fer fram. Í undirbúningi er að senda hingað bílaflutningaskip til að stytta biðlistann og biðlisti eftir að flytja hingað bíla í flugi er orðinn allt að sex vikur.

Greiddi 560 milljónir í sekt
OLÍS greiddi ríkissjóði 560 milljóna króna sekt fyrir ólögmætt verðsamráð olíufélaganna. Þar með hafa stóru olíufélögin þrjú greitt samtals einn og hálfan milljarð í sektir.
Norðurljós selja 10 prósent
Norðurljós seldu í gær um tíu prósenta hlut í Og fjarskiptum, síma- og fjölmiðlasamsteypunni, fyrir 1,9 milljarða króna. Viðskiptin fóru fram á genginu 4,23 og voru liður í greiðslu til hluthafa í Norðurljósum vegna lækkunar á hlutafé félagsins.
Eldsneytisverð og tíminn skýri tap
Tap lággjaldaflugfélagsins Sterling á fyrsta ársfjórðungi nam um 460 milljónum íslenskra króna. Almar Örn Hilmarsson, framkvæmdastjóri Sterling og Iceland Express, segir skýringu á taprekstri aðallega hækkun á eldsneytisverði og að hefðbundið sé í rekstri flugfélaga að skila tapi á þessu tímabili.

Vilja flytja inn bíla strax
Ótti manna við að krónan haldi áfram að lækka og dollarinn að hækka hefur skapað gríðarlega ásókn í að flytja inn bæði nýja og notaða bíla frá Bandaríkjunum - og það strax.
Stýrivextir hækkaðir í BNA
Seðlabanki Bandaríkjanna hækkaði stýrivexti sína í þrjú prósent í gær. Þetta er áttunda hækkunin á innan við einu ári en þeir eru nú þrefalt hærri en í júní í fyrra þegar þeir voru eitt prósent. Ástæðan er fyrst og fremst aukinn verðbólguþrýstingur.

Sjóvá greiði sekt vegna samráðs
Úrskurðarnefnd samkeppnismála hefur úrskurðað að Sjóvá-Almennum beri að greiða stjórnvaldssekt að upphæð 27 milljónir króna fyrir brot á samkeppnislögum. Upphaflega beindist rannsókn Samkeppnisstofnunar að þremur tryggingafélögum, VÍS, Tryggingamiðstöðinni og Sjóvá-Almennum. Félögin höfðu haft samráð um uppsetningu nýs tjónamatskerfis og hversu mikla verðhækkun það ætti að hafa í för með sér.

Kári aldrei bjartsýnni
Tap Íslenskrar erfðagreiningar á fyrsta ársfjórðungi nam tæpum milljarði króna. Kári Stefánsson, forstjóri fyrirtækisins, segir fyrirtækið þó aldrei hafa gengið betur og sjálfur hafi hann aldrei verið bjartsýnni.
Sterling tapaði 450 milljónum
Norræna lágfargjaldaflugfélagið Sterling, sem er í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristvinssonar, tapaði 450 milljónum króna á fyrsta fjórðungi ársins. Í frétt frá félaginu segir að ekki komi á óvart að tap sé á rekstrinum, yfirleitt sé tap á fyrsta ársfjórðungi vegna árstíðarsveiflna.

Milljarðartap hjá deCode
Tap af rekstri deCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, á fyrsta ársfjórðungi var talsvert meira en tekjur eða um einn milljarður króna. Tekjurnar námu um sex hundruð milljónum króna.

Hagnaður Íslandsbanka minnkar
Hagnaður Íslandsbanka á fyrsta ársfjórðungi ársins nam rúmlega þremur milljörðum króna eftir skatta en bankinn birti afkomutölur sínar í dag. Þetta er minni hagnaður en á sama tíma í fyrra en þá hljóðaði hann upp á 4,8 milljarða, þar af var um 3,5 milljarðar af sölu hlutabréfa í Straumi Fjárfestingarbanka.

Meirihluti nýtir sér forkaupsrétt
Mikill meirihluti hluthafa í Morgunblaðinu hefur nýtt sér forkaupsrétt á hlut Haraldar Sveinssonar í blaðinu sem var til sölu.
Kauphallarflaggskipin týna tölunni
Á fimmta tug milljarða króna hefur verið varið til að yfirtaka og afskrá sjávarútvegsfélög frá ársbyrjun 2004. Skuldsetning sjávarútvegsins hefur aukist og gæti það hamlað nýsköpun og frekari tæknivæðingu greinarinnar. Eggert Þór Aðalsteinsson fjallar um vanda sjávarútvegsfélaga á hlutabréfamarkaði.

Uppgreiðsla erlendra lána aukin
Fjármálaráðherra hefur ákveðið, í ljósi bættrar greiðslustöðu ríkissjóðs, að auka uppgreiðslu erlendra lána ríkissjóðs á árinu frá því sem áður var ákveðið. Nú í maí verða því greiddar 100 milljónir bandaríkjadala, sem samsvarar rúmlega sex milljörðum íslenskra króna, af skammtímalánum, umfram það sem áður hafði verið tilkynnt um.

Stór fiskur í lítilli tjörn
Breska verslanakeðjan Mosaic Fashions undirbýr nú skráningu í Kauphöll Íslands, fyrst erlendra fyrirtækja. Valið stóð á milli íslenska markaðarins og þess breska og fannst stjórnendum betra að vera stór fiskur í lítilli tjörn en lítill fiskur í stórri tjörn.

Tæplega 200 milljóna hagnaður
Tæplega 200 milljóna króna hagnaður varð af rekstri Og fjarskipta eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, samanborið við um 80 milljóna króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Hagnaður félagsins, sem á og rekur Og Vodafone og 365 prent- og ljósvakamiðla, nam fyrir skatta 243 milljónum króna en í fyrra nam hann 99 milljónum.

Olíuverð ekki lægra í tvo mánuði
Verðið á olíufatinu fór í gær niður fyrir fimmtíu dollara og hefur ekki verið lægra í meira en tvo mánuði. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað um heil sextán prósent síðan fjórða apríl þegar verðið á fatinu var rétt yfir fimmtíu og átta dollarar.

TM myndar hóp með Hagkaupsbræðrum
Tryggingamiðstöðin, ásamt Hagkaupsbræðrunum Jóni og Sigurði Gísla Pálmasonum, Bolla Kristinssyni, kenndum við 17, og Ingimundi Sigfússyni, fyrrverandi eiganda Heklu, hafa myndað hóp í kringum kaupin á Símanum, með fleiri aðilum.

Tæplega 40 hafa óskað eftir gögnum
Hátt í fjörutíu aðilar hafa óskað eftir því við einkavæðingarnefnd að fá trúnaðargögn um Símann þar sem þeir séu áhugasamir um kaup á fyrirtækinu. Mjög sterkir innlendir og erlendir aðilar eru í þeim hópi.

Efast um að nefnd vilji fá tilboð
Talsmenn félagsins Almennings, sem stefnir að kaupum á Landssímanum, fengu engin svör á stuttum fundi í dag með starfsmönnum einkavæðingarnefndar ríkisstjórnarinnar. Agnes Bragadóttir, talsmaður félagsins, stórefast um að einkavæðingarnefnd vilji fá tilboð frá félaginu.
Bresk tískukeðja í Kauphöllina
Breska tískuvörurkeðjan Mosaic hyggur á hlutafjárútboð til fagfjárfesta og almennings og skráningar í Kauphöll Íslands. Mosaic yrði meðal tíu stærstu fyrirtækjanna í Kauphöll Íslands.