Íþróttir
327 328 329 330 331 332 333 334 … 334 ›
Alonso á ráspól í Brasilíu Spænski ökuþórinn Fernando Alonso náði besta tímanum í tímatökum fyrir brasilíska kappaksturinn sem fram fer á morgun. Juan Pablo Montoya náði öðrum besta tímanum, en félagi Alonso hjá Renault, Giancarlo Fisichella kom þriðji. Sport 23.10.2005 14:59
Heimsbikarinn í beinni á Sýn Heimsbikarinn í kappakstri hófst á Sýn klukkan 13 en þar keppa 25 þjóðir í landskeppni. Keppt er á Englandi og í dag verður tímataka sem ráða mun rásröð á morgun. Í kvöld verður svo leikur Real Betis og Barcelona sýndur beint á Sýn Extra klukkan 20. Sport 23.10.2005 14:59
McLaren fljótastir á æfingum Alex Wurz, æfingaökumaður McLaren, náði besta tíma allra á æfingum fyrir Brasilíukappaksturinn sem fram fóru nú áðan. Takuma Sato hjá BAR átti annan besta tímann, en verðandi heimsmeistarinn Fernando Alonso kom næstur þar á eftir. Sport 23.10.2005 14:58
Keppt í Indianapolis 2006 Forráðamenn Indianapolis kappakstursins í Formúlu 1 í Bandaríkjunum ætla ekki að láta hneykslið sem varð á brautinni í ár koma í veg fyrir að keppnin fari fram þar á næsta ári og hafa staðfest að keppni næsta árs fari fram þann 2. júlí næsta sumar, ef Alþjóða Akstursíþróttasambandið gefur grænt ljós á það. Sport 17.10.2005 23:49
Björgvin álfumeistari í stórsvigi Skíðamaðurinn Björgvin Björgvinsson varð í nótt Álfumeistari í stórsvigi, en síðasta keppnin um Ástralíu og Nýja Sjálandsbikarinn, féll niður vegna veðurs. Björgvin fékk samanlagt 240 stig, eða 40 stigum meira en Ástralinn Bradley Wall. Sport 17.10.2005 23:48
Kveðjuleikur Erlu Erla Hendriksdóttir, önnur leikjahæsta landsliðskona Íslands í knattspyrnu frá upphafi, hefur ákveðið að leggja skóna í hilluna í haust og því verður leikur Íslands gegn Tékkum í undankeppni HM 2007 á laugardag kveðjuleikur Erlu. Hún hefur alls leikið 54 leiki með A landsliði Íslands. Hún hefur borið fyrirliðabandið í 8 leikjum og skorað 4 mörk. Sport 17.10.2005 23:48
Mál Button frágengið Ökuþórinn Jenson Button hefur nú formlega fengið sig lausan frá fyrirhuguðum samningi við lið Williams í Formúlu 1, en hann mun sem kunnugt er verða áfram hjá BAR eftir að honum snerist hugur um að fara frá liðinu. Sport 17.10.2005 23:47
Frjálsíþróttahöllin á eftir áætlun Nýja frjálsíþróttahöllin í Laugardal, sem einnig er ráðstefnu- og sýningarhöll, verður ekki tilbúin fyrir vígslumót 15. október eins og stefnt var að. Sport 17.10.2005 23:47
Start mistókst að ná Våleringa Start mistókst að ná Våleringa að stigum þegar liðið beið lægri hlut fyrir Brann í norsku knattspyrnunni í gær. Kristján Örn Sigurðsson lék með Brann en Ólafur Örn Bjarnason er meiddur. Sport 17.10.2005 23:45
Gunnar H. besti maður vallarins Í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu náði Djurgarden sex stiga forystu á IFK Gautaborg í gækvöldi. Gunnar Heiðar Þorvaldsson var besti maður vallarins þegar Halmstad og Elfsborg gerðu 1-1 jafntefli. Sport 17.10.2005 23:45
Våleringa með 3 stiga forystu Árni Gautur Arason og félagar í Våleringa í Osló hafa þriggja stiga forystu á Start eftir markalaust jafntefli við Lilleström í gær. Våleringa er með 44 stig en Start, sem mætir Brann í Björgvin í kvöld, getur náð Oslóarliðinu að stigum, takist liðinu að vinna Brann í kvöld. Sport 17.10.2005 23:43
Helgi gerði 2 ára samning við Fram Helgi Sigurðsson hefur gert tveggja ára samning við Fram. Helgi snýr því til síns gamla félags eftir rúman áratug í atvinnumennsku erlendis. Brynjar Jóhannesson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Fram, segir að Helgi komi til með að leika með Fram í 1. deild, nema ef til þess komi að hann verði lánaður. Sport 17.10.2005 23:42
Lyon með þriggja stiga forystu Í Frakklandi hefur Lyon þriggja stiga forystu á Le Mans þegar sjö umferðir eru búnar. Lyon gerði 1-1 jafntefli við Bordeaux um helgina en Le Mans sigraði Sochaux, 2-1. Paris St. Germain mistókst að endurheimta 2. sætið; liðið steinlá 3-0 fyrir St. Etienne. Sport 17.10.2005 23:43
Peugeot-menn hættir í HM í rallý? Svo gæti farið að Peugeot-bílaframleiðandinn keppi ekki meira í heimsmeistaramótinu í rallakstri. Breski aðstoðarökumaðurinn Michael Park lést í gærmorgun þegar bíll Eistans Marko Martins ók út af í breska rallinu í Wales. Sport 17.10.2005 23:43
Button verður áfram hjá BAR Breski ökuþórinn Jenson Button mun ekki ganga til liðs við Williams í Formúlu eitt á næsta ári eins og til stóð, heldur hefur hann samþykkt að vera áfram hjá BAR liðinu og mun væntanlega skrifa undir nýjan samning við liðið fljótlega. Sport 17.10.2005 23:43
Nadal vann 10. titilinn á árinu Spánverjinn Rafael Nadal vann í gær 10. titil sinn í tennis á þessu ári þegar hann lagði Argentínumanninn Gullermo Coria að velli á Peking-mótinu. Nadal og Svisslendingurinn Roger Federer hafa haft mikla yfirburði á þessu ári. Sport 17.10.2005 23:42
Tennis: Rússar sigruðu Frakka Rússar sigruðu í Federation-bikarkeppninni í tennis eftir æsispennandi úrslitaleik við Frakka. Staðan var jöfn, 1-1, eftir keppni laugardagsins. Sport 17.10.2005 23:43
Rallökumaður lést í Bretlandi Breskur rallökumaður lést í slysi á lokadegi Bretlandsrallsins í dag. Michael Park, sem var aðstoðarökumaður Eistans Markkos Martins, lést þegar Martin ók bílnum á tré á fimmtándu sérleið keppninnar. Martin slapp ómeiddur úr árekstrinum. Rallið er liður í heimsmótaröð rallökumanna og var síðustu tveimur sérleiðunum aflýst sem og verðlaunaafhendingu vegna andláts Parks. Sport 14.10.2005 06:43
Heidfeld skrifar undir hjá BMW Hið nýja BMW lið í Formúlu 1 sem hefja mun keppni á næsta ári, hefur tryggt sér samning við fyrsta ökumanninn, en það er Þjóðverjinn Nick Heidfeld sem nú ekur með liði BMW Williams, en leiðir munu skilja hjá BMW og Williams að þessu tímabili loknu. Sport 14.10.2005 06:42
Loeb í forystu í Wales Heimsmeistarinn Sebastien Loeb á Citroen hefur forystu eftir fyrsta keppnisdag í Wales-rallinu og hefur 20 sekúndna forskot á Norðmanninn Petter Solberg á Subaru, sem er í öðru sæti. Finnski ökuþórinn Harry Rovanpera á Mitsubitshi er í þriðja sæti og landi hans Marcus Grönholm er í fjórða sæti. Sport 14.10.2005 06:42
Stabæk og Sandefjörd efst Veigar Páll Gunnarsson var í liði Stabæk sem gerði jafntefli við Tönsberg, 1-1, í norsku fyrstu deildinni í knattspyrnu í gær. Stabæk og Sandefjörd eru efst og jöfn í deildinni með 49 stig. Sport 14.10.2005 06:42
Leiðrétting á frétt um lyftingar Vísi hefur borist leiðrétting vegna fréttar sem birtist fyrr í kvöld um árangur Ásbjörns Ólafssonar á HM unglinga um helgina, þegar hann setti meðal annars heimsmet í bekkpressu. Greint var frá því að þetta hefði verið í annað sinn sem Íslendingur setur heimsmet í kraftlyftingum, en það hefur þó gerst oftar. Sport 14.10.2005 06:42
Hálandaleikarnir á Sýn í kvöld Þátturinn Kraftasport verður á dagskrá á Sýn klukkan 20:10 í kvöld, en þar verða sýndar myndir frá Hálandaleikunum sem fram fóru á Akranesi um síðustu helgi. Á meðal keppenda á mótinu voru Auðunn Jónsson, Kristinn Óskar Haraldsson, Pétur Guðmundsson og Sæmundur Sæmundsson. Kynnir er hinn eini sanni Hjalti Úrsus Árnason. Sport 14.10.2005 06:42
Ásbjörn setti heimsmet um helgina Kraftlyftingamaðurinn ungi Ásbjörn Ólafsson, keppti á Heimsmeistaramóti drengja og unglinga í Fort Wayne í Bandaríkjunum um liðna helgi og setti þar glæsilegt heimsmet í flokki drengja 18 ára og yngri, þegar hann lyfti 205 kílóum í bekkpressu. Sport 14.10.2005 06:42
10 þúsund sæti á Laugardalsvelli Borgarstjórinn í Reykjavík, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, og Eggert Magnússon, formaður Knattspyrnusambands Íslands, undirrituðu í morgun samning um uppbyggingu og endurbætur á Laugardalsvelli en áætlaður kostnaður við verkið er einn milljarður og 38 milljónir króna. Eftir breytingarnar mun Laugardalsvöllur rúma 10.000 manns í sæti. Sport 14.10.2005 06:42
Árni og félagar á toppnum Árni Gautur Arason og félagar í Vålerenga eru á toppnum í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en Vålerenga burstaði Fredrikstad, 4-0, í gær. Þá vann Molde Álasund, 4-1. Haraldur Freyr Guðmundsson lék allan leikinn fyrir Álasund. Sport 14.10.2005 06:42
Falcons lögðu Eagles Atlanta Falcons lagði Philadelphia Eagles,14-10, í lokaleik fyrstu umferðar ameríska fótboltans í gærkvöldi, en þessi lið mættust í úrslitum þjóðardeildar á síðustu leiktíð. Leikurinn var mjög grófur og tveir leikmenn, einn úr hvoru liði, voru reknir út af áður en leikurinn hófst. Sport 14.10.2005 06:42
Sato þarf til sálfræðings Heimsmeistarinn Michael Schumacher vandaði japanska ökuþórnum Takuma Sato ekki kveðjurnar eftir að sá síðastnefndi ók á hann í keppninni á Spa um helgina og sagði honum að hann þyrfti að fara til sálfræðings. Sport 14.10.2005 06:42
Federer sigraði á opna bandaríska Svisslendingurinn Roger Federer sigraði Andre Agassi í úrslitaleik opna bandaríska meistaramótsins í tennis sem fram fór í New York í gærkvöldi. Agassi veitti góða mótspyrnu, en Federer undirstrikaði með sigrinum að hann er besti tennisleikari í heiminum í dag. Sport 14.10.2005 06:41
Grétar Rafn spilaði ekki Grétar Rafn Steinsson lék ekki með AZ Alkmar þegar liðið burstaði Roosendaal 7-0 í hollensku 1. deildinni í gær. Alkmarliðið hefur unnið alla fjóra leiki sína og er í fyrsta sæti með 12 stig. Sport 14.10.2005 06:41