Erlendar

Fréttamynd

Enn er Nistelrooy á bekknum

Ruud van Nistelrooy er nú á varamannabekk Manchester United fjórða leikinn í röð en liðið er nú í heimsókn hjá W.B.A. í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og hófust sex leikir í deildinni nú kl. 15. Ruud hefur verið frystur út úr byrjunarliðinu síðan Man Utd vann deildarbikarinn þegar liðið vann Wigan í úrslitaleiknum í Cardiff í síðasta mánuði.

Sport
Fréttamynd

Everton fór létt með Aston Villa

Tim Cahill skoraði tvö mörk fyrir Everton sem vann stórsigur á Aston Villa, 4-1 í ensku úrvalsdeildinni í dag. Með sigrinum komst Everton upp í 9. sæti deildarinnar þar sem liðið er nú með 43 stig og er nú aðeins 6 stigum frá liðinu í 4. sæti, Tottenham.

Sport
Fréttamynd

14 leikja sigurganga Sacramento rofin

Indiana Pacers stöðvaði samfellda 14 leikja sigurgöngu Sacramento Kings með 98-93 sigri í NBA körfuboltanum í nótt. Þetta var fyrsti leikur Ron Artest í Indiana síðan hann heimtaði að fá að fara frá félaginu í haust til Sacramento.

Sport
Fréttamynd

San Antonio - Phoenix í beinni á Sýn

Leikur San Antonio Spurs og Phoenix Suns verður sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld og hefst útsendingu klukkan 01:30. Þessi lið mættust í úrslitum Vesturdeildarinnar í fyrra og þá hafði San Antonio betur í bráðfjörugri seríu. Þá verður leikur Cleveland og Portland í beinni útsendingu á NBA TV og hefst sá leikur klukkan 0:30 eftir miðnættið.

Sport
Fréttamynd

Carlisle hlakkar ekki til að mæta Artest

Leikur Indiana Pacers og Sacramento í NBA í nótt verður fyrsti leikur Ron Artest í Indiana síðan hann heimtaði að fá að fara frá félaginu í haust og búist er við að kappinn fái blandaðar móttökur í endurkomunni. Lið hans Sacramento hefur þó verið á miklu flugi í deildinni undanfarið og hefur unnið 14 af síðustu 18 leikjum sínum.

Sport
Fréttamynd

Auðveldur sigur hjá Magdeburg

Einn leikur var á dagskrá í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Magdeburg valtaði yfir Delitzsch 37-20 á heimavelli sínum. Línumaðurinn Sigfús Sigurðsson skoraði þrjú mörk fyrir Magdeburg, en Arnór Atlason kom ekki við sögu í leiknum enda meiddur.

Sport
Fréttamynd

Trúi ekki að Henry fari til Barcelona

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir afar ólíklegt að nokkuð sé til í blaðaskrifum á Spáni sem fullyrða að Thierry Henry hafi þegar samþykkt að ganga til liðs við spænsku meistarana Barcelona. Hann segir spænska og enska fjölmiðla einfaldlega skiptast á að ýkja og blása upp fregnir hvor frá öðrum.

Sport
Fréttamynd

Erum komnir á kortið í Evrópu

Steve McClaren, stjóri Middlesbrough, segir að með því að slá út lið eins og Stuttgart og Roma sé liðið komið á kortið í Evrópuboltanum. Boro mætir svissneska liðinu Basel í 8-liða úrslitum keppninnar og metur McClaren möguleika sinna manna nokkuð góða á að komast áfram.

Sport
Fréttamynd

Wurz fljótastur á æfingum

Æfingaökuþórinn Alex Wurz hjá Williams náði besta tímanum á fyrstu æfingunum fyrir tímatökur í Malasíukappakstrinum sem fram fer um helgina. Fáir aðalökumenn spreyttu sig á brautinni í dag, en þó var heimsmeistarinn Fernando Alonso einn þeirra sem óku í dag og náði hann tíu hundraðshlutum úr sekúndu betri tíma en Kimi Raikkönen hjá McLaren.

Sport
Fréttamynd

Hef ekki áhyggjur af starfi mínu

Chris Coleman segist ekki óttast að missa starf sitt þrátt fyrir afleitt gengi sinna manna í ensku úrvalsdeildinni, en liðið hefur nú tapað fjórum leikjum í röð. Ensk blöð hafa í kjölfarið talað um að Coleman gæti misst starfið í kjölfarið, en hann vísar því á bug.

Sport
Fréttamynd

Við getum náð Manchester United

Robbi Fowler, framherji Liverpool, segir að hann og leikmenn liðsins hafi fulla trú á að þeir geti náð Manchester United að stigum og krækt þar með í annað sætið í ensku úrvalsdeildinni. Góður sigur liðsins á Fulham á dögunum er ein af ástæðunum fyrir bjartsýni hans.

Sport
Fréttamynd

Hefur áhyggjur af Jermain Defoe

Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, segist hafa áhyggjur af því að löng seta framherjans Jermain Defoe á varamannabekk Tottenham undanfarið, gæti kostað hann sæti í enska landsliðinu á HM í sumar. Framherjinn ungi hefur verið á bekknum hjá Tottenham lengst af á þessu ári eftir að Robbie Keane vann sér fast sæti í byrjunarliði Lundúnaliðsins.

Sport
Fréttamynd

Nistelrooy er okkur ómetanlegur

Aðstoðarknattspyrnustjóri Manchester United segir að Ruud Van Nistelrooy sé liðinu afar mikilvægur þrátt fyrir að framherjinn hafi verið á varamannabekk liðsins í undanförnum leikjum. Þetta hefur orðið til þess að orðrómur hefur komist á kreik um að Hollendingurinn sé á förum frá Manchester United.

Sport
Fréttamynd

Bayern vantar leiðtoga

Fyrrum landsliðsmaðurinn Lothar Matthaus er ekki í vafa um hvað lið Bayern Munchen þarf að gera til að fylla skarð Michael Ballack sem að öllum líkindum gengur í raðir Chelsea í sumar. Matthaus telur að Bayern eigi að leita sér að leiðtoga - ekki hæfileikamanni.

Sport
Fréttamynd

Enn vinnur Miami

Miami Heat er á mikilli sigurgöngu í NBA deildinni þessa dagana og í nótt vann liðið 13. leik sinn af síðustu 14 þegar það skellti Boston 107-104. Sigurinn var þó fjarri því að vera sannfærandi, því Miami lenti á tíma 25 stigum undir í fyrri hálfleiknum. Leikurinn var sýndur beint á NBA TV.

Sport
Fréttamynd

Middlesbrough mætir Basel

Í hádeginu var dregið í átta liða úrslit Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu. Fulltrúar Englendinga í keppninni, Middlesbrough, mæta svissneska liðinu Basel sem leikur undir stjórn knattspyrnustjórans Christian Gross sem eitt sinn stýrði Tottenham Hotspurs.

Sport
Fréttamynd

Vill vera sem lengst hjá félaginu

Rafa Benitez segir að fregnir spænskra blaða í gær um að hann hefði framlengt samning sinn við Liverpool séu ekki réttar, en viðurkennir að vonir standi til með að framlengja núverandi samning hans flótlega. "Ég er mjög ánægður hérna og kann vel við stjórnina, leikmennina og stuðningsmennina, svo ég vil vera hérna sem lengst og reyna að byggja upp fyrir framtíðina," sagði Spánverjinn í dag.

Sport
Fréttamynd

Rahman ætlar að ganga frá Toney

WBC meistarinn í þungavigt, Hasim Rahman, segist muni ganga frá áskoranda sínum Andrew Toney þegar þeir mætast í hringnum í Atlantic City á laugardagskvöldið. Bardaginn verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn.

Sport
Fréttamynd

HM þjóðunum ekki veittur frestur

Nokkur af landsliðunum sem taka þátt í heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í þýskalandi í sumar höfðu farið þess á leit við FIFA að frestur til að nefna 23-manna lið yrði færður, en landsliðsþjálfararnir munu nú þurfa að tilkynna hópa sína fyrir 15. maí næstkomandi.

Sport
Fréttamynd

Massa þarf að skipta um vél

Ökuþórinn Felipe Massa hjá Ferrari þarf að taka út 10 sæta refsingu í keppninni í Malasíu um helgina eftir að ljóst varð að hann þarf að skipta um vél í bíl sínum. Hann náði öðrum besta tímanum í Barein um síðustu helgi, en endaði í níunda sæti í keppninni.

Sport
Fréttamynd

Erum ekki dauðir og grafnir eins og Sunderland

David Gold, stjórnarformaður Birmingham er bjartsýnn á að liðið hans nái að rífa sig upp úr þeirri lægð sem það hefur verið í lengst af vetri, en viðurkennir að stundum skilji hann hreinlega ekki af hverju liðið sem náði ágætum árangri í fyrra er í bullandi fallbaráttu í ár.

Sport
Fréttamynd

Útilokar ekki að snúa aftur

Vicente del Bosque, fyrrum stjóri Real Madrid, segist alls ekki útiloka að taka aftur við liðinu ef sá möguleiki kæmi upp á borðið, en nú stendur leitin að næsta þjálfara félagsins sem hæst. Fel Bosque náði ágætum árangri með liðið á sínum tíma, en var engu að síður rekinn eftir að hafa gert liðið að spænskum meistara árið 2003.

Sport
Fréttamynd

Íhugar að hvíla Wayne Rooney

Sir Alex Ferguson segist alvarlega vera að íhuga að hvíla ungstirnið Wayne Rooney á næstunni, en Rooney hefur spilað næstum hvern einasta leik með liðinu á leiktíðinni. "'Eg heyrði að Rafa Benitez væri að spá í að hvíla Steven Gerrard og hið sama er uppi á teningnum hjá mér með Rooney. Maður freistast til að láta svona unga menn spila of mikið, en þeir þurfa hvíld eins og aðrir," sagði Ferguson.

Sport
Fréttamynd

Albertini lék kveðjuleik sinn í gær

Ítalski miðjumaðurinn Demetrio Albertini reimaði á sig fótboltaskóna í síðasta sinn á San Siro í Mílanó í gærkvöld þegar spilaður var sérstakur kveðjuleikur honum til heiðurs. Margir af frægustu leikmönnum Milan í gegn um árin tóku þátt í leiknum og sýndu Albertini virðingu sína.

Sport
Fréttamynd

Kaupir ungan Tékka

Úrvalsdeildarlið Tottenham Hotspurs hefur fest kaup á 16 ára gömlum leikmanni frá Slavia Prag að nafni Tomas Pekhart, sem hefur farið á kostum með yngri landsliðum Tékka og er talinn mikið efni. Pekhart hefur skrifað undir þriggja ára samning við enska liðið með möguleika á framlengingingu um tvö ár.

Sport
Fréttamynd

Newcastle vill fá mig

Framherjinn knái Fernando Torres hjá Atletico Madrid segir að Newcastle sé eina liðið sem hafi gert Atletico formlegt tilboð í sig, en Spánverjinn ungi er talinn muni fara frá félaginu í sumar. "Það hefur verið mikið talað um að þessi og hin félög hafi verið að bjóða í mig, en Newcastle er eina félagið sem hefur gert formlegt tilboð," sagði Torres.

Sport
Fréttamynd

Minningarathöfn um George Best

Sérstök minningarathöfn var haldin í Manchester í dag þar sem fjölskylda, vinir og aðdáendur knattspyrnugoðsins George Best komu saman til að heiðra minningu kappans sem lést um daginn.

Sport
Fréttamynd

Anthony tryggði Denver sigur á Indiana

Carmelo Anthony skoraði enn eina sigurkörfuna fyrir lið sitt Denver Nuggets í nótt þegar það bar sigurorð af Indiana Pacers á útivelli 101-99. Þetta var annar sigur Denver í röð í Indiana eftir að hafa ekki unnið þar í 9 ár. Anthony skoraði 31 stig fyrir Denver, en Peja Stojakovic skoraði 22 stig fyrir Indiana.

Sport
Fréttamynd

West Ham lagði Bolton

West Ham er komið áfram í 8-liða úrslit enska bikarsins eftir að liðið lagði Bolton´2-1 á heimavelli sínum Upton Park í framlengdum leik í kvöld. Það var Marlon Harewood sem skoraði sigurmark Lundúnaliðsins í framlengingunni, en liðið mætir Manchester City í næstu umferð keppninnar.

Sport
Fréttamynd

Middlesbrough áfram

Enska úrvalsdeildarliðið Middlesbrough er komið áfram í Evrópukeppni félagsliða þrátt fyrir 2-1 tap fyrir Roma á útivelli í keppninni í kvöld. Boro vann fyrri leikinn 1-0, en mark Jimmy Floyd Hasselbaink í kvöld reið baggamuninn fyrir liðið. Allessandro Mancini skoraði bæði mörk Rómverja, sem sitja eftir með sárt ennið þrátt fyrir góðan sigur í kvöld.

Sport