Erlendar

Fréttamynd

Hefur áhyggjur af Manchester United

Fyrrum knattspyrnugoðið Eric Cantona liggur aldrei á skoðunum sínum þegar kemur að knattspyrnu og nú hefur hann gefið það út að Manchester United spili ekki nógu áferðarfallega knattspyrnu og segist óttast að félagið missi sjónar af gömlum og góðum gildum sínum.

Sport
Fréttamynd

Ahn mætti ekki til liðsins

Suður-Kóreumaðurinn Ahn Jung-Hwan mun ekki fara til reynslu til úrvalsdeildarliðs Blackburn eftir að hann mætti ekki til liðsins eins og til stóð. Umboðsmaður Ahn segir að hann hafi ekki viljað fara til Englands nema vera lofað samningi, en það gátu forráðamenn Blackburn ekki lofað honum nema hafa hann til reynslu fyrst. Ekkert verður því af því að hann fari til Englands eins og til stóð.

Sport
Fréttamynd

Gengur illa að landa Samaras

Nú virðist sem kaup Manchester City á gríska framherjanum Georgios Samaras frá hollenska liðinu Heerenveen séu í hættu, því stjórnarformaður hollenska liðsins er ekki sagður hafa neinn áhuga á að selja leikmanninn og vill halda honum hjá félaginu út leiktíðina eða jafnvel lengur.

Sport
Fréttamynd

Hatton ætlar að berjast við þá stóru

Breski hnefaleikarinn Ricky Hatton hefur nú gefið út hverjir óskamótherjar hans séu fyrir árið 2006, en hann ætlar sér stóra hluti í Bandaríkjunum á árinu eftir að hafa mestmegnis barist við landa sína fram að þessu.

Sport
Fréttamynd

Í viðræðum við Celtic

Skoski landsliðsframherjinn Kenny Miller er nú sagður í viðræðum við Glasgow Celtic í heimalandi sínu, en hann hefur neitað að framlengja samning sinn við enska 1. deildarliðið Wolves þar sem hann hefur leikið síðan árið 2001. Miller er 26 ára gamall og lék áður með Hibernian og Rangers í Skotlandi.

Sport
Fréttamynd

Leikmaður Vicenza missti handlegg

Julio Gonzalez, leikmaður Vicenza á Ítalíu, þurfti að láta taka af sér annan handlegginn á sjúkrahúsi í dag eftir að hafa lent í alvarlegu bílslysi fyrir fjórum vikum. Gonzalez var landsliðsmaður Paragvæ og spilaði stöðu framherja.

Sport
Fréttamynd

Búast við mestu innkomu í heimi

Forráðamenn Arsenal segja að liðið gæti fengið mestu innkomu allra liða í heimi þegar liðið verður komið á nýja Emirates-leikvanginn á næstu leiktíð, en hann mun taka 60.000 manns í sæti og bjóða upp á glæsilega aðstöðu sem gerir það að verkum að peningarnir munu streyma hratt í kassann að þeirra mati.

Sport
Fréttamynd

Skorar á Walcott að koma til Arsenal

Franski framherjinn Thierry Henry lætur ekki sitt eftir liggja í að reyna að hjálpa forráðamönnum Arsenal að lokka unglinginn Theo Walcott til félagsins frá Southampton. Talið er að slagurinn um framherjann unga standi á milli Arsenal, Tottenham, Chelsea, Liverpool og Manchester United.

Sport
Fréttamynd

Vill ekki fara frá Manchester United

Franski varnarmaðurinn Mikael Silvestre þvertekur fyrir orðróm sem verið hefur á kreiki um að hann sé á förum frá enska liðinu Manchester United. Silvestre hefur verið orðaður við frönsku meistarana Lyon undanfarið og menn höfðu leitt líkum að því að hann þyrfti að víkja fyrir nýjum leikmönnum sem komið hafa á Old Trafford í janúar.

Sport
Fréttamynd

Andretti í fótspor feðranna

Marco Andretti, barnabarn goðsagnarinnar Mario Andretti fyrrum heimsmeistara í Formúlu 1, verður á meðal keppenda í Indianapolis 500 kappakstrinum í ár. Marco er aðeins 18 ára gamall, en þykir mikið efni og hefur nú staðist próf til að fá að vera með í keppninni í maí.

Sport
Fréttamynd

Auðveldur sigur hjá Williams

Serena Williams átti ekki í erfiðleikum með frönsku tenniskonuna Camille Pin í annari umferð opna ástralska meistaramótsins, eftir að hafa lent í vandræðum með lítt þekktan andstæðing sinn í þeirri fyrstu. Williams sigraði 6-3 og 6-1. "Þetta er nú aldrei eins auðvelt og það lítur út fyrir að vera, en ég vann í nokkrum atriðum sem voru í ólagi hjá mér og eftir það var þetta allt annað líf," sagði Williams.

Sport
Fréttamynd

Bobby Zamora skrifar undir nýjan samning

Framherjinn Bobby Zamora hefur undirritað nýjan fjögurra ára samning við félagið. Zamora er 25 ára gamall og hefur skorað fimm mörk fyrir liðið í vetur, þrátt fyrir að hafa aðeins átta sinnum verið í byrjunarliðinu. Hann er alinn upp hjá West Ham, en hefur átt stutt stopp hjá Brighton og Tottenham.

Sport
Fréttamynd

Þeir ættu að reka Eriksson

Stjórnarformaður úrvalsdeildarliðs Wigan, segir að enska knattspyrnusambandið ætti að reka Sven Göran Eriksson í kjölfar nýjasta hneykslisins tengt honum í bresku pressunni og segir að Paul Jewell og Stuart Pearce væru heppilegir eftirmenn hans.

Sport
Fréttamynd

Stórleikur Kirilenko of mikið fyrir Toronto

Utah Jazz vann sannfærandi sigur á Toronto Raptors í NBA deildinni í nótt 111-98, þar sem Andrei Kirilenko náði fyrstu þreföldu tvennu sinni á ferlinum þegar hann skoraði 18 stig, hirti 16 fráköst og gaf 10 stoðsendingar. Hann varði auk þess 4 skot og stal 3 boltum í leiknum.

Sport
Fréttamynd

Missir af leiknum við Manchester United

Luis Garcia, sóknarmaður Liverpool, verður ekki með um helgina þegar Liverpool mætir Manchester Unitedí ensku deildinni. Á hann við hnémeisli að stríða sem hafa haldið honum fyrir utan liðið í tveimur seinustu leikjum.

Sport
Fréttamynd

Alls ekki á förum til Englands

Franski landsliðsmaðurinn Nicolas Anelka, segist ekki vera á förum til enska úrvalsdeildarliðsins Newcastle. Að eigin sögn er hann ánægður í Tyrklandi og vill halda áfram með liði sínu, Fenerbache.

Sport
Fréttamynd

Utah - Toronto í beinni

Það verður áhugaverður leikur á dagskrá á NBA TV á Digital Ísland í nótt, en þar verða á ferðinni lið Utah Jazz og Toronto Raptors. Bæði þessi lið hafa komið mikið á óvart að undanförnu og verið á góðu skriði eftir dapra byrjun í haust. Leikurinn byrjar klukkan 2 í nótt.

Sport
Fréttamynd

Wigan marði Leeds

Úrvalsdeildarlið Wigan marði sigur á 1. deildarliði Leeds í enska bikarnum í æsilegum leik á Sýn í kvöld, þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en eftir framlengingu og vítakeppni. Gylfi Einarsson kom inná sem varamaður undir lok leiksins í liði Leeds, en staðan var jöfn 3-3 eftir framlengingu og þar vann Wigan 4-2.

Sport
Fréttamynd

Jafnt í hálfleik hjá Leeds og Wigan

Nú er kominn hálfleikur í fimm af sjö leikjum sem eru á dagskrá í kvöld í enska bikarnum. Staðan í leik Leeds og Wigan er jöfn 1-1, en leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Utandeildarliðið Tamworth er yfir 1-0 gegn Stoke City og jafnt er hjá Birmingham og Torquay United.

Sport
Fréttamynd

Pattstaða í máli Euell

Alan Curbishley, stjóri Charlton, segir að kaup Birmingham á framherjanum Jason Euell séu í hættu og segir að Birmingham virðist vera hikandi í leikmannamálum þessa dagana.

Sport
Fréttamynd

Leeds - Wigan í beinni á Sýn

Leikur Leeds og Wigan í enska bikarnum verður sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 19:30. Þá verða Brynjar Björn Gunnarsson og Ívar Ingimarsson í eldlínunni í kvöld þegar Reading tekur á móti WBA.

Sport
Fréttamynd

Francis leystur úr banni

Bakvörðurinn Steve Francis hefur nú fengið leyfi forráðamanna Orlando Magic til að byrja að æfa með liðinu á ný eftir að hafa verið í banni í þrjá daga fyrir agabrot. Francis neitaði að fara inná völlinn í lokin á löngu töpuðum leik í síðustu viku og var fyrir vikið settur í bann. Hann fór í ferðalag til að hreinsa til í höfðinu á sér og hefur nú lofað að bæta ráð sitt.

Sport
Fréttamynd

Vorum hársbreidd frá því að kaupa Ronaldo

Luciano Moggi, yfirmaður knattspyrnumála hjá ítölsku meisturunum Juventus, hefur staðfest það sem Cristiano Ronaldo sagði fyrir nokkru, að félagið hafi verið hársbreidd frá því að landa honum þegar hann lék með Sporting Lissabon á sínum tíma.

Sport
Fréttamynd

Nýr BMW-Sauber frumsýndur

Nýr keppnisbíll BMW-Sauber liðsins í Formúlu 1 var frumsýndur formlega í Valencia á Spáni í dag og hafa forráðamenn liðsins lofað að láta til sín taka á komandi tímabili. BMW skaffaði áður vélar fyrir lið Williams, en hefur nú keypt lið Sauber og hefur sett stefnuna á heimsmeistaratitil innan þriggja ára.

Sport
Fréttamynd

Fer í myndatöku í dag

Framherjinn Emile Heskey hjá Birmingham þarf að fara í myndatöku í dag þar sem hnémeiðsli sem hann varð fyrir í leiknum gegn Charlton um helgina verða metin. Steve Bruce óttast að hann gæti misst leikmanninn í lengri tíma.

Sport
Fréttamynd

Við getum betur

Brasilíski snillingurinn Ronaldinho hjá Barcelona segir að liðið geti gert enn betur en það hefur sýnt á fyrri helmingi keppnistímabilsins á Spáni og fagnar því að liðið þurfi ekki að treysta á neitt annað en sjálft sig til að vinna spænsku deildina.

Sport
Fréttamynd

Fór að ráðum Russell og rétti út sáttarhönd

Það vakti gríðarlega athygli í gærkvöldi þegar Los Angeles Lakers og Miami Heat mættust á degi Martin Luther King, að fyrrum liðsfélagarnir Shaquille O´Neal og Kobe Bryant töluðust lítillega við og féllust í faðma fyrir leikinn, en þeir hafa verið miklir óvinir undanfarin tvö ár.

Sport
Fréttamynd

Rauða spjaldið stendur

Áfrýjun Manchester United vegna rauða spjaldsins sem Cristiano Ronaldo fékk í leiknum við Manchester City um helgina hefur verið vísað frá og því mun leikmaðurinn taka út þriggja leikja bann strax.

Sport
Fréttamynd

Sleppur við ákæru

Alex Ferguson verður ekki kærður fyrir ummæli sinn um Steve Bennett dómara eftir leik liðsins við granna sína í Manchester City á dögunum, þar sem Ferguson var mjög ósáttur við dómgæsluna. Síðar í dag kemur svo í ljós hvort áfrýjun félagsins vegna rauða spjaldsins sem Cristiano Ronaldo fékk í leiknum nær fram að ganga.

Sport
Fréttamynd

Ósáttur við Sven-Göran Eriksson

David O´Leary er maður sem liggur ekki á skoðunum sínum og hann hafði sitt að segja um fréttina sem skrifuð var um Sven-Göran Eriksson í News of the World um helgina og sagt var frá hér á Vísi í gær.

Sport