Erlent
Aðalræðisskrifstofa í Þórshöfn
Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra tilkynnti í gær, eftir að um málið náðist samkomulag við danska og færeyska ráðamenn, að ríkisstjórn Íslands hefði ákveðið að opna aðalræðisskrifstofu í Færeyjum bráðlega.

Rannveig móðgar Færeyinga
Jógvan á Lakjuni, þingmaður íhaldsmanna á færeyska lögþinginu og samstarfsráðherra Norðurlanda í færeysku landsstjórninni, sakaði Rannveigu Guðmundsdóttur, þingmann Samfylkingarinnar, í gær um að hafa móðgað færeysku þjóðina með framgöngu sinni í umræðu á Norðurlandaráðsþingi um réttindi samkynhneigðra í Færeyjum.
Áframhaldandi einangrun
Fimm menn, sem handteknir voru í byrjun september í Óðinsvéum í Danmörku, grunaðir um að skipuleggja stórfelld hryðjuverk, hafa verið dæmdir í áframhaldandi fjögurra vikna einangrun. Þetta kemur fram á fréttavef Politiken.

Óheppilegur brandari
Öldungadeildarþingmaðurinn John Kerry baðst afsökunar í gær á „misheppnuðum brandara“ um Íraksstefnu Bush Bandaríkjaforseta. Kerry hafði sagt unglingum í skóla sem hann heimsótti að þeir skyldu stunda nám sitt af kappi, annars ættu þeir á hættu að „festast í Írak“.
Borpallur og áhöfn í hættu
Norski olíuborpallurinn Bredford Dolphin var á reki í Norðursjó í gær með 75 manns innanborðs í miklu roki og öldugangi. Dráttarbátur var með borpallinn í eftirdragi þegar togvírarnir slitnuðu á þriðjudaginn, en veður var þá afar slæmt. Draga átti pallinn frá Noregi til Póllands vegna viðhalds og endurnýjunar.

Finnar fá menningarmálin
Í ljósi þess hve Finnum þótti freklega framhjá sér gengið er ákveðið var að Halldór Ásgrímsson yrði næsti framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, en ekki finnski ráðherrann Jan Erik Enestam, kom það ekki á óvart þegar það fréttist í gær að ákveðið hefði verið að ný norræn menningarmálaskrifstofa, „KulturKontakt Nord“, yrði staðsett í Finnlandi.

Rafmagnsleysi í aftakaveðri
Stórhríð olli rafmagnsleysi á fimmtíu þúsund heimilum í Svíþjóð í gærmorgun, þegar vindhviður brutu niður rafmagnsstaura.
Hverfandi í Bretlandi
Kynbundinn launamunur fer minnkandi í Bretlandi og meðal yngri kynslóða er hans lítt vart, kemur fram í frétt breska blaðsins Financial Times.

Rússneska mafían og ölgróði
Rússneska mafían hefur tögl og hagldir í ölgeiranum í Rússlandi og Ekstrablaðið segir það furðu sæta að Björgólfsfeðgar og Magnús Þorsteinsson hafi sloppið þaðan auðugir menn.

Fleiri NATO-lönd fái afnot af Keflavíkurflugvelli
Utanríkisráðherrar Norðurlandanna ræddu um breytta stöðu öryggismála Íslands á fundi í Kaupmannahöfn. Norðmenn og Danir segjast reiðubúnir að leggja sitt af mörkum til að tryggja öryggi í lögsögu Íslands.

Óveður í Evrópu
22 menn hafa látist í miklum flóðum í suðaustanverðu Tyrklandi undanfarinn sólarhring. Þá rak norskan olíuborpall stjórnlaust í Norðursjó í fárviðri sem gekk yfir norðanverða Evrópu í nótt.

Góður hagnaður hjá asískum bílaframleiðendum
Bílaframleiðendur í Asíu skiluðu flestir góðum hagnaði á fyrri hluta ársins og búast við methagnaði á árinu. Helsta ástæðan er aukinn útflutningur á bílum til Evrópu og Indlands á tímabilinu.

Olíuverð lækkar áfram
Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði lítillega í dag þrátt fyrir að OPEC, samtök olíuútflutningsríkja, hefðu ákveðið að draga úr olíuframleiðslu frá og með deginum í dag til að sporna gegn frekari verðlækkunum á olíu.

Windows Vista krefst öflugri tölva
Bandaríski metsöluhöfundurinn og fyrirlesarinn Mark Minasi kom hingað til lands í fimmta sinn á vegum Microsoft á Íslandi og EJS í síðustu viku. Tilgangur heimsóknar hans í þetta sinn var að kynna tæknimönnum flesta möguleika Windows Vista, nýjasta stýrikerfisins frá Microsoft, sem kemur út í mánuðinum. Áherslan var á öryggið í netheimum, sem Minasi segir að Microsoft geri allt til að tryggja.

Hagnaður Time Warner næstum þrefaldast
Hagnaður bandarísku fjölmiðla- og útgáfusamsteypunnar Time Warner tæplega þrefaldaðist á þriðja fjórðungi ársins. Mestur hluti tekna samsteypunnar eru komnar til vegna aukinna auglýsingatekna frá nethluta félagsins, American Online (AOL).

Demókratar leiða í skoðanakönnunum
Skoðanakannanir sem Reuters skýrði frá í dag sýna að demókratar í Bandaríkjunum eru með meiri stuðning en Repúblikanar í 12 af 15 lykilsætum í komandi þingkosningum.

Stjórnvöld í Úganda og Uppreisnarher Drottins skrifa undir friðarsamkomulag
Stjórnvöld í Úganda og Uppreisnarher Drottins skrifuðu undir nýtt friðarsamkomulag í morgun. Vonast er til þess að það eigi eftir að koma skriði á viðræður sem er ætlað að binda endi á eina lengstu og hrottalegustu borgarastyrjöld í Afríku.
Varnarmálaráðherra Rússlands líklegur arftaki Pútíns
Rússneski varnarmálaráðherrann, Sergei Ivanov, neitaði í morgun að svara spurningum um hvort að hann væri líklegur til þess að taka við af Pútin Rússlandsforseta þegar hann leggur niður völd árið 2008.

40 þúsund drukkin börn
Umboðsmaður barna í Noregi er sleginn yfir nýjum upplýsingum um drykkjuvenjur barna og unglinga. Könnunin var gerð á drykkju barna á aldrinum fimmtán til sautján ára.
Ókyrrð eykst í mið-Afríku
Forseti Mið-Afríku Lýðveldisins, Francois Bozize, ásakaði í morgun stjórnvöld í Súdan um að senda vopnaða uppreisnarmenn yfir landamærin til þess að taka yfir bæ í norðausturhluta landsins.

Vesturlandabúar manna lauslátastir
Fólk í vesturheimi er lauslátara en fólk í þróunarlöndunum. Þetta kemur fram í rannsókn sem var gefin út í læknatímaritinu Lancet nýverið. Fréttavefur BBC skýrir frá. . Fréttavefur BBC skýrir frá.

Ísraelskir hermenn skjóta sex til bana
Ísraelskir hermenn skutu sex Palestínumenn til bana, þar af fimm vígamenn, og særðu 33 í röð loftárása og byssubardaga á norðurhluta Gaza-svæðisins, samkvæmt fréttum frá palenstínskum öryggisyfirvöldum.

Lego annar ekki eftirspurn
Danski leikfangaframleiðandinn Lego á í mestu erfiðleikum með að anna eftirspurn vegna niðurskurðar hjá fyrirtækinu. Talsmaður fyrirtækisins segir flestar vörur Lego uppseldar og geti fyrirtækið ekki sinnt jólasölu með góðu móti. Búist er við að Lego verði af háum fjárhæðum vegna þessa.

Hisbollah og Ísrael í viðræðum
Hisbollah-samtökin og Ísrael eiga í viðræðum um að skiptast á föngum. Fréttavefur BBC skýrir frá og segir að þetta hafi komið fram í sjónvarpsviðtali við leiðtoga Hisbollah í morgun.

Milljónamæringar borga vel fyrir hús
Fólki sem getur varið 130 milljónum til húsnæðiskaupa hefur fjölgað mikið í Bretlandi síðustu ár.

Eurotunnel bjargar sér frá gjaldþroti
Rekstrarfélag Eurotunnel, ganganna á milli Bretlands og Frakklands undir Ermarsundi, hefur kynnt nýjar tillögur sem eiga að bæta skuldastöðu félagsins og koma í veg fyrir gjaldþrot. Skuldir rekstrarfélagsins nema 6,2 milljörðum punda, jafnvirði um 798 milljörðum íslenskra króna.

Hátíðisdagur kaþólikka um allan heim
Þúsundir kaþólikka á Filippseyjum halda upp á Dag Allra Sálna í dag og fara þeir þá í kirkjugarða til þess að vitja látinna ástvina.

Norður-Kórea aftur að samningaborðinu
Ráðamenn í Norður-Kóreu greindu frá því í morgun að þeir hefðu ákveðið að setjast aftur að samningaborðinu og taka þátt í Sexveldaumræðunum svokölluðu á ný.

PW Botha látinn
Fyrrum forseti Suður-Afríku, P.W. Botha, lést í gærkvöldi. Hann var níræður. Botha var forseti landsins frá 1978 til 1989. Á þeim tíma reyndi hann smám saman að auka réttindi minnihlutahópa í landinu en pólitísk réttindi voru aldrei aukin.