Erlent

Vill að Bush viðurkenni ósigur sinn
Bush Bandaríkjaforseta er lyginn og honum hefur mistekist að sigra stríðið við Al-Kaída, þetta sagði Ayman al-Zawahri, næst æðsti maður Al-Kaída samtakanna, í myndbandsupptöku sem birt var í dag.

Amnesty ætla að berjast fyrir afnámi nýrra hryðjuverkalaga
Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti umdeilt frumvarp um meðferð grunaðra hryðjuverkamanna í gær, og felldi breytingatillögu þess efnis að allir þeir sem eru í haldi geti farið með mál sitt fyrir dómstóla. Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa þegar tilkynnt að þau muni berjast fyrir afnámi laganna, sem þau telja gefa grænt ljós á pyntingar og önnur mannréttindabrot.

Ramadan hafin
Ramadan, helgimánuður múslima, hófst í dag. Þúsundir múslima héldu til bæna í Al-Aqsa moskunni í Jerúsalem en trúræknir múslimar fasta allan Ramadan-mánuðinn frá sólarupprás til sólarlags og eyða miklum tíma í moskum.



Ryanair spáir auknum hagnaði
Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair spáir því að hagnaður félagsins á yfirstandandi rekstrarári, sem lýkur í mars á næsta ári, muni nema 335 milljónum evra, jafnvirði tæpra 30 milljarða króna. Þetta er 11 prósenta hækkun á milli ára.

2,5 prósenta verðbólga í Bandaríkjunum
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,2 prósent í Bandaríkjunum í ágúst. Þetta jafngildir 2,5 prósenta verðbólgu á ársgrundvelli ef undan er skilin hækkun á matvöru- og raforkuverði, samkvæmt útreikningum viðskiptaráðuneytis Bandaríkjanna. Verðbólga hefur ekki verið meiri í Bandaríkjunum í rúm 11 ár.

Starfsmenn Airbus óttast uppsagnir
Stjórn EADS, móðurfélags flugvélaframleiðandans Airbus, fundar síðar í dag um stöðu félagsins og tafir á framleiðsu A380 risafarþegaþotunnar sem félagið framleiðir. Starfsmenn óttast að EADS muni grípa til víðtækra uppsagna í hagræðingarskyni.
Rafhlöður frá Sony innkallaðar á ný
Kínverski tölvuframleiðandinn Lenovo hefur ákveðið að innkalla hálfa milljón rafhlaða, sem fylgja fartölvum fyrirtækisins á heimsvísu. Sony framleiddi rafhlöðurnar. Lenovo framleiðir fartölvur undir eigin merkjum og IBM.

Hryðjuverkafrumvarp Bush komið í gegnum þingið
Öldungardeild Bandaríkjaþings samþykkti í kvöld umdeilt hryðjuverkafrumvarp Bush Bandaríkjaforseta. Frumvarpið lýtur að því hversu langt má ganga í yfirheyrslum á hryðjuverkamönnum og hvernig sækja má meinta erlenda hryðjuverkamenn til saka. Bush á nú aðeins eftir að skrifa undir lögin svo þau öðlist gildi.

Kosið í Zambíu
Kjósendur fjölmenntu á kjörstaði í Zambíu í dag. Í þessum fjórðu almennu kosningum, sem haldnar eru frá því eins stjórnmálaflokkskerfi í landinu var rofið árið 1991, var meðal annars kosið um nýjan forseta og hundrað og fimmtíu þingsæti. Yfir fjórar milljónir manna skráðu sig til að taka þátt í kosningunum.

Tengsl milli neyslu sykurdrykkja og ofvirkni
Neysla sykurdrykkja eykur hættu á andlegum heilsufarslegum vandamálum. Ný rannsókn sem gerð á unglingum í Osló í Noregi sýndir að eftir því sem unglingar neyta meira af sykurdrykkjum þeim mun meiri hætta er á að þeir þjáist af ofvirkni eða stressi.
Sjálfsmorðum fækkar í Bandaríkjunum
Sjálfsmorðum fer fækkandi í Bandaríkjunum ef marka má nýja rannsókn sem birt var þar í landi í dag. Þar kemur fram að tíðni sjálfsmorða meðal aldraðra og ungra hefur lækkað nokkuð stöðugt síðan á 9. áratugnum. Rannsóknin gefur í skyn að ný þunglyndislyf auka ekki líkur á sjálfvígum líkt og haldið hefur verið fram.

Reykingabann í Frakklandi frá áramótum
Reykingar verða bannaðar á opinberum stöðum í Frakklandi frá og með næstu áramótum. Þessu lýsti heilbrigðisráðherra landsins, Xavier Bertrand, yfir í blaðaviðtali í dag. Þar sagði hann ekki lengur spurningu hvort heldur hvenær og hvernig banni verði komið á og 1. janúar væri sú dagsetning sem hann miðaði við.
Dow Jones náði sögulegu hámarki
Bandaríska Dow Jones hlutabréfavísitalan fór í 11.724,86 stig í morgun og sló þar með sögulegt hámark. Vísitalan hefur ekki náð viðlíka hæðum síðan í janúar árið 2000.

Hagvöxtur undir væntingum
Hagvöxtur jókst um 2,6 prósent í Bandaríkjunum á öðrum ársfjórðungi, samkvæmt endurskoðuðum útreikningum bandaríska viðskiptaráðuneytisins. Þetta er nokkuð undir væntingum en almennt var reiknað með því að hagvöxtur myndi aukast um 2,9 prósent. Þá er um talsvert minni hagvöxt að ræða en á fyrsta fjórðungi ársins, sem nam 5,6 prósentum.
Rússar hóta Shell
Háttsettur talsmaður rússneska umhverfisráðuneytisins herti í dag árásir á Shell-olíufélagið sem er að undirbúa olíu- og gasvinnslu á Shakali-eyju sem tilheyrir Rússlandi.

Aðgerðir lögreglu taldar hafa sett atburðarás af stað
Gíslatöku vopnaðs manns í menntaskóla í Colorado í Bandaríkjunum í gær lyktaði með því að hann stytti sér aldur eftir að hafa skotið unglingsstúlku til bana. Aðgerðir lögreglu virðast hafa hrundið atburðarásinni af stað.

Jospin ætlar ekki í framboð til forseta
Lionel Jospin, leiðtogi franskra sósíalista, segir að hann muni ekki sækjast eftir að verða forseti Frakklands þegar Jacques Chirac lætur af embætti næsta vor. Þessi yfirlýsing Jospins eykur líkurnar á því að Ségoléne Royal verði frambjóðandi sósíalista í forsetakosningunum.

Norðmenn vilja SAS
Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, segir koma til greina að norska ríkið kaupi hluti sænska og danska ríkisins í norræna flugfélaginu SAS. Stoltenberg segir ríkisstjórnir landanna hafa hug á að selja hluti sína í félaginu. Markaðsvirði hlutanna nemur rúmum 87 milljörðum íslenskra króna.