Skíðaíþróttir

Fréttamynd

Eini Ólympíufari Írana kemst ekki

Íraninn Aboulfazl Khatibi keppir ekki á Vetrarólympíumóti fatlaðra í Mílanó og Cortina og það þýðir að Íran mun ekki taka þátt í leikunum.

Sport
Fréttamynd

Sturla hefur átt erfitt með að borða og sofa

Norski skíðaskotfimimaðurinn Sturla Holm Lægreid varð heimsfrægur á Vetrarólympíuleikunum þegar hann játaði framhjáhald fyrir allri heimsbyggðinni. Hann hefur nú rætt upplifun sína af öllu því sem gekk á í framhaldinu af viðtalinu fræga og játaði það að í kjölfarið hafi hann fundið fyrir auknu álagi á líkamanum.

Sport
Fréttamynd

Segir Klæbo geta hlaupið upp Esjuna á met­tíma

Skíðagöngukappinn Johannes Klæbo sópaði til sín sex gullverðlaunum á Vetrarólympíuleikunum og öðlaðist heimsfrægð. Einna helst vakti hann athygli fyrir ótrúlegan hraða í miklum halla í sprettgöngunni, en hversu hratt fór hann og er hægt að leika þetta afrek eftir?

Sport
Fréttamynd

„Hægt að ná langt með því að vera hress og skemmti­legur“

Skíða­kappinn Jón Erik Sigurðs­son er nú kominn heim eftir frábært gengi á Vetrarólympíu­leikunum. Þar vakti hann at­hygli fyrir jákvætt og hressandi viðhorf en þurfti einnig að leiðrétta mis­skilning sem fór á kreik þegar sumir töldu hann hrein­lega vera að skemmta sér of mikið. 

Sport
Fréttamynd

Löng bið Shiffrin á enda

Hin bandaríska Mikaela Shiffrin hlaut Ólympíugull í svigi eftir öruggan sigur í greininni. Um er að ræða hennar fyrsta gull í átta ár.

Sport
Fréttamynd

Stækkaði typpi skíðastökkvara

Sterkur orðrómur hefur verið uppi um að keppendur í skíðastökki karla á Vetrarólympíuleikunum hafi látið stækka getnaðarlim sinn, í von um meiri árangur á leikunum. Nú hefur lýtalæknir svo gott sem staðfest orðróminn.

Sport
Fréttamynd

Stutt gaman hjá stelpunum okkar í brekkunni

Skíðakonurnar Elín Elmarsdóttir van Pelt og Sonja Lí Kristinsdóttir hafa lokið keppni á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu. Báðar féllu úr keppni í fyrri ferð dagsins í svigi.

Sport
Fréttamynd

Sögu­legur á­fangi Örnu eftir „stranga og langa“ veg­ferð

Ís­firðingurinn Arna Sigríður Alberts­dóttir brýtur blað í íþróttasögu Ís­lendinga þegar að hún keppir á vetrarólympíumóti fatlaðra á Ítalíu í næsta mánuði. Hún er þakk­lát fyrir tækifærið og ætlar að gefa allt í botn á mótinu eftir langa og stranga veg­ferð frá ör­lagaríku skíða­slysi árið 2006.

Sport
Fréttamynd

Vonn hefur ekki staðið upp í meira en viku

Lindsey Vonn er loksins komin heim til Bandaríkjanna aftur. Þessi 41 árs gamla skíðakona segir að hún hafi ekki staðið í fæturna síðan hún datt illa á Ólympíuleikunum fyrir rúmri viku síðan.

Sport