Lög og regla

Mál í biðstöðu vegna dómaraskipta
Mál ákæruvaldsins vegna banaslyssins við Kárahnjúka í mars á síðasta ári er í biðstöðu vegna dómaraskipta. Ákæra í málinu var gefin út um miðjan apríl á þessu ári og hafa allir ákærðu komið fyrir Héraðsdóm Austurlands við þingfestingu málsins, en þeir eru yfirmenn hjá Arnarfelli, Impregilo og VIJV.
Lést í sjóslysi á Viðeyjarsundi
Konan sem lést þegar bátur steytti á Skarfaskeri á Viðeyjarsundi, aðfaranótt laugardags, hét Matthildur Harðardóttir, 51 árs að aldri. Matthildur var til heimilis að Hjallabrekku í Kópavogi. Hún lætur eftir sig tvo syni. Sambýlismanns Matthildar er enn saknað. Hann heitir Friðrik Ásgeir Hermannsson, 33 ára. Friðrik á barnungan son.

Leita þar sem báturinn sökk
Leit að manninum sem saknað er eftir sjóslysið við Skarfaklett stendur enn yfir. Áherslan núna er á að leita neðansjávar þar sem báturinn sökk.

Hafi bjargað lífi foreldra sinna
Svo virðist sem snarræði tíu ára drengs hafi bjargað lífi foreldra hans í sjóslysinu við Skarfaklett aðfaranótt laugardags. Björgunarsveitarmenn leita enn manns sem er saknað eftir slysið en sambýliskona hans fórst þegar báturinn sökk.

21 rúða brotin í grunnskóla
Sautján ára piltur braut 21 rúðu í Grunnskólanum í Borgarnesi. Guðbergur Guðmundsson, varðstjóri lögreglunnar í Borgarnesi, segir ákveðin ummerki í kringum skólann hafa gefið vísbendingar um hver hafi verið að verki.

Ákveðið með frekari leit í dag
Maðurinn sem saknað er eftir að skemmtibátur steytti á Skarfaskeri er enn ófundinn. Ákveðið verður með frekari leit með morgninum. Í gær leitaði fjöldi fólks mannsins. Björgunarskip sigldu um sundin og björgunarsveitarmenn gengu fjörur, allt frá Gróttu að Kjalarnesi. Þá leitaði fjöldi fólks á tugum smábáta á sundunum fyrir utan Reykjavík.

Tekinn með amfetamín
Lögreglan í Keflavík hafði í nótt afskipti af gesti á veitingahúsi í Keflavík. Var hann grunaður um fíkniefnamisferli en við leit á honum fannst lítilræði af meintu amfetamíni. Honum var sleppt að lokinni skýrslutöku.
Ölvaður á bíl með þýfi
Sautján ára sjáanlega ölvaður ökumaður var handtekinn í Borgarnesi í gærmorgun eftir smávægilegt umferðaróhapp. Hann keyrði á umferðarskilti.
Kærður fyrir að kasta vatni
Skömmu fyrir miðnætti í gær veitti lögreglan því athygli þar sem maður var að kasta af sér vatni á miðri gangstétt við fjölfarna götu í Grindavík. Þegar lögregla gerði athugasemd við hann um hátternið kom í ljós að manninum þótti þetta ekki athugavert.
Hrapaði ofan í Laxá
Maður fékk höfuðáverka í gærdag er hann hrapaði í Laxá í Laxárdal. Jóhannes Björgvinsson, varðstjóri í Búðardal, fór á slysstað auk læknis og sjúkrabíls. Hann segir manninum hafa orðið fótaskortur ofarlega í brekku.
Kviknaði í skála út frá kerti
Kona fékk reykeitrun er eldur kviknaði í svefnskála fjórtan kvenna á Kárahnjúkum rétt eftir miðnætti í fyrrinótt. Á annan tug manna, sumar kvennanna og gestir þeirra, voru í skálanum.

Mikill erill hjá lögreglu
Mikill erill var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt og margir voru látnir gista fangageymslur. Að sögn lögreglunnar var í öllum tilvikum um minniháttar mál að ræða, fyrst og fremst ölvun og minniháttar pústra.

Tvær líkamsárásir á Fáskrúðsfirði
Tennur voru kýldar úr ungum manni sem stóð fyrir utan unglingadansleik á Fáskrúðsfirði aðfaranótt sunnudags. Lögreglan varð vitni að árásinni sem virtist tilhæfulaus.
Mátti berja mann
Ísfirðingi á þrítugsaldri var ekki gerð refsing í Héraðsdómi Vestfjarða í gær fyrir að hafa slegið mann nokkrum sinnum í andlitið aðfaranótt sunnudagsins 13. febrúar síðastliðins.
Bíleigandi fær ekki bætt tjón
Maður á fertugsaldri fær ekki bætta rúmlega 2,5 milljón króna Audi-bifreið sem hann lánaði öðrum um mitt sumar árið 2002. Sá sem fékk bílinn lánaðan gjöreyðilagði hann með ofsaakstri um vegþrenginu á Laugavegi fyrir ofan Hlemm og skemmdi fjölda annarra bíla í leiðinni.
Greiði kostnað vegna fingurbits
Kona sem ákærð var fyrir að hafa bitið aðra manneskju í baugfingur á Ísafirði í mars var dæmd til að greiða 9.200 krónur í sakarkostnað í Héraðsdómi Vestfjarða í gær en þar sem hún hefur ekki gerst brotleg við lög áður var ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár.
Þjófar gripnir glóðvolgir
Tveir menn voru handteknir í Reykjavík á aðfararnótt föstudags fyrir árvekni starfsmanna Ríkislögreglustjóra sem tekið höfðu eftir golfsetti við bílageymsludyr embættisins.

Franskur ferðamaður fannst látinn
Franskur ferðamaður sem leitað hafði verið að Fjallabaki fannst látinn um klukkan þrjú í gær. Í tilkynningu frá Landsbjörgu kemur fram að komið hafi verið auga á líkið úr þyrlu Landhelgisgæslunnar í Markarfljóti fyrir neðan Húsadal í Þórsmörk.
Sluppu vel úr árekstri í Njarðvík
Allharður árekstur tveggja bíla varð á Njarðarbraut í Njarðvík um klukkan eitt aðfararnótt föstudags. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Keflavík voru ökumenn og farþegar bílanna fluttir með sjúkrabifreið á Heilbrigðsstofnun Suðurnesja til skoðunar, en meiðsl þeirra voru ekki talin alvarleg.

Þrennt handtekið fyrir þjófnað
Tveir menn voru handteknir fyrir þjófnað af lögreglunni í Reykjavík í nótt. Þá var kona handtekin af tveimur óeinkennisklæddum lögreglumönnum í sjoppu á bensínstöð í nótt en þeim þótti grunsamlegt hversu mikið hún verslaði þar.
16 ára í haldi fram í október
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í gær sextán ára pilt í gæsluvarðhald til 21. október eða þar til dómur fellur í máli hans. Pilturinn rændi ásamt fjórum öðrum tæplega tvítugum starfsmanni Bónuss á föstudaginn fyrir viku og daginn eftir voru þeir úrskurðaðir í sex daga gæsluvarðhald. Hinum fjórum hefur verið sleppt.
Beit konu í baugfingur
Ákvörðun um refsingu rétt tæplega 26 ára gamallar konu var í gær frestað í Héraðsdómi Vestfjarða, en hún hafði verið kærð fyrir líkamsárás. Haldi konan skilorð í tvö ár fellur refsingin niður.

Ósakhæfur fluttur á Sogn
Maður sem í apríl réðst á prófessor í réttarlæknisfræði eftir að hafa hótað honum og setið um hann var í gær dæmdur í öryggisgæslu og fluttur á réttargeðdeildina að Sogni í Ölfusi. Hann var talinn ósakhæfur og refsikröfum í málinu vísað frá.
Dæmdur í gæsluvarðhaldi
Sá sem situr í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa orðið manni að bana á Hverfisgötu í ágúst var, í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi fyrir skjalafals og hylmingu. Maðurinn er tuttugu og þriggja ára og hefur töluverðan sakaferil að baki.
Íkveikjur í borginni í rannsókn
Lögregla rannsakar enn íkveikjur í Reykjavík um síðustu helgi með tilliti til þess hvort brennuvargur eða brennuvargar hafi verið á ferð. Ómar Smári Ármannsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík, segir íkveikjurannsóknir þess eðlis að það borgi sig að gefa sem minnst upp um gang þeirra meðan á þeim stendur.

Drápsfangi fær 18 mánaða dóm
Sigurður Freyr Kristmundsson, 23 ára gamall maður sem játað hefur að hafa banað manni með hnífi að morgni 19. ágúst, var í gær dæmdur í 18 mánaða fangelsi og sviptur ökuréttindum í mánuð fyrir margvísleg önnur brot. Sigurður situr í gæsluvarðhaldi vegna manndrápsins.
Konu enn haldið sofandi
Konu sem hlaut alvarleg brunasár og varð fyrir reykeitrun í eldsvoða í Stigahlíð í Reykjavík 27 ágúst síðastliðinn er enn haldið sofandi í öndunarvél.

Enginn áfellisdómur
"Ég lít svo á að athugasemdir þær er dómendur hafa gert sé engin áfellisdómur yfir ákæruvaldinu enda vanda þeir til sinna verka," segir Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra.

Góður dagur fyrir íslensku þjóðina
"Þetta er góður dagur fyrir alla íslensku þjóðina og sérstaklega þá sem starfa innan Landhelgisgæslunar," sagði Georg Lárusson, forstjóri Landshelgisgæslunnar, en í gær tilkynnti Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, formlega um þriggja milljarða króna fjárstyrk til handa Gæslunni.
Sýknaður en dæmdur í öryggisgæslu
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag karlmann á fertugsaldri af refsikröfu ákæruvaldsins, fyrir að ráðast á prófessor í réttarlæknisfræði fyrir utan heimili hans í apríl. Manninum er hins vegar gert að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun, vegna andlegs ástands hans.