Lög og regla

Fréttamynd

Kona lá í skurði fram á morgun

Um klukkan átta í gærmorgun fannst kona um fimmtugt sem horfið hafi heiman frá sér á bæ í nágrenni Blönduóss eftir miðnætti kvöldið áður. Konan, sem átt hefur við vanheilsu að stríða, gerði sjálf vart við sig þar sem hún lá í skurði um 150 metra frá heimili sínu.

Innlent
Fréttamynd

Fimm hlutu dóm í Dettifossmáli

Fjórir voru fengu fangelsisdóma í seinni hluta svonefnds Dettifossmáls í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þyngstu dómarnir námu sex og hálfu og sex árum. Þá fékk maður hálfsársdóm, kona fjóra mánuði skilorðsbundna og einn fékk 40 þúsund króna sekt. Smyglararnir þurfa að borga fyrir efnarannsókn á eiturlyfjunum sem þeir voru gripnir með.

Innlent
Fréttamynd

Flóttamenn kröfðust aðgerða

Flóttamenn sem dvalið hafa á gistiheimilinu Fit í Reykjanesbæ undanfarna mánuði fóru í dag í kröfugöngu um Keflavík. Þeir dreifðu bréfi þar sem kemur fram að þeir séu orðnir langþreyttir á seinagangi íslenska kerfisins og að þeim finnist undarlegt að hægt sé að fljúga Bobby Fischer til landsins með íslenskt vegabréf eins og ekkert sé, á meðan umsækjendur um pólitískt hæli húki mánuðum saman algerlega aðgerðalausir án þess að fá nokkra lausn sinna mála.

Innlent
Fréttamynd

Þungir dómar fyrir amfetamínsmygl

Tveir menn á þrítugs- og fertugsaldri voru í dag dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur í sex og sex og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til að smygla tæpum átta kílóum af amfetamíni til landsins frá Hollandi.

Innlent
Fréttamynd

Lögregla lýsir eftir manni

Lögreglan lýsir eftir Hafsteini Eðvarðssyni. Síðast er vitað um ferðir Hafsteins við Djúpavog um klukkan fjögur í gær. Talið var að hann væri á leið til Egilsstaða. Hafsteinn, sem er fertugur, var á jeppabifreið af gerðinni Kia Sportage, ljósgrárri að lit. Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Hafsteins eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Fáskrúðsfirði.

Innlent
Fréttamynd

Borgin bætir stuld af fötluðum

Borgarráð samþykkti á fundi sínum á fimmtudag að vísa til lögreglu meintum fjárdrætti starfsmanns borgarinnar úr heimilissjóði íbúa á heimili ætluðu fötluðum.

Innlent
Fréttamynd

Greiði bætur vegna graðhests

Steypustöðin Dalvík ehf. og Sjóvá-Almennar voru í dag dæmd til að greiða eiganda graðhestsins Ísaks frá Ketilsstöðum 550.000 krónur í bætur ásamt vöxtum. Hesturinn drapst þegar steypubíll frá Steypustöðinni ók á hann skammt frá Dalvík í október árið 2002. Ísak var undan kynbótahestinum Hrafni frá Holtsmúla og ágætlega ættaðri hryssu, Litlu-Löpp frá Möðruvöllum. Ísak frá Ketilsstöðum var því metinn á 1,1 milljón króna.

Innlent
Fréttamynd

Fékk refsilækkun fyrir aðstoðina

64 ára gömul hollensk kona sem gripin var í Leifsstöð með 759 grömm af kókíni falin í sérsaumaðri hárkollu fékk refsingu mildaða í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, vegna þess hve hún var samvinnuþýð við lögreglu. Konan var dæmd í eins og hálfs árs fangelsi.

Innlent
Fréttamynd

Dæmd fyrir kókaínsmygl í hárkollu

Erlend kona á sjötugsaldri var í dag dæmd í eins og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa flutt inn kókaín sem falið var í hárkollu sem hún bar.

Innlent
Fréttamynd

Alvarlegt samkeppnisbrot Símans

Samkeppnisráð hefur komist að þeirri niðurstöðu að Landssíminn hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína með því að tvinna saman ólíka þjónustuhætti og veita tryggðarafslætti í svonefndu "Allt saman" tilboði. Samkvæmt úrskurði Samkeppnisráðs skekkti Landssíminn á alvarlegan hátt samkeppni á markaði og misnotaði markaðsráðandi stöðu sína.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdur til 300 þúsund króna sektar

Tuttugu og þriggja ára karlmaður var í Héraðsdómi Reykjaness í morgun dæmdur til 300 þúsund króna sektar fyrir að hafa í fórum sínum tæp þrjú grömm af kókaíni og ríflega hálft gramm af amfetamíni, auk þess að hafa ítrekað gerst sekur um umferðalagabrot. Þá var maðurinn einnig sviptur ökuleyfi í tvö ár.

Innlent
Fréttamynd

Sektir gætu orðið tvöföld vanskil

Vanskil virðisaukaskatts og opinberra gjalda átta fyrirtækja sem tíu einstaklingar tengdir Frjálsri fjölmiðlun eru ákærðir fyrir nema yfir 104 milljónum króna. Að auki eru tveir úr hópnum ákærðir fyrir heimildarlausan yfirdrátt upp á tæpar 24 milljónir króna þegar þeir færðu peninga á milli fyrirtækja.

Innlent
Fréttamynd

Engar bætur fyrir kaup í deCode

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði á miðvikudag Landsbanka Íslands af skaðabótakröfu manns sem hélt því fram að bankinn hefði ekki upplýst hann um áhættuna sem því fylgdi að kaupa hlutabréf í deCode Genetics.

Innlent
Fréttamynd

Sama konan í tveimur ránum?

Flest bendir til að ein og sama unga og ljóshærða konan hafi staðið að tveimur ránum á höfuðborgarsvæinu seint í gærkvöldi. Fyrst ógnaði hún starfsstúlku á American Style í Kópavogi með steikarhnífi á tólfta tímanum í gærkvöldi og heimtaði peninga.

Innlent
Fréttamynd

Eldur í húsi við Grettisgötu

Lið frá öllum slökkviliðsstöðvum á höfuðborgarsvæðinu var kallað á vettvang eftir að mikill eldur gaus upp í tvílyftu bakhúsi við Grettisgötu laust fyrir klukkan eitt í nótt. Þegar slökkvilið kom á vettvang var húsið, sem er járnklætt timburhús, nær alelda.

Innlent
Fréttamynd

Gæsluvarðhaldið framlengt

Gæsluvarðhald yfir erlendu pari, sem er talið hafa flutt tvo bílaleigubíla úr landi með Norrænu og er auk þess grunað um fjárdrátt og skjalafals, hefur verið framlengt til 30. júní. Héraðsdómur Reykjavíkur framlengdi varðhaldið að kröfu lögreglunnar.

Innlent
Fréttamynd

Situr inni í eitt og hálft ár

Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur á þriðjudag var 33 ára gamall maður dæmdur í 18 mánaða fangelsi, áréttuð var ævilöng ökuréttarsvipting yfir honum og einnig gert upptækt bitvopn og tæplega eitt og hálft gramm af amfetamíni sem á honum fannst.

Innlent
Fréttamynd

Tveggja ára dráttur á kæru

27 ára gömul kona var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmd til tveggja mánaða fangelsisvistar fyrir að misnota debetreikning sumarið 2002 þannig að innistæðulaus skuldfærsla nam rúmri hálfri milljón.

Innlent
Fréttamynd

Konan fundin

Ung kona sem framdi tvö vopnuð rán um miðnæturbil í gærkvöldi er komin í leitirnar. Þá hefur lögreglan einnig haft hendur í hári manns sem hótaði starfsmanni Lyfs og heilsu við Háaleitisbraut fyrir helgi. Konan notaðist við sprautunál í öðru ráninu í gær líkt og maðurinn gerði.

Innlent
Fréttamynd

Enn óvíst um eldsupptök

Enn er allt á huldu um eldsupptök í bakhúsi við Grettisgötu sem stórskemmdist í eldi í nótt en rannsókn er haldið áfram.

Innlent
Fréttamynd

Mál F.f. þingfest í dag

Mál ríkislögreglustjóra gegn tíu stjórnendum Frjálsrar fjölmiðlunar og dótturfyrirtækja var í dag þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur. Frjáls fjölmiðlun fór á hausinn fyrir þremur árum og var gjaldþrotið eitt hið stærsta í íslenskri viðskiptasögu. Kröfur í þrotabúið námu um 2,2 milljörðum króna en aðeins fengust um 300 milljónir upp í kröfurnar.

Innlent
Fréttamynd

Faldi kókaín í brókinni

23 ára gamall maður var dæmdur í 300.000 króna sekt í Héraðsdómi Reykjaness í gær, en hann var tekinn í nóvember í fyrra á skemmtistað með 0,6 grömm af amfetamíni; í janúarbyrjun ók hann bíl án réttinda og svo aftur fullur mánuði síðar.

Innlent
Fréttamynd

Eggert tapaði í héraði

Eggert Haukdal, fyrrum oddviti Vestur-Landeyjahrepps, tapaði í gær máli sem hann höfðaði á hendur hreppnum í febrúar árið 2002 til greiðslu á rúmlega fjórum milljónum króna auk dráttarvaxta. Sveitarfélagið, sem heitir nú Rangárþing eystra, var sýknað af kröfum Eggerts.

Innlent
Fréttamynd

Ungs manns enn leitað

Lögregla leitar enn ungs manns sem komst undan í Heiðmörk á mánudagsmorguninn eftir að þar var kveikt í stolnum bíl. Lögreglan í Hafnarfirði var kölluð til og handsamaði hún á staðnum tvo 17 ára pilta og 15 ára gamla stúlku.

Innlent
Fréttamynd

Eldur í ónýtri rútu

Slökkvilið Reykjanesbæjar var kallað að Helguvík rétt eftir klukkan fjögur á aðfararnótt miðvikudags en þar logaði eldur í ónýtri rútu á ruslahaug. Í greinargerð lögreglu um málið kemur fram að tjón hafi ekki hlotist af og slökkvilið slökkti í rútunni.

Innlent
Fréttamynd

Sveitarfélagið sýknað af kröfunni

Sveitarfélagið Rangárþing eystra var í dag sýknað af kröfu Eggerts Haukdals, fyrrum alþingismanns og oddvita Vestur-Landeyjahrepps til þrjátíu ára, um greiðslu ríflega fjögurra milljóna króna með vöxtum og dráttarvöxtum.

Innlent
Fréttamynd

Rotaðist í Brynjudal í Hvalfirði

Maður var fluttur á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahúss eftir vinnuslys í Brynjudal í Hvalfirði nokkru fyrir hádegi í gær. Maðurinn fékk högg á höfuðið og missti við það meðvitund þegar hann var að losa slyskju sem rann til og skall á hann.

Innlent
Fréttamynd

Kynferðisbrotum fækkaði um 25%

Tilkynningum um kynferðisbrot í Reykjavík fækkaði um fjórðung í fyrra, innbrotum fækkaði um 12%, en fíkniefnabrotum fjölgaði um 3%. Karlar voru rúm áttatíu prósent þeirra sem handteknir voru. Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu lögreglustjórans í Reykjavík fyrir árið 2004.

Innlent
Fréttamynd

Slógust tveir við lögreglu

Tveir menn um tvítugt voru handteknir snemma í gærmorgun eftir tilraun til að brjótast inn í söluturninn Sunnutorg við Langholtsveg um nóttina. Til mannanna sást þar sem þeir voru að reyna að komast inn um klukkan hálf fimm um nóttina, en að sögn lögreglu virtist sem styggð hafi komið að þeim þegar þjófavarnarkerfi fór í gang.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdur fyrir fjölda brota

Maður á fertugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi fyrir fjölmörg brot, m.a. fyrir tilraun til ráns á Péturspöbb á Höfðabakka, hann var tekinn próflaus og undir áhrifum fíkniefna við akstur, braut vopnalög og sveik vörur út úr verslunum með skjalafalsi.

Innlent