Lög og regla

Fréttamynd

Ætlaði ekki að bana Sæunni

Magnús Einarsson sem ákærður er fyrir að hafa orðið eiginkonu sinni og barnsmóður, Sæunni Pálsdóttur, að bana með því að kyrkja hana mætti fyrir Héraðsdóm Reykjaness í gærmorgun þegar málið var þingfest. Magnús játaði að hafa orðið eiginkonu sinni að bana en sagði það ekki hafa verið ásetning sinn.

Innlent
Fréttamynd

Handteknir eftir fíkniefnaleit

Lögreglan í Kópavogi handtók í nótt tvo menn eftir að fíkniefni fundust við leit í bíl þeirra og við húsleit heima hjá öðrum þeirra. Alls fundust 20 grömm af amfetamíni, 20 e-töflur og 20 grömm af hassi og eru mennirnir grunaðir um að hafa ætlað að selja efnin. Þeim var sleppt undir morgun að yfirheyrslum loknum en rannsókn málsins heldur áfram.

Innlent
Fréttamynd

Farið fram á gæsluvarðhald

Lögreglan á Akureyri krafðist í gærkvöldi gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir þremur mönnum, sem handteknir voru í fyrrakvöld með 350 grömm af hassi í fórum sínum við komuna til Akureyrar frá Reykjavík. Smásöluandvirði hassins gæti numið allt að 900 þúsundum. Tveir mannanna hafa áður gerst brotlegir við lög, meðal annars fyrir fíkniefnabrot, líkamsárásir og hótanir.

Innlent
Fréttamynd

Hótaði að stinga stúlkuna á hol

Lögreglan í Kópavogi leitar enn tveggja manna, líklega um tvítugt, sem rændu peningum í verslun við Engihjalla síðdegis í gær. Annar þeirra rak skrúfjárn í maga afgreiðslustúlku og hótaði að stinga hana á hol ef hún afhenti honum ekki allt reiðufé, sem hún gerði.

Innlent
Fréttamynd

Þaulskipulagt tyggjósjálfsalarán

Harla óvenjulegt, en að því er virðist þaulskipulagt rán, var framið í anddyri verslunar í Njarðvík um kvöldmatarleytið í gærkvöldi þegar tveir ungir menn undu sér þar inn, slitu fullan tyggjósjálfsala af standinum og hlupu með hann út.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdur fyrir sama brot

Ungur bifhjólamaður, sem lögreglan stöðvaði með því að aka í veg fyrir hann, var í dag sýknaður af því að hafa brotið af sér á þeim tíma. Hann var hins vegar dæmdur fyrir brot fyrr um kvöldið sem annar maður hefur gengist við og gert dómsátt.

Innlent
Fréttamynd

Kona slasast á vélsleða

Ung kona hlaut opið breinbrot þegar hún féll af snjósleða á Lyngdalsheiði, á milli Þingvalla og Rauðavatns, rétt fyrir níu í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Með 300 gr. af hassi á leið norður

Þrír menn 19 til 25 ára voru handteknir við Blönduós með 300 grömm af hassi. Þeir gista fangageymslur og hefur lögreglan óskað eftir því að þeir verði settir í gæsluvarðhald.

Innlent
Fréttamynd

Fundu mikið magn af hassi

Lögreglan á Akureyri handtók í gær þrjá menn vegna fíkniefnamáls. Mennirnir voru á leið frá Reykjavík til Akureyrar og fundust um 300 grömm af hassi í fórum þeirra. Þetta er eitt mesta magn af hassi sem lögreglan á Akureyri hefur lagt hald á í einu.

Innlent
Fréttamynd

Þýfi á uppboð

"Öllu þýfi sem við gerum upptækt við rannsókn mála er skilað til eigenda sinna en fer annars á hið árlega uppboð," segir Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík. Árlega nær lögregla til baka miklu af þýfi misyndismanna en það skilar sér ekki alltaf aftur til eigenda sinna.

Innlent
Fréttamynd

Líklegt að breyta þurfi lögum

Líklegt er að breyta þurfi lögum eftir að Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið hefði brotið ákvæði um friðhelgi eignarréttarins. 

Innlent
Fréttamynd

Heimskuleg greiðasemi

Heimskuleg greiðasemi Sveinbjörns Kristjánssonar, fyrrum aðalféhirðis Símans, varð til þess að ríflega 260 milljónir hurfu af rekstrarreikningum Símans án þess að eftir var tekið, sagði Ásgeir Þór Árnason, verjandi Kristjáns Ragnars Kristjánssonar, í Hæstarétti í gær.

Innlent
Fréttamynd

Málið gegn Arngrími tekið fyrir

Mál Norðmannsins Anders Saethers gegn Arngrími Jóhannssyni, eins stofnenda flugfélagsins Atlanta, verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Saether segir Arngrím hafa gert bindandi samning um kaup á helmingseignarhluta í fyrirtækinu Scandinavian Historic Flight, en hann hafi svo rofið þann samning einhliða.

Innlent
Fréttamynd

Einhliða uppsögn ólögmæt

"Þetta sýnir og sannar að við höfðum enn einu sinni rétt fyrir okkur og hefur tvímælalaust fordæmisgildi fyrir aðra," segir Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Dómstóllinn hafnaði beiðninni

Yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu hefur hafnað beiðni íslenska ríkisins um að taka fyrir bótaþátt í dómi Mannréttindadómstólsins í máli íslensks sjómanns gegn ríkinu.

Innlent
Fréttamynd

Uppsagnir varnarliðsins ólögmætar

Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti í dag að uppsagnir varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, á hluta starfstengdra kjara félagsmanna hjá Rafiðnaðarsambandi Íslands, séu ólögmætar.

Innlent
Fréttamynd

Þjófar hlaupnir uppi

Lögreglumenn úr Reykjavík hlupu uppi tvo innbrotsþjófa sem höfðu brotist inn í tölvufyrirtæki í Mörkinni um klukkan fjögur í nótt. Lögreglan í Reykjavík er þar með búin að góma sjö innbrotsþjófa í vikunni, ýmist á vettvangi eða á flótta, og gera þýfi upptækt í öllum tilvikum.

Innlent
Fréttamynd

Þingfesting hjá Lettunum

Þingfesting verður í dag í Héraðsdómi Austurlands í máli tveggja lettneskra starfsmanna, sem hafa sinnt fólksflutningum fyrir GT verktaka á Kárahnjúkasvæðinu án tilskilinna leyfa.

Innlent
Fréttamynd

Afleiðingar skilorðsdóma engar

"Mitt mat er að gera þarf greinarmun á þeim sem brjóta af sér í fyrsta skipti og svo aftur síbrotafólki," segir Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík. Athygli hefur vakið að talsverður fjöldi síbrotamanna hljóta ítrekað skilorðsbundna dóma en Geir Jón segir það ekki hlutverk lögreglu að gagnrýna dómstólana.

Innlent
Fréttamynd

Landssímamálið í Hæstarétti

"Heimskuleg greiðasemi" Sveinbjörns Kristjánssonar fyrrum aðalféhirðis Símans varð til þess að ríflega 260 milljónir hurfu úr rekstrareikningum Símans án þess að eftir var tekið.

Innlent
Fréttamynd

Peningur hvarf af reikningum

Tæplega 600 þúsund krónum var stolið af tveimur debetkortareikningum íslenskra hjóna þegar þau voru á skíðaferðalagi á norður Ítalíu í mars.

Innlent
Fréttamynd

Fá greitt fyrir kynlífssýningar

Íslenskar stúlkur hafa hagnast á því að senda út myndir af sér við kynferðislegar athafnir á netinu, segir rannsóknarlögreglumaður í Reykjavík. Þá segir hann barnaníðinga eiga msn - netföng hjá fjölda barna. Þeir séu markvisst á veiðum á netinu, öllum stundum, allan sólarhringinn. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Mafían teygir anga sína hingað

Mafíustarfsemi frá Eystrasaltslöndunum teygir anga sína til Íslands. Smári Sigurðsson, yfirmaður alþjóðadeildar Ríkislögreglustjóra, segir að lögreglan hafi séð Litháa hér í brotastarfsemi, dæmi séu um innflutning fíkniefna og eftirlýstur maður bíði framsals.

Innlent
Fréttamynd

50 sjómönnum greiddar bætur?

Ríkið gæti þurft að greiða rúmlega fimmtíu sjómönnum bætur eftir þá niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu að íslenska ríkið hafi brotið gegn ákvæðum Mannréttindasáttmálans um friðhelgi eignarréttarins, með því að hafa bætur af sjómanni með lagasetningu fyrir ellefu árum.

Innlent
Fréttamynd

Kona sem lifði af

Hún sætti harkalegu kynferðisofbeldi af hendi stjúpföður síns frá fjögurra ára aldri. Þar kom að hún þurfti að velja á milli sín og fjölskyldu sinnar. Hún valdi sig. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Valgerður áfrýjar dómnum

Valgerður Bjarnadóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu, hyggst áfrýja úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur en í fyrradag féll dómur henni í óhag í skaðabótamáli hennar gegn ríkinu.

Innlent
Fréttamynd

Óvenju gróf líkamsárás

Þingfest var í Héraðsdómi Reykjavíkur í fyrrdag mál á hendur manni sem sakaður er um að hafa valdið öðrum manni miklu líkamstjóni á veitingastaðnum Kaffi Austurstræti með þeim afleiðingum að fórnarlambið hlaut fjölmarga djúpa skurði á andlit og háls.

Innlent
Fréttamynd

Á batavegi eftir sjóslys

Sjómaðurinn, sem slasaðist um borð í Snorra Sturlusyni aðfaranótt sunnudags og var fluttur til Reykjavíkur með þyrlu varnarliðsins, er á batavegi. Hann útskrifaðist af gjörgæsludeild í morgun og er nú á almennri skurðdeild. Búast má við að hann verði útskrifaður af sjúkrahúsinu á næstu dögum.

Innlent
Fréttamynd

Sviðsetja slys í Hvalfjarðargöngum

Almannavarnaæfing verður í Hvalfjarðargöngum á laugardaginn kemur og verða göngin því lokuð á milli 8 og 15 af þeim sökum. Í tilkynningu frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og Speli kemur fram að ætlunin sé að sviðsetja árekstur þar sem koma við sögu rúta og tveir fólksbílar neðst í göngunum.

Innlent