Innlent
267 268 269 270 271 272 273 274 275 … 334 ›
Verkalýðsfélag Húsavíkur vill ekki fórna störfum til að ná niður matvælaverði Verkalýðsfélag Húsavíkur og nágrennis tekur undir ályktun formanna stéttarfélaga innan Starfsgreinasambands og segist ekki tilbúið að fórna íslenskum kjarasamningum til að ná niður matvælaverði. Innlent 30.8.2006 14:56
Tap hjá Hitaveitu Rangæinga Hitaveita Rangæinga tapaði 21,4 milljónum króna á fyrri helmingi ársins. Á sama tíma í fyrra tapaði hitaveitan 17 milljónum krónum. Tekjuskattur hitaveitunnar, sem greiddur verður á næsta ári, er ekki inni í árshlutareikningnum. Viðskipti innlent 30.8.2006 14:52
Verð á eldsneyti lækkar Verð á eldsneyti lækkaði í morgun og er lítrinn nú kominn í 124 krónur og tuttugu aura. Það var Essó sem reið á vaðið og lækkaði verð á bensíni um tvær krónur og tíu aura. Innlent 30.8.2006 14:52
Stoðir skila 4,2 milljarðs króna hagnaði Fasteignafélagið Stoðir hf. og dótturfélög þess skiluðu 4,1 milljarðs króna hagnaði á fyrstu sex mánuðum ársins en þetta 3,4 milljörðum krónum betri afkoma en á sama tíma fyrir ári. Viðskipti innlent 30.8.2006 14:39
Eldur í gamla Hampiðjuhúsinu Eldur kom upp í gamla Hampiðjuhúsinu í Brautarholti rétt fyrir klukkan tvö í dag. Kviknað hafði í rusli á annarri hæð hússins og var mikill reykur. Slökkviliðið slökkti eldinn og vinnur nú við að reykraæsta. Ekki er vitað hve miklar skemmdir urðu í húsinu. Innlent 30.8.2006 14:17
Hagnaður hjá Atorku Group Hagnaður fjárfestingarfélagsins Atorku Group, nam 856 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi. Þetta er nokkur viðsnúningur í rekstri félagsins, sem tapaði 241,4 milljónum króna á sama tíma í fyrra. Þá nam hagnaður Atorku á fyrri helmingi ársins 4,9 milljörðum króna. Viðskipti innlent 30.8.2006 13:59
Endaði í húsagarði Pallbíll á miklum hraða ók aftan á annan pallbíl við Hlíðarveg 11 í Kópavogi um tvö leytið í dag, með þeim afleiðingum að pallbíllinn sem ekið var á endaði í runna inn í garði en bíllinn sem lögregla veitti eftirför endað á strætisvagnaskýli og stórskemmdi það. Lögregla handtók tvo menn, annan 17 ára og hinn 19 ára á staðnum. Lögreglan hafði áður fengið tilkynningu um ferð pallbíls á miklum hraða í hverfinu og sýndist sjónarvottum bílstjórinn vera í annarlegu ástandi. Bíllinn fannst fljótlega og veitti lögregla honum eftirför, með fyrrgreindum afleiðingum. Sjónarvottar segja að mikill hvellur hafi hreyrst þegar bílarnir lentu í árekstrinum. Innlent 30.8.2006 13:28
Fjölmennar aðgerðir lögreglu í Kópavogi Fjölmennt lögreglulið er nú við Hlíðarveg í Kópavogi. Lögreglan gefur ekki upplýsingar um málið að svo stöddu en staðfestir að um aðgerðir að hennar hálfu sé að ræða á staðnum. Innlent 30.8.2006 12:58
Lýsing og framkvæmd laga Dómsmálaráðuneytið hefur sent frá sér lýsingu á ákvæðum laga um réttarstöðu kvenna af erlendu bergi brotnar, sem ganga í hjónaband með íslenskum mönnum. Töluverð óvissa hefur ríkt um þessi mál, þar sem konur sem sagt hafa skilið við menn sína vegna ofbeldis, hafa jafnvel þurft að yfirgefa landið. Hér er greinargerð dómsmálaráðuneytisins í heild sinni. Innlent 30.8.2006 11:12
Metfjöldi ferðamanna Samkvæmt talningu Ferðamálastofu á Keflavíkurflugvelli fóru tæplega 67 þúsund erlendir ferðamenn um flugstöðina í júlí. Þetta er mesti fjöldi ferðamanna, sem komið hafa til landsins, í einum mánuði og hækkun um 2,6% frá sama tíma í fyrra. Innlent 30.8.2006 10:00
Hannes vann fyrstu skákina Hannes Hlífar Stefánson vann Héðinn Steingrímsson í fyrstu einvígisskákinni af fjórum í gærkvöldi, en þeir tefla nú um Íslandsmeistaratitilinn í skák. Innlent 30.8.2006 08:29
Lyklar að nýjum stúdentagörðum afhentir Félagsstofnun stúdenta og stúdentar við Háskóla Íslands fögnuðu í gær þegar lyklar voru afhendir að nýjum stúdentagörðum við Lindagötuna. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri afhenti alnafna sínum lyklana að nýrri stúdentaíbúð að því tilefni. Innlent 30.8.2006 08:27
Fitch staðfestir lánshæfi Kaupþings og Glitnis Lánshæfismatsfyrirtækið Fitch Ratings hefur staðfest lánshæfiseinkunnir bæði Kaupþings banka og Glitnis banka. Einkunnn Kaupþings er sögð endurspegla sterka stöðu bankans og einkunn Glitnis góða hagnaðarmyndun í rekstri. Viðskipti innlent 30.8.2006 09:09
Erfiðlega gekk að greiða Magna atkvæði Erfiðlega gekk að greiða atkvæði fyrir raunveruleikaþáttinn Rockstar Supernova í gærkvöldi vegna mikils álags, í það minnsta hér á Íslandi. Margir Íslendingar ætluðu að styðja Magna með því að senda inn fjölda atkvæða en fram til þrjú í nótt komst ekki í gegn nema brotabrot af þeim atkvæðum sem fólk reyndi að senda. Innlent 30.8.2006 08:24
Lánaði 15 ára strák bílinn sinn Lögreglan í Keflavík stöðvaði í gærkvöldi 15 ára ungling undir stýri í miðbæ Keflavíkur. 18 ára eigandi bílsins hafði leyft honum að keyra og fær sá líklega kæru fyrir enda er það ólöglegt. Innlent 30.8.2006 08:22
Ók um göngustía í Fossvogsdal Ökumaður á stolnum bíl, sem grunaður er um að hafa verið undir áhrifum vímuefna, reyndi að stinga lögregluna í Kópavogi af í nótt. Mikill eltingaleikur upphófst og tók lögreglan í Reykjavík þátt. Eltingaleikurinn barst um víðan völl, meðal annars um göngustíga í Fossvogsdal. Innlent 30.8.2006 08:14
Hannes komin með einn vinning Hannes Hlífar Stefánson vann Héðinn Steingrímsson í fyrstu einvígisskákinni af fjórum, en þeir heyja nú einvígi um Íslandsmeistaratitilinn í skák í Orkuveitu Reykjavíkur. Einvígsskákvígið hófst fyrr í dag og mun standa næstu daga. Fjöldi áhofenda kom á skákstað og sá Helgi Ólafsson stórmeistari um skákskýringar. Næsta einvígsskák fer fram á morgun klukkan fimm í húsi Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi. Innlent 29.8.2006 22:14
Eldur kviknaði í timbursölu BYKO Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út á áttunda tímanum í kvöld vegna elds sem hafði kviknað í sagi í timbursölu BYKO í Kópavogi. Starfsmenn Byko voru búnir að slökkva eldin þegar slökkvilið kom á staðinn. Talsverður reykur var á svæðinu og þurftu slökkviliðsmenn því að reykræsta timbursöluna. Innlent 29.8.2006 21:55
Hægt að kjósa Magna á MSN Í nótt verður í fyrsta sinn hægt að kjósa Magna Ásgeirsson í gegnum skilaboðaforritið MSN Messenger. Það er Microsoft á Íslandi stendur fyrir þessari nýjung. Þeir sem hyggjast greiða Magna atkvæði sitt með þessum hætti þurfa að endurræsa forritið og þá kemur í ljós flipi á vinstri hönd með mynd af stjörnu á. Þegar ýtt er á stjörnuna kemur kosningavalmynd í ljós. Þessi nýja leið til að greiða keppendum atkvæði í Rockstar:Supernova stendur einungis Íslendingum og Bandaríkjamönnum til boða en auk þess er hægt að kjósa á Netinu og senda sms líkt og áður. Innlent 29.8.2006 20:40
Stúdentar fagna nýjum stúdentagörðum Félagsstofnun stúdenta og stúdentar við Háskóla Íslands fögnuðum í dag þegar lyklar voru afhendir að nýjum stúdentagörðum við Lindagötuna. Innlent 29.8.2006 19:51
Hafa játað hlutdeild í smygli fangavarðar Nokkrir hafa játað að eiga þátt í fíkniefnasmygli fangavarðar á Litla-Hrauni. Þeir eru utan veggja fangelsisins og ekki hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir þeim. Innlent 29.8.2006 18:23
Tvær létust í umferðarslysum Nítján hafa látist í umferðinni á Íslandi á þessu ári. Stúlka lést eftir umferðarslys á Eiðavegi í gærkvöldi. Önnur íslensk stúlka lést í umferðarslysi í Danmörku í gær. Innlent 29.8.2006 18:20
Tefla á skákborði meistaranna Hannes Hlífar Stefánsson og Héðinn Steingrímsson hófu að tefla um Íslandsmeistaratitilinn í skák í húsakynnum Orkuveitunnar klukkan fimm í dag. Þeir tefla á skákborðinu sem Fischer og Spasský tefldu við árið 1972, en afar sjaldgæft að mönnum sé leyft að tefla á því. Innlent 29.8.2006 18:15
Háskóli Íslands og íslensk erfðagreining í samstarf Háskóli Íslands og íslensk erfðagreining hafa gert samstarfssamning sem gefur nemendum Háskólans kost á að sækja framhaldsnámskeið í mannerfðafræði í umsjón vísindamanna og sérfræðinga Íslenskrar erfðagreiningar. Innlent 29.8.2006 18:08
17 ára piltur handtekinn með 100 grömm af kókaíni Sautján ára piltur var handtekinn á Leifsstöð með 100 grömm af kókaíni falið innvortis. Þetta er í þriðja sinn á rúmri viku sem reynt er að smygla fíkniefnum til landsins með því að fela þau innvortis. Innlent 29.8.2006 18:08
Valgerður á fund iðnaðarnefndar Minnihluti iðnaðarnefndar hefur óskað eftir því við formann nefndarinnar að Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi iðnaðaráðherra, verði kölluð á fund nefndarinnar á morgun. Innlent 29.8.2006 18:04
Bæta þarf viðbúnarð og viðbragðsáætlanir Skerpa þarf á viðbúnaði og gera viðbragðsáætlanir vegna sinu- og skógarelda sem upp kunna að blossa í framtíðinni. Sinubruninn á Mýrum í vor sýndi fram á að áhættan væri meiri en áður var talið. Innlent 29.8.2006 18:04
Íslensk stúlka lést í bílslysi á Jótlandi Íslensk stúlka lést á Jótlandi í Danmörku á mánudaginn síðastliðinn þegar strætisvagn og flutningabíll keyrðu saman. Stúlkan hét Hulda Hauksdóttir og var 22. ára gömul. Innlent 29.8.2006 17:08
Neytendur bjartsýnir í ágúst Væntingavísitala Gallup mældist 108 stig í ágúst og er það 22,6 prósenta hækkun frá síðasta mánuði. Niðurstöðurnar benda til að íslenskir neytendur séu almennt bjartsýnir á stöðu mála í hagkerfinu. Viðskipti innlent 29.8.2006 16:37
Krabbameinssjúk börn fá fartölvur til eignar Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna og EJS, umboðsaðili Dell tölva á Íslandi skrifuðu undir samstarfssamning á Barnaspítala hringsins í dag. Að því tilefni fengu fjögur börn fengu afhendar tölvur frá EJS. Innlent 29.8.2006 15:43