Innlent
285 286 287 288 289 290 291 292 293 … 334 ›
Stefnir í metþátttöku í Reykjavíkurmaraþoni Útlit er fyrir að metþátttaka verði í Reykjavíkurmaraþoni á laugardag því þrefalt fleiri hafa skráð sig til leiks nú en á sama tíma í fyrra. Ástæðan er meðal annars sú að fyrirtæki heita nú á starfsfólk sitt í hlaupinu og rennur allur ágóðinn til góðgerðarmála. Innlent 15.8.2006 12:35
Bensínverð lækkaði um eina krónu Bensínorkan lækkaði bensínverð um eina krónu og sextíu aura á lítrann í morgun. Að sögn talsmanns félagsins var þetta gert vegna lækkunar á heimsmarkaðsverði og þrátt fyrir að dollarinn hafi aðeins hækkað gagnvart krónunni. Innlent 15.8.2006 12:29
Viðgerðir á Hringvegi 1 Vegna slitlagsviðgerða verður Hringvegur 1 lokaður til suðurs frá Grundartangavegi að Akrafjallsvegi við Hvalfjarðargöng til kl. 19 í dag og frá kl 9 til 14 á morgun. Vegfarendum er bent á að aka Akrafjallsveg. Innlent 15.8.2006 13:05
Ekki vitað hvort Dell-fartölvur hér séu með gallaða rafhlöðu Stærsti tölvuframleiðandi í heimi, Dell, hyggst innkalla ríflega fjórar milljónir fartölvurafhlaðna vegna hættu á að það kvikni í þeim. Ekki liggur fyrir hvort einhverjar fartölvur hér á landi eru með rafhlöðutegundina sem um ræðir. Innlent 15.8.2006 12:24
Töldu sig ekki mega versla á frísvæði Keflavíkurflugvallar Hertar öryggisreglur á Keflavíkurflugvelli hafa áhrif á mörgum ólíkum sviðum. Til dæmis þorðu margir brottfararfarþegar ekki að versla á frísvæðinu í flugstöðinni í morgun af ótta við að brjóta reglur, en svo er þó ekki. Innlent 15.8.2006 12:15
Funduðu á Ísafirði í gær Það hljóp á snærið hjá þeim sem leita logandi ljósi að klíkumyndun vegna leiðtogakjörs í Framsóknarflokknum þegar fréttir bárust af því að þrír frambjóðendur til þriggja æðstu embætta flokksins hefðu sameiginlega efnt til fundar með framsóknarmönnum á Ísafirði í gærkvöldi. Innlent 15.8.2006 12:06
Landsvirkjun semur við TM Software Landsvirkjun hefur gert samning við TM Software um uppsetningu símstöðva og búnaðar sem byggist á nýjustu IP-símatækni fyrir skrifstofu Landsvirkjunar á Akureyri, í Laxárstöð og Fljótsdalsstöð, Kárahnjúkum. Í verkinu felst meðal annars forritun, uppsetning, prófanir og kennsla á IP-símstöðvarnar og símabúnaðinn sem þeim tilheyrir. Viðskipti innlent 15.8.2006 11:04
Féll af hestbaki Kona féll af hestbaki í Norðurárdal í gær og varð undir hestinum. Hún var flutt á Slysadeild Landsspítalans af ótta við að hún hafi meiðst innvortist, en rannsóknir leiddu það ekki í ljós. Til öryggis var hún undir eftirlits lækna á sjukrahúsinu á Akranesi í nótt, þar sem hún er þaðan. Innlent 15.8.2006 09:40
Innbrotsþjófur handtekinn Ungur innbrotsþjófur var handtekinn eftir að hann braust inn í apótek við Álfabakka í Breiðholti í Reykjavík um þrjú leitið í nótt. Lögreglugmenn gripu hann á staðnum og kom þá í ljós að þetta var sami þjofurinn og lögreglan handtók í fyrrinótt fyrir að hafa brotist inn í sama apótek og annað til viðbótar um nóttina. Eftir það var hann vistaður í fangageymslum en sleppt að yfirheryslum loknum í gær. Það verður væntanleg gert aftur í dag og býst lögregla allt eins við að hann fari enn á kreik í nótt.- Innlent 15.8.2006 09:38
Mega bæta þremur kílóum við farangurinn Icelandair hefur ákveðið að heimila fólki að bæta þremur kílóum við farangur sinn, sem fer í lest flugvélanna, þannig að heildarþyngd verði 23 kíló, áður en til greiðlsu á yfirvigt kemur. Innlent 15.8.2006 08:31
Kreditkortavelta eykst um nær fjórðung Kreditkortavelta heimilanna á fyrri helmingi ársins var 22,1 prósenti meiri en á sama tíma fyrir ári. Samkvæmt Hagstofunni er hefur veltan aukist um 18,3 síðustu tólf mánuði samanborið við mánuðina tólf þar á undan. Innlent 15.8.2006 08:11
Á 116 kílómetra hraða á Sæbraut Lögregla stöðvaði vélhjólamann á Sæbraut í Reykjavík um miðnætti, eftir að hann hafði mælst á 116 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 60 kílómetar. Hann var auk þess með farþega á hjólinu. Fjögurra kílómetra hraða vantaði upp á að hann væri á tvöföldum hámarkshraða, en þá hefði hann misst ökuréttindin. Innlent 15.8.2006 08:05
Kreditkortavelta eykst um 22,1% Kreditkortavelta heimilanna á fyrri helmingi ársins var 22,1 prósent meiri en á sama tíma fyrir ári. Innlent 14.8.2006 22:20
Ástand vinnumarkaðar Starfandi aðilum á vinnumarkaði hefur fjölgað á öðrum ársfjórðungi þessa árs miðað við sama tíma í fyrra. Samkvæmt Hagstofunni voru 163.800 manns á vinnumarkaði á öðrum ársfjórðungi ársins 2005 en nú eru 171.600 manns starfandi. Innlent 14.8.2006 22:15
Hertar öryggisreglur í Leifsstöð Öryggisreglur hafa verið hertar til muna í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Íslendingar sem hyggjast ferðast erlendis eru vafalítið óöruggir um hvað þeir mega og eiga að gera. Innlent 14.8.2006 20:52
Rafmagn komið á að nýju Rafmagn er komið á að nýju í Fellahverfi í Breiðholti, en þar og við Vesturberg og á nærliggjandi götum varð rafmangslaust um kl. 18:40 í kvöld. Bilun varð í háspennukerfinu og er nú unnið að fullnaðarviðgerð. Innlent 14.8.2006 20:19
Útilokar ekki að fjölga friðargæsluliðum Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, leggur mikla áherslu á þátttöku Íslendinga í friðargæslu á Srí Lanka. Ákvörðun verður tekin síðar í vikunni en Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra útilokar ekki að íslenskum friðargæsluliðum verði fjölgað, þrátt fyrir vaxandi ólgu. Erlent 14.8.2006 19:03
Öryggisreglur gilda um alla flugfarþega Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að þær kröfur sem gerðar hafa verið til flugfarþega á leið til Bretlands og Bandaríkjanna gildi nú um alla farþega þar til annað verður ákveðið. Yfirvöld í Bretlandi hafa lækkað viðbúnaðarstig í landinu vegna hryðjuverkahættu. Erlent 14.8.2006 18:57
Vilja stöðva agaleysi í framúrkeyrslum fjárheimilda Sitjandi formaður fjárlaganefndar Alþingis segir að ræða verði við fjármálaráðuneytið og forstöðumenn helstu stofnana til að stöðva agaleysi í framúrkeyrslum fjárheimilda. Sem dæmi fóru Háskólinn á Akureyri og Landhelgisgæslan langt fram úr heimildum eða samtals um nærri hálfan milljarð króna. Innlent 14.8.2006 18:41
Kristinn H. býður sig fram til ritara Kristinn H. Gunnarsson hefur ákveðið að gefa kost á sér til ritara á flokksþingi Framsóknarflokksins um næstu helgi. Hann segir áherslur sínar í velferðarmálum og öðrum málaflokkum vera þau vopn sem flokkurinn þarf á að halda til að ná sínu fyrra fylgi. Innlent 14.8.2006 18:48
Á ekki þátt í auglýsingu um "meðferð " við samkynhneigð Þjóðkirkjan þvær hendur sínar af auglýsingu Samvinnuhóps kristinna trúfélaga, þar sem fólki er boðin meðferð til að losna úr viðjum samkynhneigðar. Hún er ekki sögð í samræmi við þær áherslur sem nú eru til umræðu innan Þjóðkirkjunnar. Innlent 14.8.2006 18:35
Mótmælendur héldu starfsfólki í gíslingu Mótmælendur Kárahnjúkavirkjunar stormuðu inn á skrifstofu fyrirtækisins Hönnunar á Reyðarfirði í dag og héldu starfsfólki þar í gíslingu. Samtímis var farið inn á byggingarsvæði Bechtel og ALCOA og vinna þar stöðvuð. Mótmælendurnir eiga nú yfir höfði sér kæru vegna skemmdarverka og frelsissviptingar. Innlent 14.8.2006 18:43
11 torfærustólar teknir í notkun Íþróttasamband fatlaðra tekur í notkun 11 torfæruhjólastóla á morgun, en þeir hafa staðið óhreyfðir í átta mánuði vegna deilna sambandsins við tollayfirvöld hér á landi. Stólarnir komu til landsins í janúar. ÍF sótti um niðurfellingu aðflutningsgjalda en var hafnað. Málið var kært og var niðurfelling gjalda staðfest nú í júlí. Innlent 14.8.2006 17:09
Viðbótarfé til Líbanons Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að veita viðbótarfé til mannúðar- og neyðaraðstoðar í Líbanon. Það framlag nemur fjórtán komma tveimur milljónum króna. Það kemur til viðbótar tíu milljónum króna sem veittar voru í lok júlí. Framlagið núna skiptist jafnt á milli Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna og Alþjóða Rauða krossins. Innlent 14.8.2006 17:28
FL Group tapar á öðrum ársfjórðungi FL Group hagnaðist um rúma 5,7 milljarða króna eftir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er tæpum 3,8 milljörðum krónum meira en á sama tíma í fyrra. Hagnaður fyrirtækisins fyrir skatta nam 6,3 milljörðum króna en hann var rúmir 2,3 milljarðar króna fyrir ári. FL Group tapaði 118 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi, sem er nokkur viðsnúningur frá sama tíma í fyrra þegar félagið skilaði rúmlega 1,9 milljarða króna hagnaði. Viðskipti innlent 14.8.2006 17:02
Segir mótmælendur hafa haldið starfsfólki í gíslingu Hópur andstæðinga Kárahnjúkavirkjunar lét að sér kveða á Reyðarfirði í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Eskifirði fór einn maður inn á byggingarsvæði álvers Alcoa og stöðvaði þar vinnu í eina til tvær klukkustundir. Þá fór um 10 manna hópur inn á skrifstofur. Innlent 14.8.2006 14:07
Kristinn H. vill í ritaraembættið Kristinn H. Gunnarsson þingmaður Framsóknarflokksins gefur kost á sér í embætti ritara Framsóknarflokksins. Þar með hafa þrír lýst yfir vilja til að gegna embætti ritara flokksins en ný forysta verður kjörin á flokksþingi Framsóknarflokksins um næstu helgi. Auk Kristins hafa Birkir Jón Jónsson þingmaður og Haukur Logi Karlsson formaður SUF gefið kost á sér í embættið. Innlent 14.8.2006 13:58
Sandgerðisvegur lokaður í dag og á morgun Sandgerðisvegur verður lokaður frá Miðnesheiðarvegi að Garðskagavegi í dag og á morgun vegna. Fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinna að vegurinn verði þó opinn í nótt til kl. níu í fyrramálið. Vegfarendum er bent á að aka Garðskagaveg. Innlent 14.8.2006 13:15
Dregur úr sölu á nýjum íbúðum Nýjum fullbúnum íbúðum, sem standa tómar og seljast ekki, fjölgar dag frá degi á höfuðborgarsvæðinu. Á sama tíma verður víða vart tómra íbúða í grónum hverfum þaðan sem fólk er flutt í nýjar íbúðir en getur ekki selt þær gömlu. Innlent 14.8.2006 12:34
Ýjar að því að Fons kaupi aftur Sterling Berlingske Tidende í Danmörku lætur að því liggja að eignarhaldsfélagið Fons, sem í fyrra keypti dönsku flugfélögin Mersk og Sterling og seldi þau sameinuð til FL Group, muni aftur eignast Sterling á næstunni. Innlent 14.8.2006 12:31