Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024)

Fyrirtæki og launþegar gæti hófsemi til að ná niður verðbólgu
Fjármálaráðherra hefur miklar áhyggjur af hárri verðbólgu en varar við vítahring launahækkanna sem leiti aftur út í verðlag. Forsætisráðherra biðlar til fyrirtækja að gæta hófsemi í arðgreiðslum og álagningu. Húsnæðiskostnaður heimilanna hækkar gríðarlega vegna samspils stýrivaxtahækkana og verðbólgu.

Framúrkeyrsla stofnana mikið áhyggjuefni
Hækkun verðbólgu umfram allar spár er mikið áhyggjuefni segir fjármálaráðherra. Hann gagnrýnir framúrkeyrslu stofnanna og segir að tekið verði á því í næstu fjármálaáætlun. Engar auðveldar leiðir séu í boði þegar mönnum hafi mistekist á ná tökum á verðbólgunni.

Segja söluna á ÍSB stjórnsýslulegan hroða sem verði að fást botn í
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur nú lokið umfjöllun sinni á skýrslu ríkisendurskoðunar um afar umdeilda sölu á 22,5 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka (ÍSB). Nefndarálit minnihluta nefndarinnar er harðort og afgerandi.

Rennur hratt úr tímaglasi sáttasemjara
Reikna má með að settur ríkissáttasemjari í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins reyni að leggja fram miðlunartillögu á allra næstu dögum. Ýmsar ytri aðstæður hjálpa til við að flækja málin og tíminn vinnur ekki með lausn deilunnar.

Boðaðar ráðstafanir leiði til tug milljarða tjóns
Stærstu eigendur skuldabréfa ÍL-sjóðs telja það að ekki vera grundvöllur fyrir samningaviðræðum við fjármálaráðuneytið um uppgjör skuldbindinga sjóðsins. Þeir segja fulltrúa ráðuneytisins ekki hafa komið til móts við kröfur lífeyrissjóðanna.

„Það er ekki rétt að það sé ekki neitt að gerast“
Innviðaráðherra segir forsendur samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins ekki brostnar þrátt fyrir gagnrýnisraddir úr ýmsum áttum. Framkvæmdir mættu þó vera hraðari og kostnaður hafi vissulega hækkað, sem sé eðlilegt í ljósi óvissuþátta. Taka þurfi umræðuna og mögulega endurskoða hluta sáttmálans.

Tilgangurinn með húsnæðisstuðningi ekki að „fita leigufélögin“
Stjórnvöld hækkuðu ekki húsnæðisstuðning til að fita tiltekin leigufélög. Þetta segir Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, í svari sínu við fyrirspurn sem Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar lagði fyrir hana á Alþingi í dag.

Kallar eftir viðbrögðum stjórnarliða við „efnahagslegum glæp“
Formaður Eflingar segir yfirvofandi verkbann Samtaka atvinnulífsins gagnvart Eflingafélögum vera grófan og skelfilegan efnahagslegan glæp. Hann segir magnað að enginn úr liði ríkisstjórnarinnar hafi neitt að segja um málið.

„Ef að samfélagið fer að stöðvast þá verða stjórnvöld að grípa inn í“
Formaður Miðflokksins segir mikilvægt að ríkisstjórnin sé undirbúin fyrir það að hún gæti þurft að höggva á hnútinn í kjaradeilunni. Miðlunartillaga væri ein lausn og ríkisstjórnin þurfi í hið minnsta að vera tilbúin enda geti tekið tíma að bregðast við. Þingið og ríkisstjórnin geti ekki litið fram hjá vandanum þegar allt er að sigla í strand.

Munu aldrei gefa föngum hugvíkkandi efni án samþykkis allra
Fangelsismálastjóri segir að ekki verði gerðar tilraunir með hugvíkkandi efni á föngum án þess að samþykki allra aðila, þar á meðal vísindasamfélagsins, liggi fyrir. Hann kveðst opinn fyrir hugmyndinni en andleg vandamál séu áberandi í fangelsum landsins og við því þurfi að bregðast.

Varðstaða um sérhagsmuni aldrei birst eins skýrt og nú
Formenn félaga Alþýðusambands Íslands segja að sjaldan hafi varðstaða um sérhagsmuni birst landsmönnum eins skýrt og nú. Ríkisstjórninni hafi mistekist að leggja grunn að efnahagslegum og samfélagslegum stöðugleika.

„Barátta Úkraínu er okkar barátta. Úkraína verður að sigra“
„Í 365 daga hefur þetta óréttlætanlega, tilefnislausa og ólögmæta innrásarstríð valdið ómældum þjáningum, dauðsföllum og eyðileggingu af stærðargráðu sem ekki hefur sést í álfunni síðan í síðari heimsstyrjöld.“

Efling vill að stjórnvöld þrýsti SA að samningaborðinu
Efling krefst þess að stjórnvöld þrýsti á Samtök atvinnulífsins að draga boðað verkbann samtakanna til baka. Félagið boðaði til fjölmenns samstöðufundar í dag og hafði síðan uppi mótmæli við forsætisráðuneytið og Alþingi.

Von der Leyen svaraði erindi Katrínar en svörin fást ekki afhent
Katrínu Jakobsdóttur barst svarbréf frá Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, við erindi forsætisráðherra frá því í júní í fyrra er varðaði kostnað við losun frá millilandaflugi.

Vill vita hvort Jón hafi í alvöru haft uppi hugmyndir um tilraunir á föngum
Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar hefur lagt fram skriflega fyrirspurn til Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra þar sem hann vill fá að vita fyrir víst hvort ráðherra hafi í raun viðrað þá hugmynd að gerðar yrðu tilraunir með hugvíkkandi efni á föngum.

Leyndarhyggjan um Lindarhvol enn á dagskrá þingsins
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata hefur óskað sérstaklega eftir því að Birgir Ármannsson forseti Alþingis birti lögfræðiálit sem forsætisnefnd er búin að láta gera en þau kveða öll á um að ekkert standi í vegi fyrir birtingu greinargerðar um Lindarhvol.

Skýrt að taka þurfi vinnulöggjöfina til skoðunar
Ríkisstjórnin ætlar ekki að beita sér með beinum hætti í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins eins og staðan er nú en ætlar að fylgjast vel með framvindunni. Ráðherrar telja vinnumarkaðslöggjöf í óvissu eftir feril miðlunartillögu ríkissáttasemjara.

Mótvægisaðgerðir vegna Covid námu 450 milljörðum
Mótvægisaðgerðir stjórnvalda vegna heimsfaraldurs Covid á árunum 2020 til 2022 námu alls 450 milljörðum króna, eða 4,5 prósentum af landsframleiðslu á tímabilinu.

Dapurleg staða og ítrekar skyldu Eflingar og SA að ná samningum
Ríkisstjórnin ræddi stöðuna í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins á vikulegum fundi sínum í Ráðherrabústaðnum í morgun. Forsætisráðherra ítrekar skyldu deiluaðila að ná samningum.

Leyndin um Lindarhvol orðin að sjálfstæðum ímyndarvanda fyrir þingið
Þingmenn saumuðu að forseta Alþingis, Birgi Ármannssyni, á þinginu í gær og rukkuðu hann um greinargerð Sigurðar Þórðarsonar þá setts ríkisendurskoðanda, um hið dularfulla fyrirbæri Lindarhvol.

Vilja aðstoð við að endurbyggja sögufrægt hús í Vík í Mýrdal
Sveitarstjórn Mýrdalshrepps hefur óskað eftir samstarfi við ríkið til að byggja upp Halldórsbúð í Vík. Þar var starfrækt fyrsta verslun bæjarins en stefnt er að því að reka þar stofnun fræða eða þekkingarsetur.

Segir fjármálaráðuneytið hafa átt við umbeðnar upplýsingar
Sigurður Valtýsson, fyrirsvarsmaður Frigusar sem stendur í málaferlum við Lindarhvol og ríkið, hefur reynt að toga upplýsingar úr fjármálaráðuneytinu sem streitist á móti sem mest það má.

Fylgi ríkisstjórnarflokkanna ekki minna á kjörtímabilinu
Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna þriggja mælist nú rétt um 39 prósent og hefur ekki verið minna á kjörtímabilinu. Ekki er marktækur munur á fylgi Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar í nýrri skoðanakönnun Maskínu.

Er ríkisstjórnin stikkfrí í kjaradeilunum?
Hvernig er unnt að höggva á hnútinn í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins? Það virðist langt til lands og harkan færist í aukana með áformum atvinnurekenda um verkbann á 20 þúsund félaga verkalýðsfélagsins. Það er olía á eld í þessari kjaradeilu.

Stefnumótun matvælaráðuneytisins byggir á kjaftasögum
Stefnumótun Svandísar Svavarsdóttur, ráðherra Vg, undir því kaldhæðnislega slagorði „Auðlindin okkar“ verður í framtíðinni líklega notuð sem kennslubókardæmi í háskólum, í opinberri stjórnsýslu, um stefnumótun stjórnvalda í þágu almennings sem getur snúist upp í andhverfu sína þegar fram líða stundir.

Íslensk stjórnvöld alfarið á móti landtökubyggðum Ísraela
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, segir íslensk stjórnvöld alfarið á móti nýjum landtökubyggðum sem Ísraelar ætla að reisa á landsvæðum Palestínumanna. Hún hitti utanríkisráðherra heimastjórnar Palestínumanna í dag.

Upplýsandi rimma lobbíista um sjókvíaeldið
Jón Kaldal talsmaður Íslenska náttúruverndarsjóðsins og Daníel Jakobsson framkvæmdastjóri hjá Arctic Fish um fiskeldi tókust harkalega á um hið umdeilda sjókvíaeldi á Sprengisandi á Bylgjunni.

Telur óeðlilegt að sitja árum saman undir ávirðingum
Fyrrverandi settur ríkisendurskoðandi taldi sig ekki hafa fengið upplýsingar eða svör um verðmat og ráðstöfun á tilteknum eignum sem Lindarhvoll ehf. fór með áður en hann lauk afskiptum af úttekt á störfum eignarhaldsfélags fjármálaráðuneytisins. Hann vill að Alþingi skýri hvað það sé í greinargerð sem hann skilaði sem þurfi að halda leynd yfir. Verði frekari dráttur á að Alþingi afgreiði málið þurfi hann að huga að því hvernig rétt sé að bregðast við ávirðingum í hans garð.

Lagabreyting leyfir rafhlaupahjól á götum þar sem hámarkshraði er 30 km/klst
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra mælti á dögunum fyrir frumvarpi til breytinga á umferðarlögum þar sem meðal annars eru gerðar breytingar á reglum um rafhlaupahjól.

Ástráður settur ríkissáttasemjari í deilu SA og Eflingar
Ástráður Haraldsson héraðsdómari hefur verið settur ríkissáttasemjari í vinnudeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Í gær tilkynnti Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari að hann myndi segja sig frá deilunni.