

Haukar áttu ekki í neinum vandræðum með að leggja ÍR að velli í fyrstu umferð Subway deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Gestirnir úr Breiðholti áttu í raun aldrei möguleika í Ólafssal, lokatölur 104-53.
Tvö íslensku liðanna sem leika í 2. umferð Evrópubikars kvenna í handbolta munu leika einvígi sín alfarið á heimavelli en bikarmeistarar Vals spila hins vegar báða leiki sína á útivelli.
Íslandsmeistarar Njarðvíkur unnu sjö stiga sigur á bikarmeisturum Hauka í uppgjöri meistara meistaranna, eftir framlengdan leik í Ljónagryfjunni, 94-87. Leikurinn var stórkostleg skemmtun milli tveggja jafnra liða.
„Við ætlum að fara í einhvern ótrúlegasta handboltaleik sem hefur verið spilaður á landinu í mörg ár,“ sagði Stefán Árni Pálsson í síðasta þætti Seinni bylgjunnar er umræðan snerist að ótrúlegum leik ÍR og Hauka í Olís deild karla í handbolta á föstudaginn var.
Valur gjörsamlega pakkaði Haukum saman að Hlíðarenda þegar liðin mættust í Olís deild kvenna í kvöld, lokatölur 37-22 Valskonum í vil.
Fyrsti keppnisleikurinn í nýju íþróttahúsi við Skógarsel fór fram þegar ÍR tók á móti Haukum í annari umferð Olís-deildar karla í kvöld. Fór það svo að heimamenn unnu fjögurra marka sigur, lokatölur 33-29.
Haukum er spáð sigri í Subway-deild kvenna í körfubolta í vetur en Íslandsmeisturum Njarðvíkur er spáð 2. sæti. Nýliðum ÍR er spáð falli.
„Við spáðum Haukum 5. sætinu, við þurfum mögulega bara að endurskoða það eftir þessi kaup,“ sagði Stefán Árni Pálsson, þáttastjórnandi Seinni bylgjunnar, um innkomu Andra Más Rúnarssonar í lið Hauka í Olís deild karla.
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Haukum 6. sæti Olís-deildar kvenna í vetur.
Rúnar Sigtryggsson stýrði Haukum til sigurs í fyrsta leik sínum sem þjálfari liðsins. Staðan í hálfleik gegn KA var jöfn, 11-11, en Haukar stigu á bensíngjöfina í upphafi seinni hálfleiks og náðu þá forskoti sem þeir létu ekki af hendi.
Haukar unnu KA, 27-21, í eina leik kvöldsins í Olís-deild karla. Staðan í hálfleik var jöfn, 11-11, en Haukar voru mun sterkari í seinni hálfleik.
Andri Már Rúnarsson skrifaði undir hjá Haukum í Olís-deildinni í handbolta í vikunni en þar þekkir hann vel til þjálfarans. Karl faðir hans, Rúnar Sigtryggsson, tók við liðinu fyrir þessa leiktíð og lýst þeim vel á komandi samstarf.
Í Hafnarfirði eru risnar ákafar deilur um framkvæmd sem er komið á það stig í ferli að vart verður aftur snúið. Um er að ræða kostnaðarsama byggingu, knatthús á svæði Hauka.
Afturelding hefur fengið úkraínska hornamanninn Ihor Kopyshynskyi frá Haukum. Hann hefur leikið hér á landi undanfarin ár.
Viðar Halldórsson, formaður Fimleikafélags Hafnarfjarðar eða FH, hefur sent bæjarfulltrúum í Hafnarfirði opið bréf þar sem hann gagnrýnir harðlega fyrirætlanir um byggingu nýs knatthúss á Ásvöllum, til handa Haukum. Hann segir framkvæmdina mun dýrari en þörf sé á og með henni sé verið að kasta háum fjárhæðum „út um gluggann.“
Haukar hafa heldur betur fengið liðsstyrk fyrir átökin sem framundan eru í Olís-deild karla í handbolta. Andri Már Rúnarsson er genginn í Hafnarfjarðarliðsins frá Stuttgart en samningi hans við þýska félagið var rift.
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Haukum 5. sæti Olís-deildar karla í vetur.
Nýliðar ÍR hafa fengið tvo nýja leikmenn til liðs við sig fyrir komandi átök í Olís-deild karla í handbolta. ÍR-ingar hafa samið við Friðrik Hólm Jónsson frá ÍBV og hinn unga Róbert Snær Örvarsson frá Haukum.
Aron Rafn Eðvarðsson, einn besti handboltamarkvörður landsins um langt árabil, fékk bolta í höfuðið í byrjun mars og hefur síðan þá lítið getað æft handbolta eða stundað vinnu. Fyrstu vikurnar eftir höggið voru sérstaklega slæmar.
„Ég á yndislega konu og þegar Haukarnir hringdu þá rak hún mann bara út í þetta, að taka slaginn,“ segir nýgiftur Heimir Óli Heimisson sem ætlar að koma Haukum til bjargar og spila á línunni hjá þeim í handboltanum í vetur.
Þrír leikir fóru fram í Lengjudeild kvenna í kvöld þar sem botnliðin þrjú, Haukar, Fjölnir og Augnablik, töpuðu öll. Haukar máttu þola 0-2 tap gegn Víking, Fjölnir steinlá á heimavelli gegn Fylki, 1-4, og Augnablik tapaði 0-3 gegn Grindavík.
Guðmundur Bragi Ástþórsson, leikmaður Hauka í Olís-deild karla er á reynslu hjá þýska liðinu Hamm-Westfalen sem stendur.
Tveir leikir fóru fram í Lengjudeild kvenna í fótbolta í kvöld. HK vann 4-1 sigur á Haukum og Grindavík vann 2-0 sigur á Fjölni.
Haukar hafa misst töluvert úr sínum leikmannahópi fyrir komandi tímabil í Olís-deild karla, aðallega vegna meiðsla. Sérfræðingar hlaðvarpsins Handkastsins veltu upp stöðu liðsins og þá hvort Rúnar Sigtryggsson, nýr þjálfari liðsins, geti hresst upp á andrúmsloftið í félaginu.
Haukar eru í leit að línumanni fyrir átökin í Olís-deild karla í vetur. Tveir línumenn liðsins eru með slitið krossband.
Haukar sem verða nýliðar í Subway deild karla í körfubolta á komandi keppnistímabili halda áfram að styrkja leikmannahóp sinn fyrir komandi átök.
Alexander Knudsen hefur gengið til liðs við Hauka sem verða nýliðar í Subway-deild karla í körfubolta á næstu leiktíð. KR-ingar tilkynntu hins vegar í dag að félagið hefði samið við Almar Orra Atlason.
ÍBV, Haukar og KA eru þau þrjú íslensku lið sem skráð eru til leiks í Evrópubikarkeppni karla í handbolta. ÍBV verður í pottinum þegar dregið verður í fyrstu umferð, en Haukar og KA mæta til leiks í aðra umferð.
FH burstaði Hauka 6-0 í nágrannaslag liðanna í níundu umferð Lengjudeildar kvenna í fótbolta á Kaplakrikavelli í kvöld.
Lengjudeild kvenna í knattspyrnu bauð upp á tvo leiki í kvöld. Tindastóll lyfti sér upp í annað sæti deildarinnar með 3-0 sigri gegn Augnabliki og Fjölnir vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu er liðið lagði Hauka, 1-2, í botnslag deildarinnar.