Besta deild karla

Emil leikmaður ársins að mati leikmannana | Höskuldur efnilegastur
Emil Pálsson, miðjumaður FH, var í gær valinn besti leikmaður ársins í Pepsi-deild karla af leikmönnum deildarinnar en Höskuldur Gunnlaugsson, leikmaður Breiðabliks, var valinn efnilegastur.

Úrvalslið mótsins að mati Pepsi-markanna: 5 leikmenn úr FH
Sérfræðingar Pepsi-markanna völdu úrvalslið mótsins í sérstökum uppgjörsþætti í kvöld.

Oliver efnilegastur að mati Pepsi-markanna
Oliver Sigurjónsson, miðjumaður Breiðabliks, var í kvöld valinn besti ungi leikmaður Pepsi-deildarinnar á nýafstöðnu tímabili af sérfræðingum Pepsi-markanna

Davíð Þór besti leikmaðurinn að mati Pepsi-markanna
Pepsi-mörkin völdu Davíð Þór Viðarsson, fyrirliða FH, besta leikmann Pepsi-deildarinnar 2015.

Jafnt í borgarslagnum í Verona
Emil Hallfreðsson var að vanda í byrjunarliði Hellas Verona í jafntefli gegn Chievo í dag en Verona er enn án sigurs í ítölsku úrvalsdeildinni.

Umfjöllun, einkunnir og viðtöl: ÍBV - ÍA 1-2 | Þriðji sigur Skagamanna í röð
Skagamenn sóttu öll stigin til Vestmannaeyja í dag en leiknum lauk með 2-1 sigri ÍA. Skagamenn tryggðu sér 7. sæti deildarinnar með sigrinum en þar að auki tryggði Garðar Gunnlaugsson sér bronsskóinn.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KR - Víkingur 5-2 | Markasúpa í Vesturbænum
Gary Martin og Óskar Örnar Hauksson skoruðu tvö mörk hver í góðum sigri KR á Víking.

Ásmundur hættur með ÍBV | "Gengur ekki upp að taka annað tímabil“
Ásmundur Arnarsson staðfesti í dag að þetta hefði verið síðasti leikur hans sem þjálfari ÍBV en hann var ekki tilbúinn að ræða orðróm um að hann væri að taka við Fram.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Fjölnir - Breiðablik 0-2 | Enn héldu Blikar hreinu
Fjölnir jafnaði sinn besta árangur í efstu deild og Breiðablik bætti stigametið sitt.

Jóhannes hættur með ÍBV | Ásmundur heldur ekki áfram
Jóhannes Þór Harðarson mun ekki snúa aftur sem þjálfari ÍBV í knattspyrnu á ný en þetta kom fram í tilkynningu frá ÍBV rétt í þessu.

Gunnleifur: Líklega mitt besta tímabil
Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður Breiðabliks, fékk aðeins þrettán mörk á sig í allt sumar og segist afar stoltur af þeim árangri.

Freyr og Davíð hættir með Leikni | "Fer stoltur frá verkefninu“
Freyr Alexandersson staðfesti í samtali við blaðamann Vísis eftir leik að hann og Davíð Snorri væru hættir með Leiknisliðið eftir að Leiknir féll niður úr Pepsi-deildinni.

Glenn: Hann togaði í eyrað á mér
Jonathan Glenn fékk silfurskóinn í dag en fékk þó að líta rauða spjaldið er Breiðablik vann Fjölni, 2-0.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Valur - Stjarnan 2-1 | Stjarnan tók 4. sætið
Stjarnan náði 4. sætinu í Pepsi-deild karla með 2-1 sigri á Val í lokaumferðinni í dag.

Pétur Viðars á förum frá FH | Fer til Ástralíu í nám
Pétur Viðarsson, miðvörður FH, hefur leikið síðasta leik sinn fyrir félagið í bili en hann er á förum til Ástralíu í nám. Pétur tekur út leikbann í dag og er ekki með liðinu í lokaleik FH í Pepsi-deildinnarinnar.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Keflavík - Leiknir 3-2 | Keflavík kvaddi með sigri
Keflavík vann kveðjuleikinn sem var fjörugur.

Gylfi Veigar og Tryggvi Rafn framlengja við ÍA
Gylfi Veigar Gylfason og Tryggvi Rafn Haraldsson skrifuðu undir nýja samninga hjá ÍA í gær og framlengdu til tveggja ára.

Taka erlendir leikmenn alla skóna? | Gunnleifur getur náð tveimur metum
Fréttablaðið skoðaði nokkur met sem gætu fallið í síðustu umferð Pepsi-deildarinnar á árinu 2015 en Gunnleifur Gunnleifsson gæti náð tveimur í dag. Leikmenn þurfa að skora 41 mark í lokaumferðinni til að komast yfir þrjú mörk að meðaltali.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Fylkir - FH 3-2 | Meistararnir töpuðu á Flórídanavellinum
Íslandsmeistarar FH töpuðu 3-2 fyrir Fylki á útivelli í síðustu umferð Pepsí deildar karla í fótbolta í sumar. FH hafði fyrir leikinn tryggt sér titilinn og sást það á leik liðsins.

Lokaþáttur Pepsi-markanna í opinni dagskrá á Vísi og Stöð 2 Sport annað kvöld
Lokaþáttur Pepsi-markanna verða í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport og í beinni útsendingu á Vísi á morgun þar sem mótið verður gert upp, góðir gestir mæta í settið og leikm

Milos framlengdi til tveggja ára í Víkinni | Helgi verður áfram aðstoðarþjálfari
Milos Vilojevic komst í dag að samkomulagi við Víking um tveggja ára framlengingu á samningi hans sem þjálfari meistaraflokks Víkings.

Óli Stefán tekur við Grindavík | Brynjar hættur með Fjarðarbyggð
Óli Stefán Flóventsson tekur við starfi Tommy Nielsen sem þjálfari Grindavíkur en á sama degi staðfesti Brynjar Gestsson að hann væri hættur sem þjálfari Fjarðarbyggðar.

Pétur segist hafa skorað tuttugu mörk sumarið 1978
Pétur Pétursson, einn af eigendum markametsins í efstu deild á Íslandi, segist hafa verið rændur einu marki þegar hann skoraði fyrstur allra 19 mörk sumarið 1978.

Atli Viðar fyrstur til að skora fyrir sjö Íslandsmeistaralið
Atli Viðar Björnsson tók í sumar athyglisvert met af goðsögnunum Rikka og Nunna þegar hann varð fyrsti leikmaðurinn frá stríðslokum sem nær að skora fyrir sjö Íslandsmeistaralið en Atli Viðar hefur alls skorað 47 mörk fyrir Íslandsmeistaralið FH-inga frá 2004 til 2015.

Hendrickx framlengir við FH
Belgíski bakvörðurinn skrifaði í dag undir tveggja ára endurnýjun á samningi sínum hjá FH eftir tvö ár í herbúðum Íslandsmeistaranna.

Skosk og þýsk lið sýna Oliver áhuga
Miðjumaður Breiðabliks vakið mikla athygli í sumar fyrir frábæra frammistöðu.

Hermann í tveggja leikja bann
Hermann Hreiðarsson, þjálfari Fylkis, var í gær úrskurðaður í tveggja leikja bann af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ.

Mikill áhugi erlendis á Kristni Jónssyni
Lið á Norðurlöndum og frá Hollandi hafa fylgst grannt með bakverðinum í Pepsi-deildinni í sumar.

Lennon: Áfengismenningin í Skotlandi ógnaði ferli mínum
Steven Lennon, leikmaður FH, var í viðtali við Daily Record í dag, en hann ræddi meðal annars fyrstu árin í atvinnumennskunni, lífið á Íslandi og uppgang íslenskrar knattspyrnu undanfarin ár.

Pepsi-mörkin | 21. þáttur
Sex leikir fóru fram í 21. umferð Pepsi-deildarinnar um helgina en að vanda var umferðin gerð upp í Pepsi-mörkunum. FH varð Íslandsmeistari á sama degi og Leiknir féll niður í 1. deild.